Fréttir
15.12.2007
Myndir frá ţemadögum
Nú eru komnar inn fleiri myndir frá ţemadögum. Hér má sjá sýnishorn af ţeim en ţćr eru af nemendum í 3. og 4. bekk, sem unnu saman ţessa daga, og hluta af afrakstri vinnu ţeirra. Hjá ţeim var mikiđ föndrađ og mikiđ fjör. Gerđir voru jólasveinar af ýmsum stćrđum og gerđum ásamt öskjum og kortum. Öllum var síđan bođiđ á "kaffihús" sem sett var upp í einni stofunni og vakti ţađ mikla gleđi.
14.12.2007
Jólatími í heimilisfrćđi
Jólatími var hjá 9. bekkingum í heimilisfrćđivali í síđasta tíma fyrir jól. Á matseđlinum voru í ađalrétt fylltar kjúklingabringur međ piparsósu, salati og kartöflubátum og í eftirrétt var heimalagađur (skólalagađur!) súkkulađiís međ heitri súkkulađisósu. Góđur grunnur fyrir komandi daga.
Einnig voru 8. bekkingar í góđu jólaskapi og hér má sjá myndir frá heimilisfrćđitímum ţeirra.
14.12.2007
Eldri og yngri borgarar
14.12.2007
Piparkökur í 2. bekk
11.12.2007
Tryggđatröll
Mánudaginn 10. desember kom hingađ í skólann Steinar Berg. Hann kynnti nýja bók sína sem nefnist Tryggđatröll og las upp úr henni fyrir nemendur í 2.- 5. bekk. Brian Pilkington myndskreytti bókina.
6.12.2007
Ţemadagar um jólin, ţriđji dagur
Í dag, fimmtudag, var ţriđji og síđasti ţemadagur. Verkefnin af svipuđu tagi og fyrri dagana en ađ sjálfsögđu fóru nemendur á milli verkefnahópa og ţví eitthvađ nýtt fyrir ţá á hverjum degi. Eldri borgarar komu í heimsókn og frćddu nemendur á miđstigi um jólahald fyrr á tímum. Fréttanefnd var starfandi og hér á eftir er afrakstur vinnu ţeirra sem hana skipuđu. Á morgun eru kirkjuferđir, sbr. tilkynningu hér á síđunni.
5.12.2007
Ţemadagar um jólin, annar dagur
Á öđrum degi ţemaverkefna var starfiđ í svipuđum dúr og fyrsta daginn. Föndrađ, bakađ, skreytt, dansađ, fariđ á bćjarrölt í Reykjavík og Hafnarfirđi, slakađ á í jólajóga og ćft fyrir litlu jól. Nemendur á miđstigi fóru ađ sjá leikritiđ María, asninn og gjaldkerarnir í Borgarleikhúsinu. Ţar er fjallađ um krakka í unglingadeild sem fengiđ er ţađ verkefni ađ setja upp sjálfan helgileikinn. Ekki líst ţeim of vel á ţá hugmynd og ekki batnar ţađ ţegar nokkur börn úr barnadeildinni eru send til ađ taka ţátt í uppfćrslunni međ ţeim.
4.12.2007
Ţemadagar um jólin, fyrsti dagur
Ţessa dagana er unniđ ađ ţemaverkefni hér í Kópavogsskóla. Efniđ er jólin og ýmislegt sem ţeim tilheyrir svo sem föndur, bakstur, skreytingar, dans, leikhúsferđ og fleira. Hér á síđunni má sjá afrakstur fréttahóps ţriđjudagsins 4. desember en í hópnum voru Darri og Haukur úr 8. bekk Ţ, Róbert og Snorri úr 9. A og Halla, Sunna, Sigrún og Sigríđur M. úr 9. F.
30.11.2007
Heimsókn
Miđvikudaginn 21. nóvember fengu ţeir sem eru í valfaginu “bíllinn” heimsókn. Ţađ voru Benni Kalli og Reynir. Reynir kom frá VÍS en Benni Kalli hafđi orđiđ fyrir hrćđilegu slysi. Hann var á mótorhjóli í spyrnu á Akranesi á 200 km/klst. og lenti í holu. Hann kastađist 65 metra fram fyrir hjóliđ. Hann hlaut 47 beinbrot og ţar af 17 opin brot. Honum var vart hugađ líf en hann náđi góđum bata og kom og sagđi okkur frá slysinu. Ţađ ţurfti ađ saga af honum fótinn vegna sýkingar í beininu.
30.11.2007
3. bekkir fengu slökkviliđiđ í heimsókn
30.11.2007
Skólaţing, heimsókn 10. bekkinga
Af hálfu Alţingis hefur veriđ efnt til ţeirrar nýbreytni ađ nemendum 8., 9. og 10. bekkjar er bođiđ upp á ađ taka ţátt í Skólaţingi, kennsluveri Alţingis. Ţar gefst nemendum kostur á ađ fara í hlutverkaleik međ ţví ađ setja sig í spor ţingmanna. Fjallađ er um mál sem eru tilbúin fyrirfram. Reglum um starfshćtti Alţingis er fylgt í stórum dráttum, mál lögđ fram, haldnir ţingfundir, nefndafundir og ţingflokksfundir.
22.11.2007
Forvarnardagur í 9. bekk
Miđvikudaginn 21. nóvember var Forvarnardagur í öllum grunnskólum landsins. Hann er haldinn ađ frumkvćđi forseta Íslands í samvinnu viđ sveitarfélög og íţrótta- og ćskulýđsfélög. Ţar voru kynnt nokkur ráđ sem geta forđađ börnum og unglingum frá fíkniefnum. Foreldrar koma einnig ađ ţessum degi og var fulltrúi ţeirra hjá okkur Ívar Pálsson.
22.11.2007
Rýmingarćfing
Fyrir nokkrum vikum var rýmingarćfing hér í Kópavogsskóla. Sú ćfing var undirbúin og allir vissu ađ hún yrđi á tilteknum tíma. Ţá var ákveđiđ ađ halda ađra ćfingu og ţá án ţess ađ nemendur og starfsfólk hefđu vitneskju um hana fyrirfram. Ćfingin var í dag kl. 10:00 og gekk mjög vel.
21.11.2007
Styrkur til skólastarfs
Ţriđjudaginn 20. nóvember voru undirritađir hér í skólanum samningar um styrki til skólastarfs nćstu 2 til 3 ár. Forsaga ţess máls er sú ađ áriđ 2006 undirrituđu Foreldraráđ Kópavogsskóla og skólastjóri sérstakan samning viđ Kópavogsbć um aukiđ hlutverk foreldraráđsins. Í samningnum er ráđinu m.a. veitt heimild til ađ leita til sérstakra bakhjarla í atvinnulífinu til styrktar ţeim áherslum sem ţađ kýs ađ leggja í skólastarfinu í góđri samvinnu viđ skólastjóra hverju sinni.
21.11.2007
2-H og 2-L í heimsókn hjá lögreglunni
Ţriđjudaginn 20. nóvember fórum viđ í 2-H og 2-L í heimsókn á lögreglustöđina ţar sem Anna Lísa tók á móti okkur og sýndi okkur löggubílana og önnur tćki og tól sem löggurnar ţurfa ađ nota í sinni vinnu. Ađ lokum fengu allir endurskinsmerki. Ţetta var langur göngutúr og allir komu ţreyttir en glađir heim.
19.11.2007
Dagur íslenskrar tungu og Fífilbrekkuhópurinn
Föstudaginn 16. nóvember var dagskrá í Kjarnanum í tilefni af Degi íslenskrar tungu. Ţann dag voru liđin 200 ár frá fćđingu Jónasar Hallgrímssonar, listaskáldsins góđa, og ţví var dagurinn helgađur minningu hans. Stiklađ var á stóru í lífsferli hans frá Hrauni í Öxnadal til Kaupmannahafnar. Nemendur úr 10. bekk lásu ljóđ Jónasar og sýnd var stuttmynd gerđ af nemendum í 10. bekk eftir sögu hans - Ţegar drottningin á Englandi fór í orlof sitt. Ađ lokum voru sungin nokkur lög viđ texta Jónasar.
Mánudaginn 19. nóvember fengum viđ góđa gesti í heimsókn, Fífilbrekkuhópinn, en hann skipa Hulda Björk Garđarsdóttir, sópransöngvari Eyjólfur Eyjólfsson, tenórsöngvari, Sigrún Eđvaldsdóttir, fiđluleikari, Sigurđur Ingvi Snorrason, klarinettuleikari, Anna Guđný Guđmundsdóttir, píanóleikari og Hávarđur Tryggvason, kontrabassaleikari. Ţau fluttu texta Jónasar Hallgrímssonar viđ tónlist Atla Heimis Sveinssonar. Ađ ţessu sinni nutu nemendur 7. - 10. bekkjar góđs af heimsókninni sem er á vegum verkefnisins Tónlist fyrir alla.
16.11.2007
Bangsadagur hjá 3-K og 3-V
15.11.2007
Viđeyjarferđ 9. bekkjar
Hópur nemenda og foreldra í 9. bekk fór í ferđ til Viđeyjar miđvikudaginn 24. október. Móttaka var í kirkjunni og hlýtt á sögu Viđeyjar. Síđan var grillađ og fylgst međ ţegar kveikt var á friđarsúlunni. Allir komu ánćgđir til lands um kl. 21.00. Frábćr ferđ í samstarfi bekkjastjórna og umsjónarkennara.
12.11.2007
Skáld í skólum
Undanfariđ höfum viđ fengiđ skáld í heimsókn í skólann. Gerđur Kristný og Ţórarinn Eldjárn komu í heimsókn á yngsta stig međ Sögu- og ljóđafléttu. Nokkrum dögum síđar komu Tveir ógeđslega frábćrir....ţeir Einar Már Guđmundsson og Einar Kárason í heimsókn til unglinganna. Ađ síđustu komu ţćr Kristín Steinsdóttir og Brynhildur Ţórarinsdóttir og kynntu Víkinga, ambáttir, kempur og konunga á miđstigi. Bćđi nemendur og kennarar skemmtu sér vel.
Skođa myndir á myndasíđu.
8.11.2007
Á sjó
Mánudaginn 5. nóvember og ţriđjudaginn 6. nóvember var 10. bekkingum bođiđ í sjóferđ á skólaskipinu Dröfn. Nemendum var skipt í ţrjá hópa og međ hverjum hópi fóru tveir kennarar. Ferđin er skipulögđ af Fiskifélagi Íslands og ţarna fá nemendur ađ kynnast sjávarútveginum og vinnunni um borđ í fiskiskipum.
17.10.2007
Skemmtilegur fimmtudagur hjá 3. bekk.
Viđ gengum niđur í fjöru í yndislegu veđri. Ţar fundum viđ skeljar, kuđunga og ýmis fjörudýr sem viđ söfnuđum og skođuđum.
Ţegar viđ komum í skólann aftur var dótatími og ţá spiluđum viđ og lékum okkur saman. Skođa myndir
12.10.2007
Viđurkenning frá UNICEF
Í morgun kom Bergsteinn Jónsson, starfsmađur hjá UNICEF, og afhenti Kópavogsskóla viđurkenningu fyrir framlag nemenda í UNICEF-hreyfingunni sl. vor. Nemendur skólans söfnuđu 446.400 kr. sem fóru til ađstođar börnum á átakasvćđum. Ţađ var viđ hćfi ađ formađur nemendaráđs ásamt öđrum nemendaráđsfulltrúum skólans veitti viđurkenningunni móttöku, en viđurkenningin er í formi innrammađs skjals.
10.10.2007
Gullverđlaun
Um ţessar mundir eru Special Olympics 2007 leikarnir haldnir í Kína, en ţeir voru settir í Shanghai 2. október. Gerpla á 4 fulltrúa á leikunum og einn ţeirra er Jóhann Fannar Kristjánsson nemandi í 7. bekk í Kópavogsskóla. Hann hefur stađiđ sig međ miklum sóma og unniđ tvenn gullverđlaun í fimleikum, fyrir ćfingar á hesti og fyrir gólfćfingar.
5.10.2007
10. bekkir fá heimsókn frá AFS
10. bekkir B og M fengu í lífsleiknitíma heimsókn frá AFS, sem eru sjálfbođa-og skiptinemasamtök. Markmiđ samtakanna er ađ auka kynni og skilning á milli ólíkra ţjóđa, međ ţví ađ veita ungmennum á aldrinum 15-18 ára tćkifćri til ađ dvelja í öđru landi. Nemendur voru mjög áhugasamir og spurđu gestina margra spurninga.
5.10.2007
Heimsókn hjá 3-K
5.10.2007
Dótadagur hjá 2. bekk
5.10.2007
Útivistardagur ţann 18. september
26.9.2007
2-H og 2-L í Borgarholti
13.9.2007
Hjólaferđ 10. bekkjar
Dagana 6. og 7. september fór 10. bekkur í tveggja daga hjólaferđ. Ferđin var skipulögđ af bekkjarfulltrúum og fóru 32 nemendur ásamt 16 foreldrum međ í ferđina auk Ragnars íţróttakennara, Bjarka hjólaviđgerđarmanns, Kalla björgunarsveitarmanns og Kristínar Einarsdóttur sem fór međ sem sérstakur fararstjóri. Kristín er frumkvöđull slíkra ferđa í Smáraskóla. Rúta ásamt bílstjóra fylgdi hópnum alla ferđina.
10.9.2007
Breytingar á stjórnunarálmu
Enn er veriđ ađ vinna ađ breytingum á stjórnunarálmu Kópavogsskóla. Viđ erum ţví í sömu ađstöđu og ţegar skólahald hófst í ágúst. Ađalnúmer skólans 570 4960 er virkt og skólastjóri, ađstođarskólastjóri og ritari međ ađsetur í stofu 101. Kennarar, og annađ starfsfólk, eru međ ađstöđu á skólasafni. Nemendur í 10. bekk M eru í stofu 102 en flytja í sína stofu, 221, ađ breytingum loknum.
15.6.2007
UNICEF áheitahreyfingin
Eins og fram kom hér á síđunni 25. maí tóku nemendur Kópavogsskóla, fyrstir nemenda á Íslandi, ţátt í UNICEF-hreyfingunni. Uppgjör er tilbúiđ frá UNICEF og samkvćmt ţví er heildarupphćđ skilađra áheita frá nemendum Kópavogsskóla rúmlega 446 ţúsund krónur.
15.6.2007
Skólaslit
Skólaslit Kópavogsskóla fóru fram föstudaginn 8. júní. Hjá yngsta stigi kl. 9:00, miđstigi kl. 10:00 og 8. og 9. bekk kl. 11:00. Lokaathöfn fór fram kl. 15:00 en ţá var útskrift tíundu bekkinga og formleg skólaslit.
1.6.2007
Vordagar hjá 3-X og 3-Y
Mikiđ hefur veriđ um útiveru hjá ţriđja bekk siđastliđna daga s.s. gönguferđ upp á Víghól, leikiđ á leiksvćđum í nágrenni skólans og gönguferđ niđur í Kópavogsfjöru. Skođa myndir
1.6.2007
Vorferđ 1-H og 1-L
1. júní fór 1. bekkur í vorferđ í Húsdýragarđinn. Viđ byrjuđum á ađ skođa Grasagarđinn og fórum svo yfir í Húsdýragarđinn. Ţar fengum viđ leiđsögn, starfsmađur sagđi okkur frá dýrunum og högum ţeirra. Síđan fengu allir grillađar pylsur í stóra tjaldinu og ađ ţví loknu gengum viđ í Fjölskyldugarđinn ţar sem allir fóru um borđ í víkingaskipiđ. Allir skemmtu sér vel. Skođa myndir
29.5.2007
Val í heimilisfrćđi
Í síđasta heimilisfrćđitíma vetrarins í 9. bekk var haldin skemmtileg veisla. Í ađalrétt var eldađur Doritos kjúklingaréttur og í eftirrétt var lagađur ís og heit súkkulađisósa. Umsjónarkennurunum Signýju og Helgu var bođiđ í mat og voru ţćr mjög ánćgđar međ matinn hjá krökkunum. Skođa myndir
25.5.2007
UNICEF hreyfingin
Nemendur Kópavogsskóla hafa nú, fyrstir nemenda á Íslandi, lokiđ ţátttöku sinni í UNICEF-hreyfingunni. Allt gekk frábćrlega fyrir sig og gleđin skein úr hverju andliti eins og sjá má á myndunum sem fylgja fréttinni. Nćsta verk krakkanna er ađ innheimta áheitin og koma ţeim til Barnahjálpar Sameinuđu ţjóđanna ţar sem peningunum verđur variđ til ađ ađstođa börn í öđrum heimshlutum.
25.5.2007
Gönguferđ
Nemendur í 2. bekk fóru í miđvikudagsgöngutúrinn sinn 23. maí. Ađ ţessu sinni var fariđ á leiksvćđiđ viđ Brćđratungu. Ţar er margt hćgt ađ bralla eins og myndirnar bera međ sér. Skođa myndir
15.5.2007
Fótboltamót
Undanfarin ár hefur veriđ haldiđ fótboltamót fyrir nemendur á miđstigi og fór mótiđ í ár fram í Fífunni mánudaginn 14. maí. Stelpnaliđin voru ţrjú, eitt frá hverjum árgangi, og sigruđu stelpurnar úr 5.-RT. Strákarnir voru međ ţrjú liđ í A-flokki og ţrjú liđ í B-flokki og fóru strákarnir úr 7.-UŢ međ sigur af hólmi í báđum flokkum.
15.5.2007
Skólahljómsveit Kópavogs kynnir sig
27.4.2007
Veiđiferđ í 1. bekk
1. bekkur fór niđur ađ lćk ađ veiđa síli föstudaginn 27. apríl. Ţađ veiddust tvö síli sem fariđ var međ í skólann í fötu og ţau vöktu mikla lukku. Í nćstu viku ćtlum viđ ađ rannsaka sílin betur. Skođa myndir
30.3.2007
Árshátíđir
28.3.2007
Reykjaferđ 7. bekkinga
26.3.2007
Ferđ 10. bekkinga í Vatnaskóg
Laugardaginn 24. mars fóru 10. bekkingar í Vatnaskóg á vegum foreldra. Lagt var af stađ kl. 10:00 í rútu frá Inga, pabba Erlings, 21 nemandi og 4 foreldrar.
Fyrst var keyrt ađ Hvanneyri, kirkjan skođuđ og einnig Landbúnađarsafniđ, traktorar af öllum stćrđum og gerđum, ryđgađur ţúfnabani sem ţótti ţvílík óprýđi ađ smíđa ţurfti hús utanum hann, ullarseliđ ţar sem hćgt er ađ kaupa flest ţađ sem framleitt er úr ull, ásamt tölum úr beinum og fleira.
Ađ lokum var keppt í sveitafitness. Ţađ voru ţrjár stelpur og ţrír strákar sem kepptu í ţví.
26.3.2007
Frábćr árangur
Úrslit í árlegri stćrđfrćđikeppni grunnskólanna í Kópavogi voru kunngjörđ fimmtudaginn 22. mars. Kópavogsskóli náđi ţeim frábćra árangri ađ eiga 4 af 9 vinningshöfum í 1.- 3. sćti. Keppnin fór fram í Menntaskólanum í Kópavogi og kennarar ţar annast fyrirlögn og yfirferđ prófanna. Framkvćmdin er ţeim til sóma í alla stađi og framtakiđ er lyftistöng fyrir stćrđfrćđinám og kennslu.
22.3.2007
Lestrarátak, lestrarsprettur
Undanfariđ hefur stađiđ yfir lestrarátak í yngri deild. Margar bćkur hafa veriđ lesnar og áhugi mikill. Ađ lestrarátakinu loknu verđa afhentar viđurkenningar.
20.3.2007
3. bekkur lćrir um reikistjörnurnar
Undanfarnar vikur hefur 3. bekkur unniđ međ reikistjörnur. Verkefniđ er unniđ í samvinnu viđ skólasafniđ.
19.3.2007
Heimsókn frá Samtökunum 78
Félagar úr Samtökunum 78, félagi homma og lesbía á Íslandi, komu í heimsókn til 9. og 10. bekkinga 14. og 15. mars. Ţau kynntu samtökin og sátu fyrir svörum.
19.3.2007
Frćđsla um fjármál heimilanna
Hin árlega frćđsla frá Ráđgjafastofu um fjármál heimilanna var mánudaginn 12. mars en Kópavogsbćr hefur gert samning viđ stofnunina um fjármálafrćđslu fyrir nemendur.
12.3.2007
Vinasöngur- vinahringur
6.3.2007
Ţemadagar 28. febrúar - 2. mars
31.1.2007
Nýr vefur Kópavogsskóla
Vefur ţessi er nýr vefur Kópavogsskóla en hann er ekki fullfrágenginn. Margt er ţó komiđ inn og ýmsu verđur bćtt viđ á nćstu dögum. Á međan verđur ,,gamla" heimasíđan virk og hćgt er ađ smella á krćkjuna til ađ komast á hana.

























