Fréttir
15.12.2007
Myndir frá ţemadögum
Nú eru komnar inn fleiri myndir frá ţemadögum. Hér má sjá sýnishorn af ţeim en ţćr eru af nemendum í 3. og 4. bekk, sem unnu saman ţessa daga, og hluta af afrakstri vinnu ţeirra. Hjá ţeim var mikiđ föndrađ og mikiđ fjör. Gerđir voru jólasveinar af ýmsum stćrđum og gerđum ásamt öskjum og kortum. Öllum var síđan bođiđ á "kaffihús" sem sett var upp í einni stofunni og vakti ţađ mikla gleđi.
14.12.2007
Jólatími í heimilisfrćđi
Jólatími var hjá 9. bekkingum í heimilisfrćđivali í síđasta tíma fyrir jól. Á matseđlinum voru í ađalrétt fylltar kjúklingabringur međ piparsósu, salati og kartöflubátum og í eftirrétt var heimalagađur (skólalagađur!) súkkulađiís međ heitri súkkulađisósu. Góđur grunnur fyrir komandi daga.
Einnig voru 8. bekkingar í góđu jólaskapi og hér má sjá myndir frá heimilisfrćđitímum ţeirra.
14.12.2007
Eldri og yngri borgarar
14.12.2007
Piparkökur í 2. bekk
11.12.2007
Tryggđatröll
Mánudaginn 10. desember kom hingađ í skólann Steinar Berg. Hann kynnti nýja bók sína sem nefnist Tryggđatröll og las upp úr henni fyrir nemendur í 2.- 5. bekk. Brian Pilkington myndskreytti bókina.
6.12.2007
Ţemadagar um jólin, ţriđji dagur
Í dag, fimmtudag, var ţriđji og síđasti ţemadagur. Verkefnin af svipuđu tagi og fyrri dagana en ađ sjálfsögđu fóru nemendur á milli verkefnahópa og ţví eitthvađ nýtt fyrir ţá á hverjum degi. Eldri borgarar komu í heimsókn og frćddu nemendur á miđstigi um jólahald fyrr á tímum. Fréttanefnd var starfandi og hér á eftir er afrakstur vinnu ţeirra sem hana skipuđu. Á morgun eru kirkjuferđir, sbr. tilkynningu hér á síđunni.
5.12.2007
Ţemadagar um jólin, annar dagur
Á öđrum degi ţemaverkefna var starfiđ í svipuđum dúr og fyrsta daginn. Föndrađ, bakađ, skreytt, dansađ, fariđ á bćjarrölt í Reykjavík og Hafnarfirđi, slakađ á í jólajóga og ćft fyrir litlu jól. Nemendur á miđstigi fóru ađ sjá leikritiđ María, asninn og gjaldkerarnir í Borgarleikhúsinu. Ţar er fjallađ um krakka í unglingadeild sem fengiđ er ţađ verkefni ađ setja upp sjálfan helgileikinn. Ekki líst ţeim of vel á ţá hugmynd og ekki batnar ţađ ţegar nokkur börn úr barnadeildinni eru send til ađ taka ţátt í uppfćrslunni međ ţeim.
4.12.2007
Ţemadagar um jólin, fyrsti dagur
Ţessa dagana er unniđ ađ ţemaverkefni hér í Kópavogsskóla. Efniđ er jólin og ýmislegt sem ţeim tilheyrir svo sem föndur, bakstur, skreytingar, dans, leikhúsferđ og fleira. Hér á síđunni má sjá afrakstur fréttahóps ţriđjudagsins 4. desember en í hópnum voru Darri og Haukur úr 8. bekk Ţ, Róbert og Snorri úr 9. A og Halla, Sunna, Sigrún og Sigríđur M. úr 9. F.


















