Beint á leiđarkerfi vefsins

Slys og slysavarnir

Samkvæmt reglum nr. 77/1982 um heilbrigðis- og öryggisstarfsemi  er skylt að stofna öryggisnefnd í fyrirtækjum með 50 starfsmenn eða fleiri.  Öryggisverðir skólans, skipaðir af skólastjóra, eru Jón Olgeirsson húsvörður og Sigurður Þorsteinsson kennari.  Öryggistrúnaðarmenn, kosnir af starfsmönnum, eru kennararnir Heiður Þorsteinsdóttir og Valdór Bóasson og Ásdís Sigurgeirsdóttir skólaliði. Hlutverk þessara fulltrúa er, auk almennra eftirlitsstarfa skv. ákvæðum áðurnefndra reglna, að vinna að bættum aðbúnaði, hollustuháttum og öryggi á vinnustaðnum.  Allar ábendingar um það sem betur má fara eru vel þegnar.   

Í áfallaáætlun Kópavogsskóla er að finna verklagsreglur vegna alvarlegra slysa. Ef um er að ræða minniháttar slys í skólanum er skólahjúkrunarfræðingur (skólahjúkrunarfræðingur eru í hlutastarfi og því ekki alltaf tiltækir) látnir meta hvert tilvik og ákveða hvað gera skal. Ef skólahjúkrunarfræðingur er ekki tiltækur metur sá starfsmaður skólans sem fyrstur kemur að hvað skal gera eða hefur samband við stjórnendur til að fá ráðleggingar. Ef um vafamál er að ræða er óskað eftir því að foreldrar nái í nemandann og fari með hann á heilsugæslustöð til athugunar. Komist foreldri ekki sér starfsmaður skólans um að koma barninu þangað.


Viđburđir

 «Maí 2012» 
sunmánţrimiđfimföslau
  12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031  

6HHeimili og skóliSkólamatur

Mynd