Beint á leiđarkerfi vefsins

Fréttir

19.12.2008

Litlu jólin

jol-yngstu16Jólaskemmtanir nemenda fóru fram 18. og 19. desember. Að kvöldi 18. desember var skemmtun unglingadeilda. Þar voru margs konar skemmtiatriði sem nemendur höfðu undirbúið. Má þar nefna tvísöng, hljóðfæraleik, frumlega uppsett leikrit og stuttmyndir. Gengið var í kringum jólatré og endað með dansi.  Jólaskemmtun yngsta stigs var föstudaginn 19. desember kl. 9:00. Þar spiluðu félagar úr Skólahljómsveit Kópavogs, nemendur 4. bekkjar fluttu helgileik og síðan var gengið í kringum jólatréð. Miðstig var með sína skemmtun kl. 11:00 sama dag. Þar var einnig hljóðfæraleikur Skólahljómsveitar og helgileikur í flutningi 7. bekkjar. Sá hópur gekk einnig í kringum jólatréð og söng af hjartans lyst.

Sjá myndir á myndasíðu.

19.12.2008

Gjábakki

Ţað er orðin hefð hjá okkur í þriðja bekk að fara á Gjábakka og syngja þar á aðventunni. Skarphéðinn tónmenntakennari kom með okkur og við sungum nokkur lög. Allir fengu svo ávexti áður en labbað var til baka í skólann.

19.12.2008

Heimilisfrćđival

heimilisfræði15Í síðasta tímanum fyrir jól voru miklar kræsingar á borðum hjá valhópum 9. bekkjar í heimilisfræði, Doritos kjúklingur og heimalagaður ís með súkkulaðisósu. Allir voru ánægðir með hvernig til tókst og nutu þess að borða.

18.12.2008

Kirkjuferđ á ađventu

kirkjuferd3Hin árlega kirkjuferð í Digraneskirkju var farin miðvikudaginn 17. desember. Gengið var til kirkjunnar í blíðskaparveðri. Yngri nemendur kl. 10:00 og eldri nemendur kl. 11:00. Þetta var hátíðleg stund þar sem nemendur úr 8. og 9. bekk ásamt Skólahljómsveit Kópavogs sáu um dagskrá. Aðventukertin voru tendruð og prestar lásu jólaguðspjallið. Einnig voru jólasálmar sungnir.

15.12.2008

Skákmót

skak-verðlaun3Bekkjamóti Kópavogsskóla í skák er nýlokið. Sex bekkir tóku þátt í keppninni en keppt var á fjórum borðum. Í eldri flokki ( 8. – 10. bekkur ) vann sveit 8. bekkjar með 5 vinninga, í öðru sæti varð sveit 10. bekkjar með 4 ½ vinning og í þriðja sæti sveit 9. bekkjar með 2½ vinning. Í yngri flokki ( 5. – 7. bekkur) vann sveit 6. bekkjar með 6½ vinning, í öðru sæti varð sveit 5. bekkjar með 4½ vinning og í þriðja sæti sveit 7. bekkjar með 1 vinning. Í morgun voru afhentar viðurkenningar fyrir árangurinn. Sjá myndir.

Nánari upplýsingar er að finna i fréttabréfi skólans.

4.12.2008

Jólin hennar Jóru

Í dag, fimmtudag 4. desember, komu leikararnir Eggert Kaaber og Katrín Þorkelsdóttir úr Stoppleikhópnum með leikritið Jólin hennar Jóru og sýndu fyrir nemendur 1. - 5. bekkjar. Leikritið er jólaævintýri unnið undir áhrifum frá þjóðsögunum og segir frá Jóru litlu sem er  tröllastelpa sem býr uppi í fjöllum. Einn daginn stelur hún jólakíkinum hans Skrepps, en hann er einn besti aðstoðarmaður jólasveinanna.
Fréttir - á RSS-formi

Viđburđir

 «Maí 2012» 
sunmánţrimiđfimföslau
  12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031  

Skólamatur6HHeimili og skóli

Slóđin ţín:

Forsíđa

Mynd