Beint á leiđarkerfi vefsins

Dćgradvöl

Foreldrar 6, 7, 8 og 9 ára barna eiga kost á gæslu fyrir börn sín í Dægradvöl skólans gegn mánaðarlegu gjaldi. Dægradvöl starfar mánudaga - fimmtudaga frá kl. 13:15 - 17:00 en föstudaga frá kl. 12:10 - 17:00

Starfsmenn Dægradvalarinnar eru Gunnlaug Ingvadóttir, forstöðumaður, Halla Guðrún Ingibergsdóttir, Verica Vasovic, Hildur Elfa Björnsdóttir og Unnur Garðarsdóttir. 

Dægradvöl en er lokuð alla leyfisdaga s.s. í jólaleyfi, páskaleyfi og vetrarleyfi.

Dægradvöl, beinn sími 570-4970.

Náist ekki samband við það númer eru mestar líkur á að allir séu úti og þá er hægt að hringja í 895-5433.

Dægradvöl Kópavogsskóla hefur aðstöðu í gamalli húsvarðaríbúð í elsta hluta skólans. Þar hafa verið gerðar miklar endurbætur og húsnæðið nú viðunandi fyrir starfsemina. Að auki fer starfsemin fram í tveimur kennslustofum auk gangrýmis sem er töluvert stórt. Kennarar Kópavogsskóla sjá um fimm klukkustunda skipulagt starf í hverri viku auk kórstarfs sem foreldrar skrá nemendur í. Í kennaratímum er dægradvalarbörnum boðið upp á skákkennslu, tölvuvinnu, textílvinnu og heimanám auk frjásra leiktíma. Samstarf er við HK um blaktíma og við Dansskóla Sigurðar Hákonarsonar um danskennslu. Í báðum tilviku skrá foreldrar börn sín í þá tíma hjá viðkomandi aðila.

Starfsreglur fyrir dægradvöl við grunnskóla Kópavogs

Umsókn um Dægradvöl


Uppsögn-breytingar á vistun

Niðurstöður könnunar v/Dægradvalar


Viđburđir

 «Febrúar 2012» 
sunmánţrimiđfimföslau
   1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829   

Heimili og skóliSkólamatur6H

Slóđin ţín:

Dćgradvöl

Mynd