Beint á leiđarkerfi vefsins

Valgreinar 2010 -2011

 

BÍLLINN

Kennari: Sigurður Þorsteinsson

Fornám að ökunámi

Markmið:

  • að nemendur öðlist skilning á ökutækjum og ábyrgð og átti sig á umferðarmálum á Íslandi
  • að undirbúa nemendur sem best fyrir hið eiginlega ökunám

Leiðir:

Fyrirlestrar, umferðarkannanir, heimsóknir fagaðila og unnið með ýmis verkefni samin af kennara. 

Námsmat:

Nemendur skila vinnubók í lok vetrar. Mætingar og vinnusemi metin til einkunna.  

ÍSLENSKA, grunnatriði

Kennari: Signý H. Helgadóttir

Námsefni 8. og 9. bekkjar rifjað upp auk atriða úr námsefni 10. bekkjar. Reynt verður að miða við þarfir hvers einstaklings og dýpka umfjöllun um þau grunnatriði sem nauðsynlegt er að kunna skil á. Meðal atriða sem unnið verður með eru ritun, ljóð, málfræði og bókmenntir. Horfum á íslenskar kvikmyndir með tilliti til texta og atburða myndarinnar. Umfjöllun tekur mið af getu og þörfum þeirra sem velja áfangann.

Námsefni:

Gullvör II og verkefni frá kennara.

Námsmat:

Próf í lok vetrar 70% og ástundun 30%.

ENSKA - ENS103

Kennari: Ásdís Óskarsdóttir

Áfangalýsing: Undirstöðuatriði enskrar málfræði rifjuð upp, sérstaklega þau atriði sem reynast íslenskum nemendum erfið. Áhersla er lögð á vandlegan lestur texta til þess að byggja upp virkan og hagnýtan orðaforða. Auk þess lesa nemendur bókmenntatexta og texta almenns eðlis. Markvissar hlustunaræfingar notaðar til þess að þjálfa skilning á töluðu máli. Nemendur þjálfaðir í að tjá sig með viðeigandi orðalagi um almen efni á ensku. Ritun er þjálfuð með fjölbreyttum æfingum og áhersla lögð á að skrifa skipulegan texta og skipta í efnisgreinar. Þjálfun í notkun orðabóka.

Markmið:

Nemandi:

  • Geti skilið venjulegan lestexta af ýmsu tagi.
  • Skilji skýrt talað efni sem ekki er endilega ætlað enskukennslu (raunefni, nytjatexta).
  • Geti talað um almenn efni og tjáð sig með viðeigandi orðalagi.
  • Geti tjáð sig skriflega á skipulegan hátt með markvissri notkun orðaforða.

  ÍÞRÓTTIR OG ÚTIVIST 

Kennari: Ragnar H. Róbertsson 


Markmið: 
Að nemendur:

  • fái tækifæri til að kynnast og stunda þolþjálfun, styrktarþjálfun og útivist 
  • skynji mikilvægi þess að hreyfa sig reglulega 
  • átti sig á að í nánasta umhverfi eru ýmis tækifæri til íþróttaiðkunar og útivistar 
  • fái innsýn inn í heim útivistarmannsins 

Skipulag náms:
Náminu verður skipt upp í þrjár lotur sem hver um sig er 24 kennslustundir

Haustlota; þolþjálfun

  • ţríþraut - hjóla, synda og hlaupa     
  • fræðsla um þolþjálfun     
  • hjólaferðalag út fyrir bæinn einn laugardag í september

Vetrarlota; styrktarþjálfun

  • stöðvaþjálfun, þrautabraut, skólahreysti og yoga     
  • fræðsla um styrktarþjálfun     
  • heimsókn í líkamsræktarstöð 

Tímarnir hefjast stundvíslega klukkan 7:00 æskilegast er að nemendur mæti 5. mínútum fyrr.  Tímarnir eru 50 mínútur og hafa nemendur þá 10 mínútur til að fara í sturtu og koma sér í tíma.  Boðið verður upp á rútu frá sundlaug Kópavogs.  Gott er að hafa ávexti og/eða vatnsbrúsa með sér. 

 

DAGUR

HVAÐ ER GERT

HVAR

21/2  mánudagur

Umræður, leikir , slökun.

Kópavogsskóli

23/2  miðvikudagur

Stöðvaþjálfun

Kópavogsskóli

02/3  miðvikudagur

Stöðvaþjálfun

Kópavogsskóli

04/3  föstudagur

Yoga

Kópavogsskóli

07/3  mánudagur

Stöðvaþjálfun

Kópavogsskóli

09/3  miðvikudagur

Stöðvaþjálfun

Kópavogsskóli

11/3  föstudagur

Vatnsleikfimi

Kópavogsskóli

14/3  mánudagur

Yoga

Sundlaug  Kópavogs

16/3  miðvikudagur

Actic, tækjasalur

Sundlaug  Kópavogs

Vorlota; útivist

  • heimsóknir frá/til björgunarsveit og útivistarfélög     
  • útivist í Bláfjöllum t.d. skíði, gönguferðir, hellaskoðun     
  • fjallganga t.d. gengið á Esjuna     
  • stefnt verður að því að fara í ferðalag með hópinn einn laugardag í maí og jafnvel verður gist eina nótt       
  • fræðsla um flest sem tengist útivist

Námsmat:


Áfanginn er próflaus.  Virkni í tímum  metin, hugarfar gagnvart viðfangsefninu, færni í að setja sér markmið og vilji til að ná settu marki.  Einnig  er metinn þroski nemenda til að vinna saman í hóp t.d. hjálpsemi og virðing gagnvart sjálfum sér og öðrum.

Nemendur þurfa að:


Hafa gaman af að hreyfa sig   Vera tilbúnir til að takast á við ýmis erfið líkamleg verkefni í íslensku veðri   Hafa aðgang að reiðhjóli   Eiga góða skó og hlífðarfatnað til að geta hreyft sig úti í íslenskri náttúru   Hafa aðgang að bakpoka   Geta mætt í þetta fag fyrir utan hefðbundinn kennslutíma                  

LISTASMIÐJA

Kennari: Valdór Bóasson

Fyrir nemendur sem hafa áhuga á að vinna með eigin hugmyndir í hönnun og smíði. Fjölbreytt efnisval og möguleikar á margs konar hugmyndavinnu. Unnið verður með hugmyndir sem tengjast endurvinnslu.

Ţað sem unnið verður með:

  • Listgler (skrautmunir/gluggaskraut)
  • Plexiplast (skartgripir/nytjahlutir)
  • Málmar (skartgripir/nælur/krossar)
  • Timbur (leiktæki/nytjahlutir/skraut)
  • Fluguhnýtingar

LEIKLIST

Kennari: Eggert Kaaber 

Kennsluáætlun fyrir leiklistaráfanga á unglingastigi í Kópavogsskóla

Markmið:

Að nemandi:

Leggi áherslu á að þjálfa sérstaklega:

  • framsögn og tilfinningu fyrir texta
  • rödd
  • látbragð og hreyfingar

Einnig að nemandi:

  • skapi og móti persónur í gegnum spunavinnu
  • túlki hlutverk í leiktexta og geti haldið því á meðan á sýningu stendur
  • semji og túlki texta á margvíslegan hátt í mismunandi tilgangi
  • setji á svið og stjórni stuttum leikþáttum
  • lagfæri og bæti við eigin leikþætti eftir gagnrýni frá kennara og félögum
  • leiklesi bókmenntaverk
  • hafi öðlast öryggi og sjálfstraust til að tjá hugsun sína, tilfinningar og hugmyndir
  • geti staðið upp og tjáð skoðanir sínar og rökstutt þær
  • noti tækni leikhússins eins og ljós og sviðsbúnað við uppsetningu á leikverkum

Lýsing:

Í leiklistaráfanganum verður m.a. lögð áhersla á og unnið með:

Spunavinnu með texta og án, látbragðsleik, grímur, raddtækni, framsögn, hópefli, farið í skoðunarferð í leikhús og fylgst með æfingu á leikverki, leikrit lesið og greint, sviðsbardagalist, senur úr verkinu skoðaðar, saminn leikþáttur í gegnum spuna og hann gerður klár á svið.

Námsmat:

Mæting og virkni í tímum

Einnig að nemandi:

  • standist faglegar kröfur sem gerðar eru í leikhúsvinnu eins og: Samvinna, traust og virðing fyrir öðrum
  • greini aðalatriðin í leiktexta
  • taki framförum í beitingu raddarinnar, framsögn og þjálfist í spunavinnu
  • geti tekið virkan þátt í umræðum um leiksýningar
  • heimsæki leikhús til að átta sig á því hvað er að baki atvinnuleiksýningar

SKÁK

Kennari: Sigurður Þorsteinsson

Í skákvali verða kynntir ýmsir þættir skákarinnar; byrjanir, miðtafl, endatafl, skákþrautir og saga skákarinnar einkum síðastliðin 150 ár. Hver tími mun byrja á einhverjum þessara þátta en síðan verður teflt og þá venjulega gengið út frá þeim atriðum sem fjallað hefur verið um í upphafi hvers tíma.

STUTTMYNDAGERÐ

Kennari: Marteinn Sigurgeirsson

Hugsað sem námskeið en leiðbeinandi hefur ekki verið ráðinn á þessu stigi málsins. Margir nemendur hafa verið að gera stuttmyndir og hafa óskað eftir slíku vali til að dýpka þekkingu sína og auka færni.

STÆRÐFRÆÐI, grunnatriði

 Kennari: Guðný Sigurjónsdóttir

Í þessum áfanga er markmiðið að rifja upp atriði úr námsefni fyrri ára. Áhersla verður lögð á námsefni úr 8. og 9. bekk og aðferðir skoðaðar frá grunni. Reynt verður að byggja góðan grunn að stærðfræðiþekkingu sem nemendur geti byggt áframhaldandi nám á. Fyrirhugað er að skipta hópnum í tvo hópa, fer eftir fjölda þeirra sem velja.

Atriði sem verða skoðuð eru eftirfarandi: Tölur, reikniaðgerðir, reiknikunnátta og mat, hlutföll og prósentur, mynstur og algebra, rúmfræði, tölfræði og líkindafræði, þrautir, stærðfræði í daglegu lífi ásamt því að skoðað verður hvaða þættir það eru sem nemendur eru slakastir í og farið yfir þá. 

Kennslugögn: Stuðst verður við námsbækur í stærðfræði fyrir unglingastig, ásamt því verða verkefni frá kennara og kennsluvefir notaðir.

Námsmat: Nemendur taka ekki próf í áfanganum en ýmis verkefni og verkefnaskil verða metin til einkunnar.

 TÖLVUR

Kennari: Þorsteinn Baldursson


Markmið:
Að nemendur:

  • geri eigin heimasíðu.
  • noti Ms Office forritin, Word, Excel, PowerPoint og Publisher.
  • tileinki sér góða færni í notkun heimilda frá Internetinu.
  • setji upp ritgerð samkvæmt stöðluðum reglum.


Námsgögn:

Forrit til heimasíðugerðar: Netobject Fusion Essentials.
Kennslubókin UTN 1036 Office 2007, kennslubók með verkefnum, sem kennd er á framhaldsskólastigi, fjölrituð verkefni frá kennara, vefrænt kennsluefni.
Bæklingur um gerð ritgerða og efni á lausum blöðum.


Námsáætlun:

Á haustönn verður lögð áhersla á hvernig forritið Netobject Fusion Essentials er notað og lögð áhersla á vönduð vinnubrögð. Heimasíðan verður vistuð í skólanum.
Ms Office 2007 tekið upp að hluta til (Word) á haustönn en síðan verður unnið við það að mestu á vorönn.
Við vinnu á ritgerðum verður haft samráð við kennara skólans um ritgerðar efni.


Námsmat:

  • með prófum í Office 2007.
  • samkvæmt vinnu í tímum.

ÚT Í LÍFIР

Kennarar: Dýrleif Egilsdóttir, Birna Vilhjálmsdóttir og fleiri


Hér um að ræða blandaðan hóp og verða kenndir  2 tímar á viku nokkrar vikur í senn.

Ţessi hópur inniheldur: Námstækni, Náms- og starfsfræðslu, Fjármálafræðslu og Lífið og tilveran. 


Námstækni (6 vikur)

Markmið:

Að nemendur læri að tileinka sér árangursríkar aðferðir í námi og að skipuleggja tíma sinn.
Jafnframt að nemendur læri að setja sér raunhæf markmið í námi.

  • dagbók - áætlanir - skipulag
    markmiðið er að læra betur og meira og læra að skipuleggja og stjórna tíma sínum.
  • glósur - glósutækni
    markmiðið er að læra að greina hvað eru aðalatriði og hvað aukaatriði. Læra að skrifa glósur sem nýtast vel.
  • lestur - einbeiting - áhugi
    markmiðið er að öðlast betri skilning á þeim texta sem lesinn er og læra að láta ekkert trufla sig við lærdóminn.
  • minnið - minnistækni - gleymska
    markmiðið er að læra að koma skipulagi á hugann, nota athyglina og skilja gildi upprifjunar sem vörn gegn gleymsku.
  • ritgerðir - uppsetning og vinna
    markmiðið er að læra að setja upp ritgerðir á viðurkenndan hátt og nota skólabókasafnið sem hjálpartæki við upplýsingaöflun.
  • próf - prófundirbúningur
    markmiðið er að læra að undirbúa sig fyrir próf og nota rétt vinnubrögð við upprifjun.

Náms- og starfsfræðsla (12 vikur)


Tvær stundir á viku, auk heimsókna sem ekki er komin dag- eða tímasetning á.
Val á starfi er ein mikilvægasta ákvörðun sem einstaklingurinn tekur. Það er því áríðandi að stuðla að því að sú ákvörðun byggist á þekkingu á leiðum að settu marki.


Markmið með náms- og starfsfræðslu eru:


Að nemendur:

  • fái yfirsýn yfir mismunandi starfsgreinar
  • fái yfirsýn yfir mismunandi námsleiðir sem eru í boði
  • geri sér grein fyrir tengslum námsvals og starfsvals
  • geri sér ljóst að störf krefjast mismunandi hæfni þekkingar og náms
  • fái tækifæri til að bera saman eigin áhuga, óskir og möguleika og kröfur um nám og hæfni sem mismunandi starfsgreinar gera
  • eigi kost á persónulegri ráðgjöf vegna náms- og starfsvals (hlutverk námsráðgjafa m.a.) fræðist um inntökuskilyrði og nám í framhaldsskóla.

Leiðir: 


Umræður um einstök málefni. Unnin eru einstaklingsverkefni, hópverkefni og farið í heimsóknir. Í starfsfræðslu fer fram kynning á atvinnulífinu og lögð er áhersla á að benda nemendum á samhengið milli skólagöngu og þátttöku í því. Fjallað verður um gildi starfsins, réttindi og skyldur starfsmanna og af hverju fólk vinnur þ.e. efnahagslega/félagslega/ sálfræðilega nauðsyn vinnu.


Námsmat:


 Metin verður frammistaða nemenda í tímum og fylgst vel með áhuga þeirra og framkomu í heimsóknum. Nokkur verkefni unnin. Umsögn gefin í orðum á einkunnaskírteini í vor.

Fjármálafræðsla (8 vikur)

Mikilvægt er fyrir ungt fólk nú til dags að þekkja grunnhugtök fjármálaheimsins. Við
ţurfum að vita t.d. hvað skattkort er, hvernig yfirdráttur virkar og hvað það er að skrifa
undir samning o.fl.


Markmið:

  • að þekkja og hafa innsýn í fjármálaumhverfi einstaklinga og samfélags og taka ábyrga afstöðu í eigin fjármálum

Lífið og tilveran (10 vikur)


Markmið:

Að nemendur skoði lífsvenjur sínar og heilbrigði.

Fjallað verður um;

  • mataræði
  • snyrtingu
  • skyndihjálp
  • heilbrigt líferni/forvarnir
  • Höndlaðu hamingjuna/Klárari en þú heldur/Allir geta eitthvað enginn getur allt
  • siðvenjur og kurteisi

     

Viđburđir

 «Maí 2012» 
sunmánţrimiđfimföslau
  12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031  

Heimili og skóliSkólamatur6H

Mynd