Valgreinar 2011-2012
BÓKFÆRSLA
Markmið:
- Að nemendur geri sér grein fyrir hugtökunum gjöld, tekjur, eignir og skuldir.
- Að nemendur kynnist almennum færslum í dagbók.
- Að nemendur öðlist einhvern skilning á uppgjöri.
- Að nemendur geti sett fram einfaldan efnahags- og rekstrarreikning.
Námslýsing:
Fjallað er um grundvallaratriði bókhalds, dagbókarfærslur og reikningsuppgjör. Mikil áhersla er lögð á vönduð vinnubrögð nemenda, nákvæmni og frágang. Kennslugögn:
Kennslubók í bókhaldi fyrir grunnskóla, höf. Sigurjón Gunnarsson Námsmat 3
Haustönn: Umsagnir. Vetrarönn: Próf 60%, verkefni og tímavinna 25%, heimavinna 15%. Vorönn: Próf 60%, verkefni og tímavinna 25%, heimavinna 15%.
Kennari: Guðný Sigurjónsdóttir
ENSKA - ENS103
Áfangalýsing: Undirstöðuatriði enskrar málfræði rifjuð upp, sérstaklega þau atriði sem reynast íslenskum nemendum erfið. Áhersla er lögð á vandlegan lestur texta til þess að byggja upp virkan og hagnýtan orðaforða. Auk þess lesa nemendur bókmenntatexta og texta almenns eðlis. Markvissar hlustunaræfingar notaðar til þess að þjálfa skilning á töluðu máli. Nemendur þjálfaðir í að tjá sig með viðeigandi orðalagi um almen efni á ensku. Ritun er þjálfuð með fjölbreyttum æfingum og áhersla lögð á að skrifa skipulegan texta og skipta í efnisgreinar. Þjálfun í notkun orðabóka.
Markmið:
Nemandi:
- Geti skilið venjulegan lestexta af ýmsu tagi.
- Skilji skýrt talað efni sem ekki er endilega ætlað enskukennslu (raunefni, nytjatexta).
- Geti talað um almenn efni og tjáð sig með viðeigandi orðalagi.
- Geti tjáð sig skriflega á skipulegan hátt með markvissri notkun orðaforða.
Kennari: Ásdís Óskarsdóttir
FÉLAGSMÁLAFRÆÐI
Fjallað er um lýðræði í tómstunda- og félagsstarfi. Nemendur eru þjálfaðir í að skipuleggja og framkvæma viðburði á vegum félagsmiðstöðva. Fjallað verður um fundarsköp og fundarstjórn. Nemendur fá þjálfun í að koma fram og tjá sig í ræðu og riti. Fjallað verður um unglingamenningu og aðstæður barna- og unglinga á Íslandi til tómstundaiðkunar.
Unnið verður með samskipti, sjálfsmynd og forvarnarverkefni gegn einelti. Nemendur í félagsmálafræði taka þátt í að skipuleggja félagsstarf vetrarins í samvinnu við nemendaráð og starfsmenn félagsmiðstöðvarinnar. Nemendur í félagsmálafræði munu skiptast á að bera ábyrgð á skemmtunum og öðrum uppákomum. Það er einnig hlutverk nemenda í félagsmálafræði að virkja sem flesta unglinga til starfa. Unglingalýðræði skal í hávegum haft, en það er leið 4
unglinganna til að tryggja áhrif, það er að efla virkni þeirra, þátttöku og ábyrgð á starfinu.
Unglingalýðræði er svar við ábyrgðar- og áhrifaleysi unglinga í nútíma samfélagi. Það byggir á þeirri forsendu að hin óvirku hlutverk sem unglingar hafa fengið í dag samsvari ekki þroska þeirra og getu. Í stað þess að vera óvirkir þiggjendur þá verði unglingarnir virkir þátttakendur í stjórnun og skipulagi sinna mála og taka ákvarðanir jafnt sem ábyrgð.
Stefnt er að því að:
Unglingar þroskist tilfinninga- og félagslega.
Sjálfsmyndin styrkist.
Nemendur geti tjáð skoðanir sínar og tilfinningar með jákvæðum hætti og unnið með öðrum að þroskandi viðfangsefnum.
Nemendur verði hæfari til að lifa og starfa í lýðræðisþjóðfélagi.
Kennari: Halldór Hlöðversson
HEIMILISFRÆÐI
Kennari: Ragna Sigurðardóttir
Markmið:
Að nemendur:
- ţjálfist í að setja saman máltíðir og fylgja manneldismarkmiðum
- ţjálfist í að matreiða fjölbreyttan og góðan mat samkvæmt manneldismarkmiðum
- tileinki sér hreinlæti í verki við heimilisstörf
- auki skilning sinn á hlutverki heimilisins
- auki þekkingu sína og leikni í heimilisstörfum
- auki skilning sinn og áhuga á tengslum hollustu og
heilbrigði - efli skilning sinn á gildi góðrar vinnutækni
- verði sjálfstæðari og leiknari í samstarfi og öðlist aukna samábyrgð .
Námsþættir:
Matreiðsla og framreiðsla: Grunnaðferðir í matreiðslu algengra fæðutegunda með hliðsjón af hollustugildi. Bakstur (gerbakstur, þeytt, hrært og hnoðað deig), vinnuhagræðing, val áhalda og tækja við matreiðslustörf. Hreinlæti:Ţ.e. matvælahreinlæti, uppþvottur, hreinsun áhalda og tækja, hreingerning í eldhúsi o.fl.
Námsefni:
Heimilisfræði II, Næringarfræði (Þrír pistlar um næringarfræði) eftir Brynhildi Briem, Heimilisfræði fyrir unglingastig 8 (Námsgagnastofnun) ljósritað efni.
Námsmat:
Verkleg próf 30%. Vinnusemi og mæting 70%.
ÍÞRÓTTIR OG ÚTIVIST
Kennari: Ragnar H. Róbertsson
Markmið:
Að nemendur:
- fái tækifæri til að kynnast og stunda þolþjálfun, styrktarþjálfun og útivist
- skynji mikilvægi þess að hreyfa sig reglulega
- átti sig á að í nánasta umhverfi eru ýmis tækifæri til íþróttaiðkunar og útivistar
- fái innsýn inn í heim útivistarmannsins
Skipulag náms:
Náminu verður skipt upp í þrjár lotur sem hver um sig er 24 kennslustundir
Haustlota; þolþjálfun
- ţríþraut - hjóla, synda og hlaupa
- fræðsla um þolþjálfun
- hjólaferðalag út fyrir bæinn einn laugardag í september
Vetrarlota; styrktarþjálfun
- stöðvaþjálfun, þrautabraut, skólahreysti og yoga
- fræðsla um styrktarþjálfun
- heimsókn í líkamsræktarstöð
Tímarnir hefjast stundvíslega klukkan 7:00 æskilegast er að nemendur mæti 5. mínútum fyrr. Tímarnir eru 50 mínútur og hafa nemendur þá 10 mínútur til að fara í sturtu og koma sér í tíma. Boðið verður upp á rútu frá sundlaug Kópavogs. Gott er að hafa ávexti og/eða vatnsbrúsa með sér.
|
DAGUR |
HVAÐ ER GERT |
HVAR |
|
21/2 mánudagur |
Umræður, leikir , slökun. |
Kópavogsskóli |
|
23/2 miðvikudagur |
Stöðvaþjálfun |
Kópavogsskóli |
|
02/3 miðvikudagur |
Stöðvaþjálfun |
Kópavogsskóli |
|
04/3 föstudagur |
Yoga |
Kópavogsskóli |
|
07/3 mánudagur |
Stöðvaþjálfun |
Kópavogsskóli |
|
09/3 miðvikudagur |
Stöðvaþjálfun |
Kópavogsskóli |
|
11/3 föstudagur |
Vatnsleikfimi |
Kópavogsskóli |
|
14/3 mánudagur |
Yoga |
Sundlaug Kópavogs |
|
16/3 miðvikudagur |
Actic, tækjasalur |
Sundlaug Kópavogs |
Vorlota; útivist
- heimsóknir frá/til björgunarsveit og útivistarfélög
- útivist í Bláfjöllum t.d. skíði, gönguferðir, hellaskoðun
- fjallganga t.d. gengið á Esjuna
- stefnt verður að því að fara í ferðalag með hópinn einn laugardag í maí og jafnvel verður gist eina nótt
- fræðsla um flest sem tengist útivist
Námsmat:
Áfanginn er próflaus. Virkni í tímum metin, hugarfar gagnvart viðfangsefninu, færni í að setja sér markmið og vilji til að ná settu marki. Einnig í er metinn þroski nemenda til að vinna saman í hóp t.d. hjálpsemi og virðing gagnvart sjálfum sér og öðrum.
Nemendur þurfa að:
Hafa gaman af að hreyfa sig Vera tilbúnir til að takast á við ýmis erfið líkamleg verkefni í íslensku veðri Hafa aðgang að reiðhjóli Eiga góða skó og hlífðarfatnað til að geta hreyft sig úti í íslenskri náttúru Hafa aðgang að bakpoka Geta mætt í þetta fag fyrir utan hefðbundinn kennslutíma.
Kennarar: Ragnar H. Róbertsson og Ásta Sigrún Gylfadóttir
MYNDMENNT
Markmið: Að nemendur kynnist ýmsum aðferðum í listsköpun og verði fær um að beita þeim. Skipulag náms: Boðið upp á þrjú ,,þemu" eitt á hveri önn
Grafik, dúkrista - svart/hvít - lituð, pappaþrykk, cartonþrykk, monoþrykk + handlituð carbon þrykk
Mótun, grunnur í leitmótun, uppbygging á verki m. t.d. pylsuaðferð, plötuaðferð, fingramótun og blandaðar aðferðir
Málun, akrílmálun, vatnslitun, blönduð tækni
Námsmat: Símat á verkum nemenda yfir hverja önn.
Heimanám: Nem. vinna skyssur heima og aðrar æfingar eftir því sem við á hverri önn.
Kennari: Hauður Kristjánsdóttir
SKÁK
Í skákvali verða kynntir ýmsir þættir skákarinnar; byrjanir, miðtafl, endatafl, skákþrautir og saga skákarinnar, einkum síðastliðin 150 ár. Hver tími mun byrja á einhverjum þessara þátta en síðan verður teflt og þá venjulega gengið út frá þeim atriðum sem fjallað hefur verið um í upphafi hvers tíma.
Kennari: Sigurður Þorsteinsson
SKÓLABLAÐ
Valgreinin skólablað er í þróun en leitast verður við að æfa nemendur í því að vinna að skólablaði og vinna efni til birtingar á heimasíðu skólans. Nemendur vinna ýmsar fréttir úr skólastarfinu, taka viðtöl við ýmsa aðila og vinna úr þeim.
*Gefið verður út fréttabréf nokkrum sinnum yfir skólaárið.
*Unnið verður að útgáfu Árshátíðarblaðs fyrir árshátíð skólans.
*Stefnt er að heimsóknum á fjölmiðla.
Kennarar: Signý H. Helgadóttir og Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir
STUTTMYNDAGERÐ
Kennari: Marteinn Sigurgeirsson
Hugsað sem námskeið en leiðbeinandi hefur ekki verið ráðinn á þessu stigi málsins. Margir nemendur hafa verið að gera stuttmyndir og hafa óskað eftir slíku vali til að dýpka þekkingu sína og auka færni.
STÆRÐFRÆÐIGRUNNUR
Kennari: Guðný Sigurjónsdóttir
Í þessum áfanga er markmiðið að rifja upp atriði úr námsefni fyrri ára. Áhersla verður lögð á námsefni úr 7. og 8. bekk og aðferðir skoðaðar frá grunni. Reynt verður að byggja góðan grunn á stærðfræðiþekkingu sem nemendur geti byggt áframhaldandi nám á. Fyrirhugað er að skipta hópnum í tvo hópa, fer eftir fjölda þeirra sem velja.
Kennslugögn: Stuðst verður við námsbækur í stærðfræði fyrir unglingastig, ásamt því verða verkefni frá kennara og kennsluvefir notaðir.
Námsmat: Nemendur taka ekki próf í áfanganum en ýmis verkefni og verkefnaskil verða metin til einkunnar.
TEXTÍL
Vélsaumsverkefni þar sem saumaðar eru flíkur sem nemendur útfæra. Að auki er kennt prjón, hekl og endurvinnsla.
Markmið:
Að nemandinn verði fær um að:
- beita helstu áhöldum, verkfærum og tækjum sem notuð eru við textílvinnu svo sem vélsaum, útsaum, tauþrykk og prjón.
- skipuleggja eigið vinnuferli. þ.e. gera lauslega uppdrætti/skissu að verkefni.
- nýta sér sniðblöð og handbækur við hönnun og útfærslu eigin hugmynda.
- að þroska hæfileikann til að vinna hugmyndir sínar á mismunandi hátt í ólík efni og fá þannig útrás fyrir sköpunarþörf sína.
- Kennarinn sýnir nemendum hentugar vinnuaðferðir auk þess sem unnið er eftir vinnulýsingum úr bókum og blöðum. Nemendur eru hvattir til að hanna og skreyta verkefni sjálfir eftir eigin hugmyndum.
Kennari: Arna Vignisdóttir















