Fréttir
19.12.2008
Litlu jólin
Jólaskemmtanir nemenda fóru fram 18. og 19. desember. Að kvöldi 18. desember var skemmtun unglingadeilda. Þar voru margs konar skemmtiatriði sem nemendur höfðu undirbúið. Má þar nefna tvísöng, hljóðfæraleik, frumlega uppsett leikrit og stuttmyndir. Gengið var í kringum jólatré og endað með dansi. Jólaskemmtun yngsta stigs var föstudaginn 19. desember kl. 9:00. Þar spiluðu félagar úr Skólahljómsveit Kópavogs, nemendur 4. bekkjar fluttu helgileik og síðan var gengið í kringum jólatréð. Miðstig var með sína skemmtun kl. 11:00 sama dag. Þar var einnig hljóðfæraleikur Skólahljómsveitar og helgileikur í flutningi 7. bekkjar. Sá hópur gekk einnig í kringum jólatréð og söng af hjartans lyst.
Sjá myndir á myndasíðu.
19.12.2008
Gjábakki
19.12.2008
Heimilisfræðival
18.12.2008
Kirkjuferð á aðventu
15.12.2008
Skákmót
Bekkjamóti Kópavogsskóla í skák er nýlokið. Sex bekkir tóku þátt í keppninni en keppt var á fjórum borðum. Í eldri flokki ( 8. – 10. bekkur ) vann sveit 8. bekkjar með 5 vinninga, í öðru sæti varð sveit 10. bekkjar með 4 ½ vinning og í þriðja sæti sveit 9. bekkjar með 2½ vinning. Í yngri flokki ( 5. – 7. bekkur) vann sveit 6. bekkjar með 6½ vinning, í öðru sæti varð sveit 5. bekkjar með 4½ vinning og í þriðja sæti sveit 7. bekkjar með 1 vinning. Í morgun voru afhentar viðurkenningar fyrir árangurinn. Sjá myndir.
Nánari upplýsingar er að finna i fréttabréfi skólans.
4.12.2008
Jólin hennar Jóru
27.11.2008
Skemmtilegar heimsóknir
Nemendur Kópavogsskóla fengu óvenjumargar heimsóknir í dag og allar ánægjulegar. Árni Sigurðsson veðurfræðingur ræddi við nemendur í 6. og 9. bekk um veðrið en umfjöllun sína kallaði hann ,,Er veðrið að breytast?“ Það var fróðlegt og um margt að spyrja enda veðrið sígilt umræðuefni.
Berglind Hilmarsdóttir bóndi heimsótti nemendur 7. bekkjar og var með þeim allan morguninn.
21.11.2008
Á sjó
Fimmtudaginn 20. nóvember og föstudaginn 21. nóvember var 10. bekkingum boðið í sjóferð á skólaskipinu Dröfn. Nemendum var skipt í þrjá hópa og með hverjum hópi fóru tveir kennarar. Ferðin er skipulögð af Fiskifélagi Íslands og fengu nemendur að kynnast sjávarútveginum og vinnunni um borð í fiskiskipum. Líffræðingur frá Hafrannsóknastofnun var með í för og fræddi nemendur um starfsemi stofnunarinnar, landhelgina, hafstrauma, breytingar á veðráttu og áhrif þeirra breytinga á lífríki sjávar. Smellið á meðfylgjandi mynd til að sjá myndir úr ferðunum.
21.11.2008
Þemadagar
Áfram héldum við með verkefni þemadaga. Fréttahaukar dagsins voru úr 9. bekk. Þeir tóku myndir af öllum hópum og viðtöl við allmarga, bæði nemendur og starfsmenn.
Hér má sjá afrakstur dagsins í þeirra starfi:
Þemadagar: Föstudagur 21. nóvember (pdf, 1.63) Með því að smella á meðfylgjandi mynd sjást myndir dagsins.
20.11.2008
Þemadagar
Haldið var áfram með þemadaga í dag, fimmtudag, og verkefnin voru að mestu leyti þau sömu og í gær þannig að sem flestir fái að kynnast því fjölbreytta úrvali sem í boði er. Í fréttahópi dagsins voru nemendur úr 8. bekk og hér má sjá skrif þeirra:
Þemadagar: Fimmtudagur 20. nóvember (pdf)
Fréttahópurinn sér einnig um myndatökur og úrvinnslu mynda að mestu leyti. Smellið á myndina sem fylgir þessum pistli til þess að sjá fleiri myndir.
20.11.2008
10. bekkur heimsækir Gljúfrastein
20.11.2008
9. bekkir á Gerðarsafni
19.11.2008
Þemadagar
Þemadagar eru í Kópavogsskóla miðvikudag 19. nóvember, fimmtudag 20. nóvember og föstudag 21. nóvember. Aðalþemað er nýting/endurnýting og hagsýni. Einnig er boðið upp á hreyfingu og tónlist. Fréttir og myndir munu birtast daglega og hér má sjá afrakstur fréttahóps miðvikudagsins:
Þemadagar: Miðvikudagur 19. nóvember (pdf)
Smellið á myndina til að sjá fleiri myndir.
18.11.2008
1. B og M í útilegu í skólanum sínum.
Fimmtudaginn 6. nóvember komu nemendur 1. M og gistu eina nótt í skólastofunni sinni. Föstudaginn 7. nóvember komu svo nemendur úr 1. B og gistu í sinni stofu. Foreldrar mættu með börnunum og hjálpuðu þeim að koma sér fyrir. Eftir það fóru allir upp í skólaeldhús og fengu sér pylsur saman, síðan var farið í sal í leiki o.fl. Eftir að foreldrar voru farnir voru sagðar sögur fyrir svefninn. Allir sváfu vel um nóttina og vöknuðu hressir og ánægðir. Þetta var gert til að auka jákvæði til skólans, samheldni og félagatengsl meðal nemenda.
10.11.2008
Trúarbragðafræði
4. bekkur hefur verið að vinna verkefni um helstu trúarbrögð heimsins það er Búddatrú, hindúatrú, íslam, gyðingdóm og kristni. Þeirri vinnu lauk með kynningu fyrir foreldra. Fimmtudaginn 6. nóvember hófst skóladagur 4-KV á því að foreldrar þeirra mættu með þeim í skólann klukkan 8. Þar fengu foreldrar ýmislegt að vita um þessi trúarbrögð. Það var frábær mæting og nemendur stóðu sig vel í kynningum sínum.
29.10.2008
Bekkjakvöld hjá 1. B og 1. M
21.10.2008
Skólahlaup UMSK
Skólahlaup UMSK fyrir 4. – 10. bekk fór fram á Kópavogsvelli föstudaginn 17. október. Það voru 14 hressir krakkar úr Kópavogsskóla sem mættu í hlaupið. Allir þátttakendur fengu verðlaunapening og hressingu eftir hlaupið. Tveir nemendur skólans náðu þeim góða árangri að sigra í sínum aldursflokki en þeir eru Sindri Magnússon 6.- N og Ingi Rúnar Kristinsson 10. – A. Við erum stolt af þeim og óskum þeim til hamingju.
17.10.2008
Margt er sér til gamans gert
16.10.2008
Gönguferðir 1. B og M.
8.10.2008
Landsmót Samfés
Landsmót Samfés, Samtaka félagsmiðstöðva á Íslandi, var haldið í Garði á Suðurnesjum dagana 3. - 5. október. Þar komu saman 311 fulltrúar nemendaráða víðs vegar að af landinu. Margs konar smiðjur voru í boði svo sem listvinna af ýmsu tagi, íþróttir, heimilisiðnaður, útivist og gönguferðir, umræður og fundarseta og skipulagning svo eitthvað sé nefnt. Tveir nemendur úr Kópavogi hlutu kosningu í ungmennaráð Samfés, Sindri Benediktsson úr Kjarnanum í Kópavogsskóla og Andri Steinn Hilmarsson úr Jemen í Lindaskóla. Við árnum þessum ágætu fulltrúum úr Kópavogi velfarnaðar í störfum.
6.10.2008
6. bekkur - Hjólaferð í Gróttu
6.10.2008
3. bekkir í Hlíðargarði
Fimmtudaginn 25. september fóru 3-H og 3-L í sinn vikulega göngutúr. Gengið var niður í Hlíðargarð þar sem allir hjálpuðust að við að tína laufblöð sem voru sett í pressun þegar heim var komið til að nota í margskonar verkefni í vetur. Áður en farið var heim léku sér allir saman í leiktækjunum og klifruðu í trjánum.
1.10.2008
Skólaþing
Miðvikudaginn 24. og fimmtudaginn 25. september fóru 10. bekkingar Kópavogsskóla á Skólaþing. Þegar komið var á staðinn fékk hver sína persónu sem alþingismaður og hópnum var skipt í fjóra flokka. Síðan voru haldnir þingflokksfundir og þar var skipað í nefndir, umhverfisnefnd, menntamálanefnd og allsherjanefnd. Þrjú frumvörp voru kynnt og hver flokkur fékk sín stefnumál.
26.9.2008
Mér finnst rigningin góð
25.9.2008
Hljóðbækur á netinu
Á heimasíðu Námsgagnastofnunar nams.is er hægt að nálgast hljóðbækur á mp3 formi sem hlaða má niður á tölvu eða I-pod.
25.9.2008
Foreldrafélagið í heimsókn
Stjórn Foreldrafélags Kópavogsskóla birtist óvænt í heimsókn í gærmorgun. Stjórnin kom ekki tómhent því starfsfólki skólans var færð stærðar terta. Stjórnin vildi með þessu lýsa yfir ánægju sinni með gott samstarf og óskum um gott gengi í vetur. Starfsfólk skólans færir þeim kærar þakkir fyrir framtakið.
12.9.2008
Útivist hjá 3-H og 3-L
12.9.2008
Leiklistarkennsla
Á síðasta skólaári var boðið upp á leiklistarkennslu á miðstigi og sem valgrein í 9. og 10. bekkjum. Þar sem þetta tókst mjög vel er nú boðið upp á leiklist aftur.
Leiklistarkennslan er nú að hefjast og eins og áður munu þau Margrét Kaaber og Eggert Kaaber sjá um kennsluna.
1.9.2008
Nýtt skólaár - miðlun upplýsinga
Við upphaf nýs skólaárs bjóðum við alla velkomna til starfa. Skólastarfið hefur farið vel af stað og við vonum að allt gangi vel í vetur. Við bendum ykkur á að fylgjast með fréttum og tilkynningum hér á heimasíðunni. Skóladagatal og starfsáætlun er hægt að skoða hér og reynt er að hafa á viðburðadagatalinu allt það sem helst er á döfinni. Við minnum líka á Mentor og allar upplýsingar sem þar eru. Mikilvægt er að láta vita ef netfang breytist. Ef ykkur finnst eitthvað mega betur fara í miðlun upplýsinga þá vinsamlegast hafið samband við stjórnendur eða ritara.
10.6.2008
8. bekkur Ísland - Danmörk
Skólaárin 2006-2007 og 2007-2008 hefur núverandi 8. bekkur Kópavogsskóla verið í Nord-plus samstarfi við 7. bekk í Holmeskolen í Tønder á Suður Jótlandi. Tilgangur samstarfsins var að bera saman orkulindir hvors lands fyrir sig. Einnig fyrir íslensku nemendurna að auka dönskukunnáttu og þá dönsku að fá innsýn í íslensku sögurnar, svo sem Gunnlaugssögu.
Í maí og júní skiptust bekkirnir á heimsóknum. Eftir mikil samskipti og undirbúning, þar sem aðstoð foreldra var ómissandi og ómetanleg, komu Danirnir, 19.-24. maí, og Íslendingarnir endurguldu svo heimsóknina 2.-6.júní.
10.6.2008
Vorferð 9. bekkjar
9.6.2008
Nemendur í 2. og 9. bekk lesa eigin sögur
Nemendur í 9. bekk hafa samið skemmtilegar barnasögur og myndskreytt.
Þetta hefur tekist vel og margar fallegar og eigulegar bækur hafa orðið til. Nokkrir nemendur úr 9-A lásu barnasögurnar sínar fyrir krakkana í 2. bekk og vakti það mikla lukku.
Eftir heimsókn 9. bekkjar vildu nemendur 2. bekkjar endurgjalda greiðann. Hver nemandi samdi sína eigin sögu, útbjó bók og myndskreytti. Svo var farið í heimsókn í tíma hjá 9. bekk og sagan lesin fyrir þau.
4.6.2008
Vorferð 4.– X og Y
4.6.2008
Vorferð 2. bekkja
Mánudaginn 2. júní fór 2. bekkur í vorferð. Farið var með rútu á bóndabæinn Grjóteyri við Meðalfellsvatn í Hvalfirði. Fyrst fórum við að skoða dýrin. Þarna voru hestar og folöld, hundar og hvolpar, geitur og kiðlingar, köttur og kettlingar, ær og lömb, kýr og kálfar og svo litlir hænuungar. Við fengum að halda á minni dýrunum, gefa þeim að borða og leika við þau. Síðan settumst við inn í fallegan garðskála og borðuðum nestið okkar. Að lokum fengum við að hlaupa um og leika okkur í leiktækjum og gömlum traktorum og sum okkar spiluðu fótbolta við hundana.
4.6.2008
Vorferð 5-N og 5-S
4.6.2008
Vorferð 6. RT
3.6.2008
4. bekkir skoða Landnámssýningu
29.5.2008
Leiksýning 9. og 10. bekkinga
29.5.2008
Leiklist í 7. bekk
29.5.2008
2. bekkur í afmæli á Gjábakka
Föstudaginn 9. maí var 2. bekk boðið í 15 ára afmæli Gjábakka. Afmælið byrjaði kl. 14:00 með því að 2. bekkur söng við undirleik Skarphéðins tónmenntakennara síðan voru fluttar ræður, ljóð og meiri söngur. Að því loknu var boðið upp á stóra flotta tertu og mikið af sælgæti. Allir skemmtu sér vel saman eins og alltaf á Gjábakka.
27.5.2008
Tónlist fyrir alla 1.-4. bekkur í Salnum
Í dag þriðjudag var "Tónlist fyrir alla" fyrir yngsta stigið í Salnum í Kópavogi. Sýningin nefndist Smaragðsdýpið mikla.
27.5.2008
Grillferð í Guðmundarlund
26.5.2008
3. bekkur í Viðey
Mánudaginn 26. maí fór 3. bekkur út í Viðey. Siglingin með ferjunni tekur um það bil 5 mínútur og þótti mörgum býsna skemmtilegt að sigla. Tekið var á móti okkur og við fengum að heyra ýmsar skemmtilegar sögur um sögu eyjunnar og hið mikla fuglalíf sem þar er. Við sáum Viðeyjarstofu og kirkjuna, friðarsúluna og akkerið, sem er minnismerki þeirra sem fórust með Kútter Ingvari í aftakaveðri snemma á síðustu öld.
26.5.2008
Knattspyrnumót í Fífunni
Knattspyrnumót var haldið í Fífunni 20. maí. Þátttakendur í Kópavogsskóla voru 8. 9. og 10. bekkur og danskir nemendur sem voru hér í heimsókn hjá 8.bekk.
23.5.2008
Hraðskákmót í 4.-7. bekk í maí 2008
Skákstarfi í Kópavogsskóla lauk með hraðskákmóti 21. maí. Keppendur voru 14. Sigurvegari og hraðskákmeistari í 4.-7. bekk varð Bergþór Pálsson 7. bekk.
19.5.2008
UNICEF hreyfingin
19.5.2008
Stærðfræðikeppni grunnskólanna í Kópavogi
15.5.2008
Vorferð 10. bekkinga í Skagafjörð
14.5.2008
Skákmót Kópavogsskóla 2008 í 4.-7. bekk
Skákmótið var haldið í apríl. Keppendur voru 14. Skákmeistari skólans í 4.-7. bekk var Jóhann Ragnarsson 7. bekk með 12 vinninga. Annar varð Bergþór Pálsson einnig úr 7. bekk með 11 vinninga og þriðji Ágúst Pálmason í 4. bekk með 10 og 1/2 vinning.
8.5.2008
Leiksýning um ævi Bólu-Hjálmars
5.5.2008
2. bekkur í heimsókn á Alþingi
Þriðjudaginn 22. apríl fór 2. bekkur í heimsókn á Alþingi. Farið var með rútu niður í miðbæ Reykjavíkur og komu nokkrir vina okkar af Gjábakka með til að aðstoða. Fyrst var farið á Austurvöll og skoðuð styttan af Jóni Sigurðssyni. Síðan fórum við í Alþingishúsið þar sem Hildur Gróa tók vel á móti okkur. Hún sýndi okkur húsið, sagði okkur frá starfsemi og sögu Alþingis og bauð okkur svo upp á ostaslaufur, kleinur og mjólk á kaffistofu þingmanna.
5.5.2008
3. bekkur og reikistjörnurnar
29.4.2008
2. bekkur í boccía á Gjábakka
28.4.2008
Skoðunarferð að Soginu og Þingvöllum
Síðustu tvær vikur hafa verið farnar fjórar skoðunarferðir, á vegum Landsvirkjunar og Kópavogsskóla, austur að Sogi og Þingvöllum. Ingvar P. Guðbjörnsson kynningarfulltrúi Landsvirkjunar var fararstjóri. Í ferðirnar fóru 5. – 8. bekkur. Ekið var sem leið lá frá Kópavogsskóla austur yfir Mosfellsheiði og Grafning. Fyrsti áfangastaður var Írafossvirkjun. Hópurinn fór um virkjunina og fékk útskýringar á því hvernig rafmagnsframleiðslan fer fram.
21.4.2008
Heimsókn frá leikskólum
Fimmtudaginn 17. apríl komu hingað börn úr leikskólunum ásamt leikskólakennurum. Þetta eru nemendur sem byrja í Kópavogsskóla í haust. Skólinn var skoðaður, sögustund var á skólasafni og að lokum fengu gestirnir hressingu. Þetta er áhugasamur og skemmtilegur hópur.
17.4.2008
Átak gegn hraðaakstri
Frétt frá Gylfa og Önnu Elísabetu, lögreglumönnum á svæðisstöðinni í Kópavogi.
Í tilefni af átaki gegn hraðaakstri í Kópavogi hefur lögreglan á höfuðborgasvæðinu verið með hraðamælingar í Kópavogi síðustu daga. Mælt hefur verið með myndavélabúnaði sem er staðsettur í ómerktri lögreglubifreið. Í skólahverfi Kópavogsskóla var t.d. fylgst með umferð um Digranesveg þann 11. apríl þar sem 30 km hámarkshraði er. Á þeim tíma sem myndavélin var á vettvangi óku 183 ökutæki um götuna, þar af voru 94 yfir leyfilegum hraða, sem er 51% af mældum ökutækjum. Er þetta hátt brotahlutfall að mati lögreglu. Meðalhraði þeirra sem ljósmyndaðir voru var hins vegar í lægri kantinum, eða 43,72 km. Fimm ökutækjum var ekið á 50 km hraða eða meira. Sá sem hraðast ók var á 57 km hraða. Mælingin fór fram á skólatíma, milli kl. 10:45 og 11:45.
15.4.2008
Bekkjarkvöld hjá 4-X og 4-Y
Þriðjudaginn 8. apríl héldu nemendur í 4. bekk X og Y bekkjarkvöld í skólanum. Þema kvöldsins var fjölþjóðlegt svo nemendur og foreldrar komu með mjög fjölbreytilegan mat á hlaðborðið. Nemendur kynntu verkefni sem þeir hafa unnið í tengslum við nám sitt í Komdu og skoðaðu sögu mannkyns. Foreldrar og kennarar nemenda voru bæði hreyknir og ánægðir með flutning þeirra og vinnubrögð.
14.4.2008
Fótboltamót
7.4.2008
Bekkjarskemmtun hjá 3-KV
Bekkjarskemmtun 3-KV var haldin 3. apríl. Það var vel mætt á skemmtunina og sáu nemendur um skemmtiatriði sem vöktu mikla lukku. Einn nemandi spilaði á klarinett, þrír sungu vorlög og leikinn var brandari. Einnig var haldin spennandi spurningakeppni þar sem foreldrar tóku þátt. Á eftir gæddu allir sér á góðgæti af sameiginlegu hlaðborði.
4.4.2008
2. bekkur í gönguferð
3.4.2008
Fjármálafræðsla í 10. bekk
3.4.2008
7. bekkur á Reykjum
Dagana 10.-14. mars sl. dvöldu nemendur í 7.JP í skólabúðunum að Reykjum í Hrútafirði. Þar hittu þau fyrir nemendur úr Vatnsendaskóla og Hamraskóla í Grafarvogi. Þar var gott að vera og stíf dagskrá keyrð bæði innan húss og utan dyra. Krakkarnir skemmtu sér hið besta og voru skólanum sínum til sóma.
Smelltu á myndina til að skoða fleiri myndir.
14.3.2008
Árshátíðir
13.3.2008
4-X í páskaföndri
10.3.2008
Bekkjarkvöld hjá 2-H og L
Fimmtudaginn 6. mars var bekkjarkvöld hjá 2. bekk þar sem eldri borgurum á Gjábakka var boðið. Nemendur fóru með frumsamin ljóð, sungu og dönsuðu, í lokin buðu nemendur eldri borgurum og foreldrum upp í vals og línudans. Að því loknu var boðið upp á veitingar í boði foreldra og skóla. Allir skemmtu sér vel saman.
6.3.2008
Stóra upplestrarkeppnin
4.3.2008
2. bekkur í verkefnavinnu
29.2.2008
2. bekkur á Gjábakka
29.2.2008
Tónlist fyrir alla
29.2.2008
Skák
21.2.2008
Endurnýjun leiktækja
21.2.2008
Heimsókn skólaliða og stuðningsfulltrúa
20.2.2008
Upplestur
17.1.2008
Nemendur í 2. bekk leika sér í snjónum
4.1.2008
Lesskilningur barna bestur í Kópavogi
Eftirfarandi frétt birtist á heimasíðu Kópavogsbæjar 2. janúar og vel við hæfi að hafa hana fyrstu frétt nýs árs hér á heimasíðu Kópavogsskóla.
Nemendur í grunnskólum í Kópavogi komu best út allra íslenskra nemenda í PISA-könnuninni þar sem lesskilningur fimmtán ára barna var mældur. Þeir eru einnig í hópi þeirra bestu í stærðfræði og náttúrufræði. Frammistaða íslenskra skóla í PISA-könnuninni olli vonbrigðum. Slakur árangur í lesskilningi í samanburði við önnur OECD-lönd hefur verið mest í umræðunni. Upp á síðkastið hafa einnig birst fréttir um árangurinn í einstökum umdæmum úr skýrslu Námsmatsstofnunar um helstu niðurstöður PISA-könnunarinnar um Ísland. Þar segir að í lesskilningi séu þrjú skólaumdæmi markvert fyrir ofan landsmeðaltal, Kópavogur, Skagafjörður og Norðurþing.

















































