Beint á leiđarkerfi vefsins

Fréttir

2.2.2012

3. bekkur í vettvangsferđir

vettvangsferðVikan 23.-27. janúar var fremur viðburðarík hjá nemendum í 3. bekk. Þriðjudaginn 24. janúar fóru þeir á Þjóðminjasafnið að skoða sýninguna Tíminn og skórnir. Sú ferð var mjög fróðleg og áhugaverð í alla staði. Fimmtudaginn 26. janúar var krökkunum boðið í Mjólkursamsöluna. Þar fengu þeir að sjá framleiðsluferli mjólkurvara og fengu síðan að smakka mjólk og íspinna. Ferðin gekk mjög vel og var börnunum hrósað af starfsfólki Mjólkursamsölunnar.

27.1.2012

4. bekkur og saga mannkyns

Saga mannkynsUndanfarið hafa nemendur í 4. bekk unnið með sögu mannkyns. Unnið hefur verið með verkefnið inni í bekk, í myndmennt, textíl, tónmennt og á skólasafni (Fjölfærni). Nemendur hafa safnað fróðleik og skoðað bækur og myndir. Einnig hefur verið spjallað, skrifað, teiknað, sungið og þæft. Í gærmorgun  héldu nemendur sýningu og komu foreldrar í heimsókn í skólann til að skoða afraksturinn. Boðið var upp á heitt kakó og kex og urðu viðstaddir margs fróðari. 

27.1.2012

Skákdagurinn 2012

Skákdagurinn 2012Fimmtudaginn 26. janúar var Skákdagurinn 2012 haldinn um allt land. Teflt var á ýmsum stöðum á landinu og einnig hér í skólanum. Töfl voru sett upp í sal skólans og komu margir hópar og tefldu. Sumir eru alvanir skákmenn, aðrir voru að tefla í fyrsta sinn. Gaman var að sjá hve áhugasamir nemendur voru og þeir vönu aðstoðuðu byrjendur.

25.1.2012

Óveđursviđbrögđ

Ágætt er að rifja upp reglur um óveðursviðbrögð sem er að finna undir tengli til hægri á síðunni. Til hægðarauka eru helstu atriðin birt hér: 

1. Skóla er aldrei lokað í óveðri nema fyrir tilstilli almannavarnanefndar. Foreldrar verða að geta treyst því að skóli sé opinn hafi almannavarnir eða skólaskrifstofa ekki gefið út sérstaka tilkynningu um annað.

2. Ætlast er til að foreldrar meti sjálfir hvort þeir senda börn sín í skóla þegar óveður geisar. Sé þeim haldið heima þarf að tilkynna það til skóla eins og önnur forföll. Séu börnin hins vegar send í skóla er þess vænst af foreldrum að þeir fylgi börnum sínum í skólann og sæki þau að loknum skóladegi.

25.1.2012

Boot camp

Boot campÍ janúar hefur Alda Sverrisdótti þjálfari hjá Bootcamp verið með fræðslu fyrir nemendur á unglingastigi.  Í fyrsta tíma fjallaði Alda um mikilvægi hreyfingar og að allir gætu fundið eitthvað við sitt hæfi einnig talaði hún um næringu og svefn.  Í tíma tvö fjallaði hún um hugarfar, mikilvægi þess að setja sér markmið og gefast ekki upp.  Í þessum tímum var hún með margar góðar myndir og myndskeið sem gerðu tímana enn skemmtilegri. Í þriðja tíma hitti Alda nemendur í íþróttasal þar sem þeir hlupu og gerðu ýmsar líkamsæfingar af áhuga og gleði undir dyggri stjórn hennar. 

25.1.2012

Stćrđfrćđikeppni

StærðfræðikeppniÍ dag tóku nemendur í 9-S og 9-N þátt í stærðfræðikeppninni Best. Keppnin er hluti af Norrænni bekkjarkeppni í stærðfræði. Keppnin fer fram í nokkrum lotum. Nemendurnir tóku þátt í lotu 1 fyrir jól og stóðu sig með sóma. Í dag voru nemendur að ljúka lotu 2 og verður gaman að sjá hvernig það gekk. Keppnin er tvíþætt, fyrri hlutinn byggist á dæmum og þrautum sem krakkarnir vinna sjálfir og senda inn svör við. Þeir bekkir sem skora flestu stigin í þessum lotum senda síðan fulltrúa úr bekknum, tvær stelpur og tvo stráka til að halda áfram. Seinni hlutinn er bekkjarverkefni sem bekkurinn vinnur í sameiningu og sendir inn. Í ár er þema bekkjarverkefnisins Stærðfræði í hvers kyns mynstrum.

25.1.2012

Vettvangsferđ í Svansprent

SvansprentNemendur í 9. og 10. bekk sem eru í valhópnum Skólablað fóru í vettvangsferð í Svansprent á dögunum. Nemendur kynntu sér ferlið við gerð blaðs. Krakkarnir stefna að því að gefa út veglegt skólablað fyrir páska.

20.1.2012

Stafainnlögn í 1. bekk

1. bekkur nornagríma1. bekkur var að vinna með stafinn N, n í vikunni. Af því tilefni ákváðu kennarar og nemendur að búa til nornagrímur. Grímurnar heppnuðust vel og verkefnið var skemmtilegt og heppnaðist afar vel. Hér má sjá nemendur með grímurnar sínar.

Fréttir - á RSS-formi

Viđburđir

 «Febrúar 2012» 
sunmánţrimiđfimföslau
   1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829   

6HSkólamaturHeimili og skóli

Slóđin ţín:

Forsíđa

Mynd