Öryggismál
Samkvæmt reglum nr. 77/1982 um heilbrigðis- og öryggisstarfsemi er skylt að stofna öryggisnefnd í fyrirtækjum með 50 starfsmenn eða fleiri.
Öryggisverðir skólans, skipaðir af skólastjóra, eru Jón Olgeirsson, húsvörður og Valdór Bóasson, kennari. Öryggistrúnaðarmenn, kosnir af starfsmönnum, eru Ásdís Sigurgeirsdóttir, skólaliði, Heiður Þorsteinsdóttir, kennari og Sigurður Þorsteinsson, kennari.
Hlutverk þessara fulltrúa er, auk almennra eftirlitsstarfa skv. ákvæðum áðurnefndra reglna, að vinna að bættum aðbúnaði, hollustuháttum og öryggi á vinnustaðnum. Allar ábendingar um það sem betur má fara eru vel þegnar.
Bent er á viðtalstíma og netföng nefndarmanna sem sjá má á lista yfir starfsfólk.















