Námskrá
Umsjónarkennarar eru:
3. A: Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir. Heimastofa er nr. 201, á efri hæð skólans.
3. F: Guðrún Ásta Einarsdóttir. Heimastofa er nr. 203, á efri hæð skólans.
Samkvæmt viðmiðunarstundaskrá Menntamálaráðuneytis er nemendum í 3. bekk ætlað að vera 30 kennslustundir á viku í skólanum.
Stundaskrár bekkjanna er að finna á mentor.is
Ímyndunarafl er mikilvægara en þekking.
Ţekking er takmörkuð en ímyndunaraflið spannar alheiminn (Albert Einstein (1879-1955)).
Námskrá fyrir 3. bekk Kópavogsskóla
2010-2011
Samþætting list- og verkgreina og almennrar kennslu.
Ţróunarverkefni
Um verkefnið
Skólaárið 2011 - 2012 er unnið áfram í 3. bekk að þróunarverkefninu Fjölfærni, samþættingu list- og verkgreina og almennrar kennslu, sem hófst fyrir þremur árum í núverandi fjórða bekk.
Árið 2006 fengust, að frumkvæði foreldraráðs, loforð um styrki frá ýmsum fyrirtækjum fyrir þetta verkefni til 2-3 ára og var undirritaður samningur þeirra og skólans 20. nóvember 2007. Tvær greiðslur bárust frá hverju fyrirtæki en óþarfi er að fjölyrða um breyttar aðstæður sem m.a. hafa valdið því að allar forsendur fyrir styrkjum hafa gjörbreyst. Mjög jákvæður afrakstur verkefnisins sl. tvö skólaár var okkur hvatning til áframhaldandi vinnu með örlítið breyttu sniði.
Markmið verkefnisins er að til verði námskrá fyrir þrjá fyrstu árganga skólans sem hægt verður að nýta til frambúðar með litlum breytingum. Þrátt fyrir að áherslur færist hugsanlega til milli tímabila, eða aðrir þættir breytist lítillega, verður lögð áhersla á að nemendur finni fyrir festu í vinnubrögðum og geti treyst því að nám þeirra sé skipulagt með traustum og öguðum hætti. Foreldrar verða upplýstir um allar meiriháttar breytingar og fá rökstuðning fyrir þeim.
Stefnt er að því að hafa námsframboð fjölbreytt og þó verkefnin séu þau sömu geta útfærslur verið ólíkar.
Edda Kjartansdóttir frá Menntavísindasviði Háskóla Íslands er áfram verkefnastjóri. Hún vinnur með viðkomandi kennurum að nýrri námskrá og veitir ráðgjöf og leiðsögn við skipulag og kennsluhætti.
Meðfylgjandi námskrá sem unnið verður eftir í 3. bekk á þessu skólaári er afrakstur vinnu umsjónarkennara í 3. bekk, myndlistar- textíl - smíða og tónmenntakennara, verkefnastjóra og stjórnenda. Hún er framhald vinnu sem hófst vorið 2008 og fólst í gerð námskrár fyrir 1. bekk. Þá námskrá má sjá hér á heimasíðu hjá núverandi 1. bekk og vinnu frá 2009 fyrir 2. bekk.
Námskráin tekur mið af Aðalnámskrá grunnskóla og markmiðin fléttast saman í list-, og verkgreinum og almennri kennslu eftir þeim verkefnum sem verið er að vinna á hverjum tíma.
Hvernig sú samþætting á sér stað kemur fram í verklýsingum sem fylgja hverju verkefni. Þessar verklýsingar eru vinnuplögg kennara og munu nýtast öðrum vel sem kenna sömu árgöngum síðar.
Markmiðin með verkefninu eru að:
- Auka vægi list- og verkgreina.
- Samþætta námsgreinar svo að saman fari hugur og hönd.
- Auka fjölbreytni í námsframboði svo að nám geti orðið einstaklingsbundnara.
- Styrkja sjálfsmat og líðan nemenda almennt.
- Auka gæði skólastarfs.
Ţrengri markmið:
Að nemendur:
- Skynji og læri af reynslu.
- Læri að beita því sem lært er.
- Tjái sig um hugsun sína og álit á hugmyndum (verkum).
- Séu gagnrýnir á hugmyndir og verk en ekki fólk.
- Fái allir tækifæri til að tjá sig.
- Fari eftir leiðbeiningum um rökræður og siðfræði.
- Geti sett sig í spor annarra.
Skipulag
Tekin var ákvörðun um að skipta skólaárinu 2011-2012 í 3 tímabil sem taka mið af annaskiptingu skólans:
Haustönn 22. ágúst - 14. nóvember
Himingeimurinn
Vetrarönn 15. nóvember til 13. febrúar
Tækni tengd bílnum.
Vorönn 14. febrúar til vors
Hafið og fjaran.
Verkgreinatímar eru 2 á mánudögum og miðvikudögum. Nemendum skipt í fjóra hópa. Á mánudögum eru nemendur í textíl, myndmennt, íslensku og smíði en á miðvikudögum í textíl, myndmennt, smíði og tónmennt.
Samskipti og vinnubrögð
Allt skólaárið verður lögð áhersla á að vinna með markmið sem tengjast samskiptum og vinnubrögðum. Í öllum námsgreinum verður haft að leiðarljósi að efla sjálfsmynd og frumkvæði nemenda í gegnum skapandi starf.
Ákveðið var að flokka markmiðin sem unnið er með undir þessum lið í þrennt, sjálfsmynd, tjáningu og tillitssemi/umgengni.
|
Sjálfsmynd |
Tjáning |
Tillitssemi/umgengni |
|
|
|
Til að sjálfsmynd nemenda eflist er mikilvægt að þeir fái tækifæri til að byggja á styrkleikum sínum, þeim sé gert ljóst til hvers er ætlast af þeim og þeir fái kennslu í vinnubrögðum og umgengisreglum.
ÍSLENSKA
Kennarar: Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir og Guðrún Ásta Einarsdóttir
Lestur og bókmenntir
Markmið:
Að nemandi:
- Geti lesið sér til gagns og gamans.
- Geti lesið margvíslega texta af skilningi og öryggi.
- Læri að afla sér upplýsinga úr bókum.
- Kunni nokkur ljóð utanbókar.
- Kynnist verkum valinna rithöfunda.
Leiðir:
Nemendur fá lestrarefni við hæfi og lesa í skólanum og heima. Þeir taka þátt í samlestri og vinna með texta og ljóð.
Námsgögn:
Ýmsar lestrarbækur, Lesum saman, valin ljóð og textar úr ýmsum bókum og bækur af bókasafni skólans.
Námsmat:
Próf í lestri þrisvar á vetri. Lesskilningspróf í febrúar og maí.
Talað mál, hlustun og áhorf
Markmið:
Að nemandi:
- Flytji mál sitt skýrt og áheyrilega.
- Kunni að meta góða framsögn og skýran málflutning.
- Geti flutt ljóð utanbókar.
- Geti lesið sögur og ljóð fyrir bekkinn.
- Kunni að hlusta á aðra.
Leiðir:
Nemendur lesa texta upphátt í skólanum og heima. Nemendur geti sagt frá og kynnt verkefni sem þeir hafa unnið ýmist einir eða í hópi. Nemendur horfi á fræðslu- og myndefni, leikþætti og söngatriði ýmist á sal eða í heimastofu.
Ritun
Markmið:
Að nemandi:
- Sé fær um að skrifa margvíslega texta af öryggi.
- Geti samið sögur og ljóð.
- Dragi rétt til stafs.
- Hafi vald á ákveðnum þáttum réttritunar.
- Geti skrifað einfalda texta eftir upplestri.
Leiðir:
Nemendur vinna verkefni í skrift, stafsetningu og frjálsri ritun bæði í skólanum og heima.
Námsgögn:
Ritum saman, blái blýanturinn eftir Ragnheiði Gestsdóttur. Skrift 3 og 4 eftir Björgvin Jósteinsson, Kristbjörgu Eðvaldsdóttur og Þóri Sigurðsson. Ljósrituð verkefni unnin af kennurum, æfingabækur og stílabækur.
Námsmat:
Mat á vinnubrögðum. Skriftar- og stafsetningarpróf tvisvar á vetri.
Málfræði
Markmið:
Að nemandi:
- Ţekki hugtökin bókstafur, orð og málsgrein.
- Ţekki sérhljóð og samhljóð.
- Kunni stafrófið og geti notfært sér það.
- Átti sig á því hvernig orð geta verið samsett úr tveimur eða fleiri orðum.
- Ţekki samheiti og andheiti.
- Ţekki nafnorð, sagnorð og lýsingarorð.
Leiðir:
Unnið verður með málfræðiatriði bæði munnlega og skriflega.
Námsgögn:
Ritrún 2, Ás, Tvistur, Þristur og ýmis verkefni frá kennara.
Námsmat:
Virkni og vinna nemenda metin. Próf að vori.
STÆRÐFRÆÐI
Kennarar: Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir og Guðrún Ásta Einarsdóttir
Markmið:
Að nemandi:
- Sýni skilning á tölum og geti lesið og skrifað náttúrulegar tölur upp í 1000.
- Ţekki algeng stærðfræðihugtök og tákn þeirra þ.e. meira en, minna en, jafnt og, samlagning, frádráttur, margföldun og deiling.
- Geti lesið úr einföldum töflum og súluritum.
- Geti tekið þátt í umræðum um stærðfræðileg efni.
- Geri sér grein fyrir hvernig beita má stærðfræði í daglegu lífi.
- Hafi góða þekkingu á tugakerfinu.
- Hafi náð góðri færni í reikningi og kunni að nota reiknivél.
- Sé fær um að velja sér mismunandi aðferðir til að reikna og geti lagt mat á útreikninga.
- Geti notað mynstur til að draga fram almenna reglu.
- Átti sig á einfaldri notkun bókstafa í stærðfræði.
- Kunni skil á hugtökum og aðferðum við mælingu flatar- og rúmmynda.
- Kunni skil á nokkrum algengum hugtökum rúmfræðinnar.
- Kunni skil á nokkrum algengum hugtökum og aðferðum varðandi mælingu flatarmynda og þrívíðra hluta.
Leiðir:
Innlagnir á nýjum aðferðum. Ýmiss konar stærðfræðiverkefni til frekari þjálfunar.
Námsgögn:
Bækurnar Sproti 3A og 3B (nemendabók og æfingahefti), Eining 5 og 6, Línan, Viltu reyna, Í Undirdjúpunum margföldun, Við stefnum á margföldun. Aukaverkefni við hæfi hvers og eins. Ýmis hjálpargögn s.s. kubbar, kennslupeningar, mælitæki, talnagrindur o.fl.
Námsmat:
Símat allt árið. Stutt kaflapróf í Sprota. Próf að vori.
NÁTTÚRU- OG SAMFÉLAGSFRÆÐI
Kennarar: Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir og Guðrún Ásta Einarsdóttir
Markmið:
Að nemandi:
- Hafi löngun til að læra meira í náttúrufræðum.
- Ţekki náttúrulegt og manngert umhverfi, rati um það og kunni að njóta þess með útiveru.
- Skilji tengsl manns og umhverfis og hafi þroskað með sér virðingu fyrir náttúrunni.
- Ţekki staði í nágrenninu og kunni skil á nokkrum landfræðilegum hugtökum.
- Ţekki nokkur örnefni, kennileiti og sögustaði í heimabyggð.
- Ţekki til Íslendingasagna og valinna persóna sem þar er sagt frá.
- Kynnist breytingum sem orðið hafa á búsetu og atvinnuháttum Íslendinga á liðnum öldum.
Leiðir og námsgögn:
Gönguferðir um nánasta umhverfi skólans. Stuðst verður við bækurnar úr flokknum Komdu og skoðaðu og þá einkum bækurnar Hafið, Himingeimurinn, Bíllinn, Fjöllin og Landakort. Einnig verður unnið með bókina Góða ferð sem er umferðarfræðsla. Unnin ýmis verkefni tengd þeim. Verkefni af Skólavefnum.
Námsmat:
Virkni og vinna nemenda metin.
KRISTINFRÆÐI
Kennarar: Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir og Guðrún Ásta Einarsdóttir Markmið:
Að nemendur:
- Viti að Biblían er trúarbók kristinna manna og kynnist henni sem bók er inniheldur mörg rit.
- Ţekki skiptingu Biblíunnar í Gamla- og Nýja testamentið.
- Ţekki helstu hátíðir kristninnar, siði og tákn sem tengjast þeim.
- Ţekki grundvallargildi kristilegs siðgæðis og kynnist efni sem stuðlar að ábyrgðartilfinningu, sáttfýsi og virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum.
- Ræði um siðræn viðfangsefni sem tengjast vináttu, fyrirgefningu, umburðarlyndi, jafnrétti og nærgætni.
- Ţekki að til séu önnur trúarbrögð.
Leiðir:
Fjallað verður m.a. um sögurnar sem Jesús lærði, kristniboð, jólin og páskana.
Námsgögn: Bókin Stjarnan.
Námsmat: Virkni og vinna nemenda yfir veturinn metin.
ENSKA
Kennarar: Guðrún Ásta Einarsdóttir
Markmið:
Að nemandi:
- Skilji einföld fyrirmæli.
- Skilji einföld orð og setningar.
- Skilji helstu kveðjur og kurteisisorð í samskiptum.
- Geti fylgst með í einföldu hlustunarefni, t.d. söngvum og þulum.
- Geti fylgt eftir einföldum texta með hljóði eða mynd til stuðnings.
- Geti tekið þátt í samskiptaleikjum.
- Geti tekið þátt í einföldu samtali, t.d. spurt og svarað.
- Geti gefið einfaldar upplýsingar um sjálfan sig.
- Geti lýst hlut eða mynd á einfaldan hátt.
- Geti skrifað eftir fyrirmynd orð og einfaldar setningar.
Leiðir:
Söngvar á hljóðdiski sungnir og leiknir. Verkefni unnin eftir fyrirmælum á hljóðdiskum, unnið í verkefnabók.
Námsgögn:
Hljóðdiskur og verkefnabók Right on. Verkefni af Skólavef og vef Námsgagnastofnunar.
Námsmat:
Vinna og virkni nemenda í kennslustundum metin.
UPPLÝSINGA- OG TÆKNIMENNT
Kennari: Anna Björg Sveinsdóttir
Markmið:
Megin áhersla er lögð á að nemendur þjálfist í að þekkja safnið og hvað þar er að finna. Þeir skoða og kynnast mismunandi tegundum bóka, bæði fræðibókum og skáldsögum sem og öðrum tegundum bókmennta. Þeir hlusta á sögur, kynnast rithöfundum, teikna og æfa umgengnisreglur.
Í tölvum kynnast nemendur ýmsum kennsluforritum sem hæfa getu þeirra og aldri. Þeir vinna í ritvinnsluforriti og læra einfaldar aðgerðir.
Í samvinnu skólasafnskennara og bekkjarkennara er unnið þverfaglegt verkefni sem tekur til margra þátta. Þar læra nemendur meðal annars að afla heimilda, vinna úr þeim, skrá og að lokum setja upp í tölvu.
Leiðir:
Nemendur koma einu sinni í viku til skólasafnskennara í tíma í upplýsinga- og tæknimennt.
Námsmat:
Samkvæmt aðalnámskrá grunnskóla er upplýsinga- og tæknimennt þverfagleg námsgrein og skilar góð færni í henni sér í betri vinnu í öllum greinum. Með kennslu í upplýsingamennt er lögð áhersla á að kenna nemendum aðferðir og tækni við öflun, úrvinnslu og miðlun upplýsinga í tengslum við annað nám.
MYNDMENNT
Kennari: Hauður Kristinsdóttir
Markmið:
-
Að þroska hjá nemendum hæfileikann til að vinna sjálfstætt og á sinn sérstæða hátt að myndsköpun.
-
Að efla hæfni nemenda til samstarfs við aðra í sameiginlegum verkefnum.
-
Að þroska kunnáttu þeirra í meðferð og umgengni verkfæra.
-
Að efla getu nemenda til að skapa og njóta myndlistar.
Leiðir:
Efnið sem farið verður í krefst vandaðra vinnubragða. Áhersla verður lögð á:
Teikningu; nemendur vinna út frá sér sjálfum. Litafræði; tengist litun og málun. Mótun; leirvinna, Þrykk; grafík. HEIMILISFRÆÐI
Kennari: Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir
Markmið:
Að nemendur:
- Læri að morgunverður er undirstaða vellíðunar og heilbrigðis.
- Öðlist þekkingu á því hvers vegna sumar fæðutegundir eru hollar og aðrar óhollar og læri muninn á hollum og óhollum drykkjarvörum.
- Ţekki algeng eldhúsáhöld og viti til hvers þau eru notuð.
- Geti mælt í heilum og hálfum dl og notað allar mæliskeiðarnar.
- Fái þjálfun í að hreinsa, flysja, skera og rífa niður grænmeti.
- Fái þjálfun í að fara eftir einföldum uppskriftum og fyrirmælum og geti unnið í samvinnu við aðra.
- Geti gengið frá eftir sig með leiðsögn, og læri að leggja á borð (diskar, glös, hnífapör).
- Rifji upp heiti fæðuflokkanna. Læri sérstaklega um mjólkurflokk og kynnist ferli mjólkur frá kú til neytanda.
Leiðir:
Sýnikennsla. Þjálfun í verklegri vinnu, þvo upp, hreinsa áhöld og hafa snyrtilegt í kringum sig. Læri um mikilvægi hreinlætis við matreiðslustörf og fái þjálfun í að ganga frá eftir sig með leiðsögn (hendur, matvæli, áhöld, borðklútur). Þjálfist í borðsiðum og að sýna kurteisi.
Námsgögn:
Hollt og gott fyrir 3. bekk og ljósrit úr eldra efni.
TEXTÍLMENNT
Kennari: Margrét Inga Bjarnadóttir
Markmið:
Nemandi:
- Ţekki frumlitina.
- Teikni eftir fyrirmælum og búi til einfalt snið.
- Fái innsýn í efni og áhöld sem notuð eru við einfalda sníðavinnu.
- Vinni með tvöfalt efni, klippi og saumi saman.
- Noti útsaum til skreytingar.
- Fari yfir helstu hluta saumavélar.
- Saumi einfaldar línur á saumavél.
- Vinni eftir leiðbeiningum frá kennara.
- Tileinki sér nokkur hugtök textílgreinarinnar.
Leiðir:
Kennari sýnir nemendum þær aðferðir sem henta hverju sinni.
Námsmat:
Metin eru verkefni og virkni hvers nemanda.
HÖNNUN OG SMÍÐI
Kennari: Valdór Bóasson
Nemendum árgangsins er skipt í 2 hópa og þeir eru eina kennslustund, tvisvar í viku í hönnun og smíði hálfan veturinn á móti tímum í textil.
Markmið:
Að nemandinn:
- Verði virkur í sínu námi í smíðastofunni.
- Ţekki og geti notað grunnverkfærin hamra, sagir og raspa.
- Ţekki öryggisreglur i smíðastofunni.
- Ţekki bitjárn og viti til hvers þau eru notuð.
Leiðir:
Nemandinn leysi einföld verkefni á sjálfstæðan hátt og nýti eigin hugmyndir við vinnu sína. Hann noti sandpappír og þekki meðferð hans. Gangi frá þeim verkfærum sem hann notar og geti smíðað gripi við sitt hæfi og getu.
Námsgögn:
Verkefnabanki smíðakennara.
Námsmat: Samkvæmt námskrá eru þessir þættir teknir til athugunar:
- Umgengni og hegðun.
- Virkni og vinnubrögð nemandans.
- Kennari metur lokaafurð nemanda.
TÓNMENNT
Kennari: Skarphéðinn Þór Hjartarson
Markmið:
- Að vekja og efla áhuga á tónlist.
- Að veita nemendum fræðslu um tónlist og auka þekkingu þeirra á ýmsum fyrirbærum tónlistar.
- Að vekja nemendur til umhugsunar um tónlist og örva þá til gagnrýni.
- Að gera grein fyrir stöðu og hlutverki tónlistar í samfélaginu.
Námsefni:
Útgefið námsefni frá Námsgagnastofnun, vinnubókarblöð frá kennara og ýmislegt fleira.
Tæki og hjálpargögn:
Ýmis hljóðfæri, heimagerð hljóðfæri, fjölbreytt hlustunarefni, tölva og skjávarpi og ýmislegt fleira.
Áhersla á íslenska tónlist og aðra þjóðlega tónlist frá ýmsum löndum svo og hljóðfærakynningar og hefðbundna hljóðfæraflokka.
Helstu leiðir að markmiðum eru:
- Að læra fjölbreytt sönglög og ekki síst íslensk lög og ljóð.
- Að leika undir á hljóðfæri og spila eigin hljóðfæraútsetningar og annarra.
- Að hlusta á fjölbreytta tónlist, ræða um hana og skilgreina.
- Að ræða og skilgreina hljóðheiminn í kringum okkur.
- Að semja tónlist/hljóðlist út frá myndum, táknum, sögum og ljóðum.
- Tónlistarleikir til að þjálfa algeng tákn og hugtök í tónlist.
Heimavinna er engin.
Námsmat:
Metinn er frágangur vinnubókar, þátttaka í söng, hópvinnu, samspili og hlustun.
ÍÞRÓTTIR
Kennari: Ásta Sigrún Gylfadóttir
Fyrstu skólaárin hafa börn yfirleitt mikla hreyfiþörf, gleðjast yfir hverjum leik og eru með rannsóknarhug. Við skipulagningu kennslunnar þarf að koma til móts við þessa þætti. Leikir og markvissar æfingar, sem stuðla að eflingu skynfæra líkamans og styrkja gróf- og fínhreyfingar, eru þættir sem skipa stóran sess í íþróttakennslu fyrstu skólaárin. Þá skal einnig tengja áðurnefnda þætti við markvissa uppbyggingu á almennri líkamshreysti og þreki. Á fyrstu skólaárunum læra börnin smám saman að öðlast stjórn á líkama sínum og mótast sem heilsteyptir einstaklingar. Því þarf að leggja ríka áherslu á að þau öðlist jákvætt viðhorf til hreyfingar og að sjálfsmynd þeirra eflist með þátttöku í leikjum og fjölbreyttri hreyfingu.
Helstu viðfangsefni eru: Grunnþjálfun, ýmsir leikir og æfingar, þrautabrautir, hringþjálfun, knattleikir og æfingar með bolta, fimleikar, frjálsíþróttir, útivera, stöðvaþjálfun, teygjur og slökun.
Námsgögn: Bækur og rit um íþróttir, líkamsrækt og leiki. Ýmsir boltar og ýmis áhöld stór og smá.
Námsmat: Engin formleg próf eru í íþróttum í 3. bekk. Námsmat byggist aðallega á huglægu mati, þ.e. metinn er áhugi nemenda, virkni þeirra í tímum, hegðun og framkoma.
Íþróttafatnaður:
Í útileikfimi er áríðandi að nemendur komi í fötum sem þægilegt er að hreyfa sig í. Þegar nemendur byrja inni í sal er eftirfarandi klæðnaður nauðsynlegur fyrir 1. - 3. bekk: stuttbuxur, stuttermabolur/leikfimibolur, fimleikaskór (tátiljur), handklæði og hárbursti.
Nemendur 1.-3. bekkjar mega ekki vera í íþróttaskóm í leikfimi. Leyfilegt er að vera í tátiljum.
SUND
Kennari: Ásta Sigrún Gylfadóttir
Tímabil: 23. ágúst - 25. nóvemberMarkmið:
Nemandi taki þátt í æfingum, með og án áhalda, sem tengja saman mismunandi sundhreyfingar og taki einnig þátt í ólíkum sundleikjum sem krefjast athygli, hlustunar, samvinnu og samhæfingar. Að nemandi geti kafað eftir hlut, kasti björgunarhring og dragi samnemanda sinn að landi. Er þetta liður í björgunarþætti. Mikilvægt er að nemandi fái jákvæða upplifun í kennslustundum og njóti þess að sækja sundtíma.
Leiðir:
Kennari fylgir nemendum í grynnri enda laugar. Kennari er á bakka og stjórnar æfingum og leikjum.
Námsgögn:
Bækur og ljósrit í eigu kennara. Korkur og ýmis smááhöld.
Helstu viðfangsefni eru:
Handa- og fótatök í bringusundi, skólabaksund, skriðsund, baksund, köfun og leikir.
Námsmat:
Próf:
- 12 m bringusund.
- 12 m skólabaksund með eða án hjálpartækja.
- 8 m skriðsundfótatök með andlit í kafi og arma teygða fram.
- 6 m baksund með eða án hjálpartækja.
- Köfun eftir hlut á 1 - 1,5 m dýpi.
Námsmat byggist á frammistöðu í prófi. Nemandi fær umsögnina lokið eða ólokið.
Sundfatnaður:
Áríðandi er að nemendur mæti í sundfötum sem gott er að synda og hreyfa sig í. Æskilegasti fatnaður er sundskýla og sundbolur ekki sundbuxur eða bikiní. Annar útbúnaður er handklæði, hárbursti og ef þurfa þykir sundhetta og /eða sundgleraugu.















