Skipulag foreldrastarfs
Skipulag foreldrastarfsins
1. Bekkjarstjórnir foreldra
Á skólakynningarfundum í september velja foreldrar nemenda í hverri bekkjardeild þriggja til fjögurra manna bekkjarstjórnir fyrir hvern bekk til eins árs í senn. Stjórnin skiptir með sér verkum. Foreldrar ákveða hvort varamenn skuli kosnir.
Verksvið bekkjarstjórnar foreldra er málefni hlutaðeigandi bekkjar s.s. :
- - Skipuleggja framkvæmd á 3-4 viðburðum þar sem nemendur í bekknum eða árgangnum gera eitthvað saman yfir veturinn.
- - Koma upplýsingum um málefni sem varða bekkinn til stjórnar foreldrafélagsins og til yfirstjórnar skólans, t.d. á samráðsfundum.
- - Sjá til þess að manna foreldrarölt bekkjarins
Bekkjarstjórn starfar með umsjónakennara eftir aðstæðum og að teknu tilliti til kjarasamninga og starfsskyldna kennara.
2. Samráð bekkjarstjórna
Formenn bekkjarstjórna mynda ásamt stjórn foreldrafélagsins svonefnt "Samráð bekkjarstjórna". Samráðið skal koma saman eftir þörfum á starfstíma skóla, þó ekki sjaldnar en tvisvar á hverju skólaári, ásamt stjórn Foreldrafélagsins, skólastjórnendum og eftir atvikum skólaráði til að samræma störf bekkjarstjórnanna og fá yfirsýn yfir foreldrastarfið í skólanum. Stjórn Foreldrafélagsins er jafnframt stjórn samráðsins. Framkvæmdin hefur verið sú að samráðið hefur fundað 5-6 sinnum. Þrír af þeim fundum hafa verið helgaðir hverju námsstigi skólans fyrir sig þ.e. yngstastigi, miðstigi og efstastigi.
3. Foreldrafélag Kópavogsskóla
Markmið félagsins er að stuðla velferð og vellíðan allra barna í skólanum, að kennsla og tómstundastarf í skólanum sé eins og best verður á kosið og efla samvinnu heimilis og skóla.
Til að ná þessum markmiðum hyggst félagið m.a. :
- efla samstarf foreldra og starfsfólks skólans,
- standa fyrir fræðslu og upplýsingamiðlun til foreldra og eftir atvikum starfsfólks skólans eftir því sem tilefni gefst til og kostur er á,
- styðja við starfsemi skólans með því að kynna sér kennsluhætti og uppeldismarkmið skólans, fylgjast með skólastarfinu og koma á framfæri rökstuddum óskum um breytingar og styðja við framkvæmd þeirra.
- styðja eftir megni félags- og tómstundastarf nemenda.
Stjórn foreldrafélagsins er kosin á aðalfundi félagsins sem haldinn skal að vori ár hvert, eigi síðar 15. maí. Formaður er kosinn sérstaklega auk fimm meðstjórnenda.
4. Sérstakar nefndir.
Á vegum foreldrafélagsins starfa nokkrar nefndir að einstökum málum eða atburðum. Um þær vísast til bæklings foreldrafélagsins. Allir geta starfað í þessum nefndum en á skólakynningarfundum í september geta foreldrar skráð sig í þær. Foreldrum geta einnig haft samband við fulltrúa foreldrafélagsins til að skrá sig í þessar nefndir.
5. Skólaráð Kópavogsskóla
Í skólanum starfar skólaráð, sbr. 8. gr. laga nr. 91/2001. Fulltrúar foreldra í ráðinu, sem eru tveir, eru kosnir til tveggja ára á aðalfundi foreldrafélagsins. Kosið er um einn fulltrúa á hverju ári auk varamanns til árs í senn. Nánar um foreldraráðið vísast til upplýsinga um það á heimasíðu skólans.















