Beint á leiđarkerfi vefsins

Fréttir

18.12.2009

Litlu jól

Litlu jólJólaskemmtanir voru haldnar 17. og 18. desember. Fimmtudaginn 17. desember voru unglingadeildir með sína skemmtun frá kl. 20:00-23:00. Þar voru sýnd frumsamin leikrit og stuttmynd, spurningaþáttur var að Útsvarsfyrirmynd og hljómsveitir skipaðar nemendum tróðu upp. Gengið var í kringum jólatréð og sungið af hjartans lyst. Að lokum var diskótek.

Skemmtun yngstu nemenda, 1. - 4. bekkjar, var haldin föstudaginn 18. desember kl. 09:00 - 10:00. Hún hófst með leik Skólahljómsveitar Kópavogs undir stjórn Snorra Sigurðarsonar og  í þetta sinn voru það eingöngu nemendur úr Kópavogsskóla sem spiluðu.

17.12.2009

Flokkun og endurvinnsla

FlokkunSíðastliðið vor voru lögð drög að því að flokka allt sorp sem fellur til í Kópavogsskóla. Ákveðið var að taka upp þriggja tunnu kerfi og farið í samstarf við Íslenska gámafélagið um allt skipulag. Ráðgjafar þeirra unnu Flokkunarhandbók sérstaklega fyrir skólann og starfshópur innan skólans hefur unnið að skipulagi hér innanhúss í samræmi við tillögur þeirra. Í síðustu viku var lokið við að setja upp lítið gámasvæði við skólann og með tilkomu þess er allt skipulag frágengið og farið að vinna eftir kerfinu.

17.12.2009

Heimilisfrćđi í desember

HeimilisfræðiÍ siðustu heimilisfræðitímum fyrir jól hafa nemendur búið til ýmsa rétti. Stelpurnar í 8. bekk útbjuggu tortillur með hakki og grænmeti og í eftirrétt voru ávextir með vanillusósu. Krakkarnir í 2. B bjuggu til kókoskúlur og voru mjög duglegir að ganga vel frá öllu á eftir og gera fínt. Hjá valhópnum í 9. bekk samanstóð matseðillinn af Doritos kjúklingi með hrísgrjónum og salati í aðalrétt og ís með heitri súkkulaðisósu í eftirrétt. Góðum gestum var boðið í mat og allir nutu vel.

17.12.2009

Jólaundirbúningur hjá 4. bekk

Jólaundirbúningur í 4. bekkJólaundirbúningurinn hjá 4. H og L hófst strax í október. Var þá farið niður að Hvammshúsi og náð í trjágreinar og köngla til að föndra úr. Síðustu vikur hefur farið mikill tími í að æfa jólahelgileik sem sýndur verður á jólaskemmtun. Samstarfið við Gjábakka gengur vel og fólkið frá íþróttafélaginu Glóðinni er duglegt að koma og kenna krökkunum alls konar skemmtilega dansa.

16.12.2009

Jólastund á skólasafninu

jol-a-safni1Síðustu tvær vikur fyrir jól er mikið um að vera á safninu.  Þá eru ljósin deyfð,  safnið skreytt og dúkar eru á borðum. Bekkir koma í heimsókn, hlusta á jólasögur og  boðið er upp á kakó og piparkökur.

Í ár hafa nemendur úr 7. bekkjum séð um upplestur á  jólasögum og jólavísum fyrir nemendur í 1.-6. bekk. Hafa þau öll staðið sig með prýði. Nemendur í 8. og 9. bekk koma einnig í jólaheimsókn, hlusta á sögu og fá kakó.

Á myndasíðu má sjá myndir sem teknar voru á safninu.

11.12.2009

Kirkjuferđ á ađventu

Kirkjuferð á aðventuHin árlega kirkjuferð nemenda Kópavogsskóla í Digraneskirkju var farin fimmtudaginn 10. desember. Gengið var til og frá kirkju í tveimur hópum. 1.- 6. bekkur kl. 10:00 og 7.-10. bekkur kl. 11:00. Í kirkjunni léku Hrafnhildur og Hugrún í 10. bekk jólalög og nemendur úr 8. bekk lásu jólaguðspjallið, jólasögur og jólaljóð. Jólasálmar voru sungnir og farið með bænir og allir komust í  jólaskap.

8.12.2009

Ungur rithöfundur á skólasafni

Upplestur á bókasafniÍ dag kom rithöfundur í heimsókn á bókasafn skólans. Þetta er 16 ára nemi í MH sem heitir Harpa Dís Hákonardóttir og skrifað hefur bókina "Galdrasteinninn". Bókin er ætluð krökkum á aldrinum 9 -12 ára. Hún las upp úr bókinni fyrir nemendur í 4.- 6. bekk. Allir höfðu ánægju af upplestrinum.

8.12.2009

Niđurstöđur samrćmdra prófa

Niðurstöður samræmdra prófa liggja nú fyrir þó enn vanti ýmsar tölfræðiupplýsingar frá Námsmatsstofnun.  Foreldrar hafa fengið í hendur niðurstöðurnar þar sem fram koma meðaleinkunnir barna í hverri grein auk meðaleinkunna fyrir landið og svæðið í heild og raðeinkunn en hún staðsetur einkunn nemenda út frá jafnöldrum á öllu landinu. Nemendur Kópavogsskóla stóðu sig í heildina vel og í sumum tilvikum frábærlega. Fyrir þá sem vilja kynna sér niðurstöðurnar er hér tengill á skjal með helstu niðurstöðum en á vef Námsmatsstofnunar eru síðan nánari upplýsingar um prófin og niðurstöðurnar í heild.

25.11.2009

Ţemadagar

ŢemadagarŢemadagar stóðu yfir 24. og 25. nóvember. Yfirskrift daganna var Ísland - land og saga. Hver árgangur hafði sín verkefni og fjallað var um ýmislegt varðandi Ísland. Margir fræddust um íslenskt jólahald og til dæmis komu gestir frá Gjábakka í heimsókn til 4. bekkinga og sögðu þeim frá jólahaldi áður fyrr. Farnar voru ferðir á Landnámssýninguna í Aðalstræti, Þjóðminjasafnið, Árbæjarsafnið, Náttúrufræðistofu Kópavogs og Listasafn Reykjavíkur í Hafnarhúsinu. Gengið var um gamla kirkjugarðinn við Suðurgötu, styttur borgarinnar skoðaðar ásamt merkum byggingum. Margvísleg verkefni voru unnin í skólanum. 

16.11.2009

Dagur íslenskrar tungu

Dagur10Dagur íslenskrar tungu var haldinn hátíðlegur í Kjarnanum mánudaginn 16. nóvember, á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar. Fyrir nemendur í 6. - 10. bekk var flutt dagskráin Jónasarvaka undir stjórn Þórðar Helgasonar cand. mag. og dósents. Þátttakendur í dagskránni voru höfundar ljóðabókarinnar Í sumardal en þeir eru eldri borgarar sem taka þátt í félagsstarfi  á Gjábakka. Dagskráin var í tali og tónum og tónlistaratriðin voru í höndum Stefáns Helga Stefánssonar, tenórs, Davíðs Ólafssonar, bassa og Helga Hannessonar, píanóleikara.

16.11.2009

Norrćn bókasafnavika

norr-safnavika11Dagana 9. – 13. nóvember var Norræn bókasafnavika. Komin er hefð á að skólasafnið og nemendur á mið- og yngsta stigi taki þátt í þessari viku. Þá er uppstokkun á stóla- og borðaskipulagi, ljósin eru slökkt og lesið er við kertaljós. Vakin er athygli á Norðurlöndum og sögum eftir norræna höfunda, bækur eru á öllum borðum og nemendur kynnast eða rifja upp kynni við söguhetjur. Í ár var þemað  Stríð og friður á Norðurlöndum.

12.11.2009

Rafheimar

Rafheimar9. bekkur fór í heimsókn í Rafheima í Elliðaárdal. Stefán Pálsson tók á móti hópnum og fræddi nemendur um ýmislegt er varðar rafmagn. Nemendur fengu einnig að gera ýmsar tilraunir. Ferðin tókst ákaflega vel í alla staði og kunnu 9. bekkingar vel að meta góðar móttökur og vel undirbúna fræðslu.

11.11.2009

Landnámssýningin í Ađalstrćti

Landnámssýning 5KVNemendur 5. KV skoðuðu landnámssýninguna Reykjavík, 871+/- 2, miðvikudaginn 11. nóvember. Miðpunktur sýningarinnar eru fornleifar skálans sem fundust árið 2001 í Aðalstræti. Teljast þær meðal elstu mannvistarleifa í Reykjavík. Fornleifum frá víkingaöld er lýst með margmiðlunarhætti. Þannig er umhverfinu og landkostum við landnám, bæjarstæðinu og lífsbaráttu þeirra sem þar bjuggu til dæmis lýst.

28.10.2009

Kjarvalsstađir - safnaferđ

KjarvalsstaðirNemendur 7. bekkja í myndmennt heimsóttu Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaði, fimmtudaginn 22. okóber sl. Sýningin sem þau sáu ber titilinn Blik en þar eru sýnd verk eftir átta íslenska listamenn sem beita sjónhverfingum í verkum sínum eða svokallaðri Op Art sem á rætur að rekja til miðrar síðustu aldar.

22.10.2009

UMSK hlaup

UMSK hlaupFöstudaginn 16. október fór fríður hópur nemenda í rútu í Mosfellsbæ til að taka þátt í hinu árlega UMSK hlaupi. Nemendur í 4. og 5. bekk kepptu í 400 metra hlaupi, nemendur í 6.-8. bekk kepptu í 800 metrum og nemendur í 9. og 10. bekk kepptu í 1500 metra hlaupi.

19.10.2009

Gönguferđir 1. bekkjar

GönguferðÍ ágúst, september og október höfum við heimsótt heimili allra barnanna í 1. bekk. Þetta hafa verið mjög skemmtilegar gönguferðir og þegar færi gafst stoppuðum við á leikvöllum í nágrenni heimilanna.

15.10.2009

Heimsókn frá Árskóla

Starfsfólk ÁrskólaStarfsfólk frá Árskóla á Sauðárkróki kom í heimsókn til okkar í dag. Markmið ferðarinnar er að kynnast skólastarfi í ýmsum skólum á höfuðborgarsvæðinu og hingað komu þrettán kennarar og skólaliðar ásamt skólastjóra. Það er alltaf ánægjulegt að fá fólk í heimsókn og gaman að bera saman það starf sem unnið er í grunnskólunum. Sauðkrækingum þökkum við kærlega fyrir komuna og þá kynningu sem við fengum á þeirra skólastarfi í samtölunum.

15.10.2009

Afa- og ömmudagur í 1. bekk

afar og ömmur í heimsóknŢað voru ánægðir og stoltir nemendur í 1. bekk sem tóku á móti öfum og ömmum sínum í heimsókn í skólann. Afar og ömmur fylgdust með skólastarfinu í tvær kennslustundir. Það var ánægjulegt að sjá hve margir komu til okkar og forvitnilegt að sjá hvernig hópurinn vann saman að verkefnunum. Myndirnar tala sínu máli.

12.10.2009

Safnaferđ

Heimsókn í GerðarsafnNemendur í 5. bekk heimsóttu Gerðarsafn miðvikudaginn 7. október. Sýningin sem þau sáu ber titilinn KÚRRAKKAR, VEGGSPJÖLD OG OPINBERUN og er haldin í tengslum við  írska menningarhátíð í Kópavogi. Börnin skoðuðu kúrrakka sem eru skinnbátar frá vesturströnd Írlands og veggspjöld frá þriðja fjórðungi síðustu aldar. Veggspjöldin sýna írskar staðalímyndir svo sem fagurt fjallalandslag, hús með stráþökum, rústir, hringturna og keltneska krossa. Hér má sjá nokkrar myndir frá heimsókninni.

6.10.2009

Íţróttir og útivist

ironmanÍ ár er nemendum í 9. og 10. bekk boðið upp á valáfanga sem heitir íþróttir og útivist.  Markmiðið er að nemendur fái tækifæri til að kynnast og stunda þolþjálfun, styrktarþjálfun og útivist.  Áfanganum er skipt upp í þrjár mánaðarlangar lotur.  Í haust var verkefnið þríþraut (ironman), að hjóla 180 km, hlaupa 42 km og synda 4 km.  Nemendur hittust í átta skipti við Kópavogssundlaug og þaðan var hjólað, þá hlaupið og að endingu synt. Óhætt er að segja að flestir nemendur hafi staðið sig vel.  Næsta lota byrjar í febrúar en forvitnilegt verður að meta valáfangann í heild að honum loknum.

2.10.2009

Tónlist fyrir alla

Tónlist fyrir allaÍ dag föstudaginn 2. október komu hingað í skólann þau Herdís Anna Jónsdóttir víóluleikari og Steef van Oosterhout slagverksleikari og léku á hljóðheiminn fyrir nemendur í 1.- 4. bekk. Herdís Anna lék á víóluna, söng, lék og fór með þulur en Steef lék undir á hin ýmsu slagverk. Allir skemmtu sér mjög vel og hegðun var til fyrirmyndar. Hér eru myndir af skemmtuninni.

25.9.2009

Heimsókn grćnlenskra barna

Nokkur undanfarin haust hafa grænlenskir nemendur heimsótt Kópavog í þeim tilgangi að læra að synda. Nú í haust hafa þeir verið hér í 10 daga (14.-24. sept.) en samhliða sundnáminu hafa þeir verið í kennslu í 6. bekkjum Kópavogs- og Kársnesskóla. Tólf nemendur voru hér í Kópavogsskóla ásamt 2 kennurum.

9.9.2009

Viđurkenning

Kópavogsskóla hefur borist viðurkenningarskjal þar sem nemendum, foreldrum og starfsmönnum eru færðar þakkir fyrir framlag sitt til UNICEF. Undanfarin þrjú ár hafa nemendur skólans tekið þátt í UNICEF-hreyfingunni og safnað áheitum til styrktar þurfandi börnum um allan heim. Alls hafa nemendur skólans safnað kr. 806.641- frá því verkefnið hófst. Það er frábær frammistaða og nemendur fá sérstakt hrós fyrir. Viðurkenningarskjalið má sjá hér

3.9.2009

Útikennsla og ferđir

Í upphafi skólaárs er reynt að nýta góða veðrið til útivistar. Í haust fór útivist nemenda fram í nágrenni skólans og í óbyggðum. Nemendur 2. bekkjar fóru í gönguferð í nágrenni skólans og söfnuðu hráefni í verkefnavinnuna sem er framundan. Nemendur 10. bekkjar gengu á Esju í frábæru veðri og nemendur 8. bekkjar fóru í hjólreiðaferð á hálendinu með jafnöldrum sínum úr Norðlingaskóla. Myndavélar voru að sjálfsögðu teknar með og í myndasafninu hér má sjá myndir úr þessum ferðum. Varla þarf að taka það fram að nemendur stóðu sig frábærlega og voru sér og sínum til sóma.

24.8.2009

Skólasetning

Kópavogsskóli var settur mánudaginn 24. ágúst. Nemendur 1.-4. bekkjar mættu kl. 09:00, 5. - 7. bekkjar kl. 10:00 og 8. -10. bekkjar kl. 11:00. Í upphafi mættu nemendur í Kjarnann. Skólastjóri bauð þá velkomna og greindi frá helstu breytingum á starfseminni í vetur s.s. nýjum aðila í matarþjónustu nemenda, sjá nánar undir Tilkynningar hér á síðunni, endurbótum á húsnæði og breytingum í starfsmannahaldi. Nemendur fóru síðan með umsjónarkennurum í heimastofur sínar. Rúmlega 300 nemendur stunda nám hér í vetur í 17 bekkjardeildum.

Kennsla hófst samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 25. ágúst.

15.6.2009

Íţróttamenn

myndNemendur í 6. og 7. bekk þau: Ólafur Werner Ólafsson, Sindri Magnússon, Alexander Helgi Sigurðarson, Bjarki Rúnar Kristinsson, Elma Lára Auðunsdóttir og Sigurjón Hólm Jakobsson kepptu í skólaþríþraut FRÍ og Iceland Express.  Þau stóðu sig öll vel.  Elma Lára setti Íslandsmet í 200 metra hlaupi innanhúss en hún og Alexander unnu sinn aldursflokk og þau fara því á Gautaborgarleikana 26.-28. júní nk. í boði FRÍ og Iceland Express.

Á vormóti ÍR í frjálsum íþróttum 10. júní vann Elma Lára einnig það afrek að sigra í 400 m hlaupi kvenna.  Hún hljóp á tímanum 58,46 sek. og bætti 31 árs gamalt Íslandsmet í flokki 13 - 14 ára. Þetta var reyndar í 1. skipti sem hún hljóp 400 m hlaup en hafði einu sinni tekið þátt í 4x400 m boðhlaupi! 

5.6.2009

Hvatningarverđlaun Heimilis og skóla 2009 og Hvatningarverđlaun Skólanefndar Kópavogs 2009

Samstarfsverkefni Kópavogsskóla og Gjábakka hlaut í gær, fimmtudaginn 4. júní, Hvatningarverðlaun Heimilis og skóla, landssamtaka foreldra.

Sjá nánar: http://www.heimiliogskoli.is/frettir/frett/nr/115244/

Verkefnið hlaut einnig Hvatningarverðlaun Skólanefndar Kópavogs 2009 og voru þau afhent á skólaslitum miðvikudaginn 10. júní.

Hér neðar á síðunni er sagt frá þessu samstarfsverkefni og ljóðabókinni Heimaslóðaljóð sem kom út 15. maí.

Bent skal á að virka daga er bókin til sölu á skrifstofu skólans og á Gjábakka og kostar kr. 1500. Einnig er hægt að panta bókina í síma 570 4960 (eða kopavogsskoli@kopavogur.is) og greiða inn á reikning. Verð með sendingarkostnaði kr. 1630. Tilvalin tækifærisgjöf!

Hvatningarverðlaun skólanefndar     

2.6.2009

Vatn fyrir lífiđ

6ns-ljod3Nemendur 6. S tóku þátt í ljóða- og myndasamkeppni á vegum Soroptimistaklúbbs Kópavogs undir heitinu "Vatn fyrir lífið." Verkin voru sýnd í Bókasafni Kópavogs í tengslum við Kópavogsdaga, sem haldnir voru hátíðlegir dagana  9. - 11. maí sl.
Nemendur fengu viðurkenningarskjöl fyrir þátttöku sína og voru þau afhent í Bókasafni Kópavogs fimmtudaginn 7. maí sl. Anna Rún nemandi í 6. N í Kópavogsskóla, sem sendi mynd í samkeppnina, hlaut verðlaun fyrir frumlegt og vel unnið verk. Smellið á myndina hér til hliðar til að sjá nokkrar myndir sem teknar voru í tilefni af opnun sýningarinnar.

29.5.2009

Opiđ hús 22. maí

afmæli-úti10Í tilefni af því að 60 ár eru liðin frá því að kennsla hófst í elsta hluta Kópavogsskóla var gestum boðið í heimsókn föstudaginn 22. maí. Fjölmargir lögðu leið sína hingað bæði til þess að heimsækja nemendur í stofur þeirra, fylgjast með skemmtiatriðum, leikritum, söng og fimleikum,  og skoða gamla muni og myndir. Vinna nemenda var til sýnis í heimastofum þeirra og á göngum skólans. Þeir höfðu einnig bakað með kaffinu og buðu upp á þann afrakstur. Foreldrafélagið var með útileiktæki, hoppkastala og trampolín. Um hádegi var svo boðið upp á grillaðar pylsur, safa og íspinna.

Í tilefni af afmælinu kom út rit sem helgað er starfinu í húsinu á fyrstu árunum, en auk skólastarfsins var hér  fjölbreytt starfsemi á vegum sveitarfélagsins, svo sem messur, leiksýningar og fundir. Vikuna á undan kom út ljóðabókin, Heimaslóðaljóð, sem nánar er sagt frá hér neðar á síðunni. Smellið á myndina til þess að sjá myndir teknar úti og inni þennan dag.

28.5.2009

2. bekkur - vorferđ í sveitina

2eg-sveit102. bekkur fór í sveitaferð mánudaginn 25. maí síðastliðinn. Farið var að Miðdal í Kjós. Veðrið hefði getað verið betra því við lentum í roki, rigningu og hagléli. Þrátt fyrir það skemmtu allir sér mjög vel og ferðin tókst í alla staði frábærlega. Margir hefðu viljað vera eftir í sveitinni.

27.5.2009

Skólabúđir ađ Reykjum Hrútafirđi

7rt-reykir28Vikuna 4.-8. maí fór 7. bekkur að Reykjum. Dvölin var nemendum lærdómsrík og góð tilbreyting frá hefðbundnu skólastarfi. Þar gerðu nemendur sér margt til gamans og sem dæmi má nefna hárgreiðslukeppni. Öllum drengjum úr Kópavogsskóla var greitt af bekkjarsystrum sínum. Einnig voru kvöldvökur, að ógleymdum kennslustundum á Byggðasafni og íþróttum  svo eitthvað sé nefnt.

20.5.2009

3HL og reikistjörnurnar

3HL himintunglin19Í vetur hafa nemendur í 3-H og L verið að lesa bókina Komdu og skoðaðu himingeiminn. Í framhaldi af því unnu þau verkefni á skólasafninu um reikistjörnurnar sem lauk með fallegri bók. Á árshátíð skólans sungu nemendur tvö lög sem tengdust himingeimnum og léku með.

19.5.2009

Heimaslóđaljóđ, útgáfuhátíđ

3HL-ljóðabók19Föstudaginn 15. maí sl. var útgáfuhátíð í Gjábakka þar sem fagnað var útgáfu bókarinnar ,,Heimaslóðaljóð“. Bókin er samstarfsverkefni nemenda í 3. bekk Kópavogsskóla og eldri borgara í Gjábakka. Fyrir um þremur árum hófu Kópavogsskóli og Gjábakki samstarf um að leiða börn og eldri borgara saman. Ragna Sigurðardóttir kennari er upphafsmaður verkefnisins en upphaflegt markmið var að koma á samskiptum þar sem  börnin fengju að kynnast ýmsu af því sem eldri borgarar hafa upplifað á lífsleiðinni og að eldri borgarar fengju að kynnast skólagöngu barna eins og hún er í dag.

19.5.2009

Verkefni um Norđurlönd

6N-norðurlönd19Nemendur í 6. bekk N hafa að undanförnu unnið hópavinnu um Norðurlöndin (önnur en Ísland). Gerð voru veggspjöld eftir heimildaöflun á skólasafninu í samvinnu við skólasafnskennarann ásamt bekkjarkennara. Verkefnið gekk vel og því lauk þann 15. maí.
Smellið á myndina hér til hliðar til þess að skoða fleiri myndir.

18.5.2009

Skákmót Kópavogsskóla

Mótinu er nýlokið og urðu úrslit þessi:

 

Eldri flokkur 8.-10. bekkur:

1. Guðni Fannar Kristjánsson 9. bekk með 10 vinninga

2. Róbert Ívar Arnarsson 10. bekk með 8 og 1/2 vinning

3. Þórður Magnús Tryggvason 10. bekk með 8 vinninga

 

Yngri flokkur 7. bekkur og yngri:

1. Ágúst Pálmason 5. bekk með 10 vinninga

2. Sindri Magnússon 6. bekk með 9 vinninga

3. Guðmundur Hauksson 6. bekk með 8 vinninga

11.5.2009

Ferđ í Ţjóđmenningarhús

Miðvikudaginn 6. maí fór 4.KV á sýningu í Þjóðmenningarhúsinu sem nefnist Að spyrja náttúruna- Saga Náttúrugripasafnsins. Þar mátti sjá mörg uppstoppuð dýr frá öllum heimshornum.

8.5.2009

2. bekkur í útivist

2eg-maí192. bekkur fór í göngutúr á leikvöllinn hjá Bræðratungu í kuldanum í dag.
Sumir fóru í fótbolta en aðrir léku sér frjálst. Börnin komu köld og sæl aftur í skólann.

27.4.2009

Verkefni í landafrćđi

6S-norðurlönd2Nemendur 6. bekkjar S hafa á undanförnum vikum unnið að gerð bæklinga um Norðurlöndin í umbrotsforritinu „Publisher“. Verkefnið var unnið í samvinnu bekkjarkennara og skólasafnskennara.  Nemendur bekkjarins kynntu verkefni sín þann 22. apríl sl. og voru myndir teknar við það tækifæri.

27.4.2009

Furđufuglar í Salnum

furdufuglar-3hl2Laugardaginn 18. apríl fóru fram tónleikar í Tíbrár-röð Salarins í Kópavogi undir yfirskriftinni „Sögur af fuglum og furðufuglum“. Þar stigu á svið flautuleikarinn Melkorka Ólafsdóttir og píanóleikarinn Helena Basilova. Í vikunum fram að tónleikunum höfðu nemendur í 3. bekk fengið að hlusta á efnisskrá tónleikanna í skólanum og teiknað myndir við það sem þau heyrðu. Afraksturinn var svo myndlistarsýning í forrými Salarins á tónleikadag, sem vakti mikla athygli tónleikagesta. Daginn fyrir tónleikana buðu svo Melkorka og Helena 3. bekkingunum á einkatónleika í Salnum þar sem þau fengu útskýringar við verkin.

21.4.2009

Gönguferđ á Víghól

3hl-vigholl12Fimmtudaginn 16. apríl fóru 3.H og 3.L í gönguferð upp á Víghól, hæsta punkt Kópavogs. Þar nutu krakkarnir útsýnisins og veðurblíðunnar og léku sér svo á milli runnanna og trjánna.

3.4.2009

Árshátíđir nemenda

arshatið-y15Á fimmtudagskvöld var árshátíð unglingadeildar haldin. Byrjað var á borðhaldi. Leiklistarvalið flutti söngleikinn Gretti sem tókst frábærlega. Ingibjörg 10. A söng við gítarundirleik Jóhanns Haukssonar fyrrverandi nemanda. Þá sungu Hugrún og Hrafnhildur í 9. U tvö lög. Sýndar voru tvær stuttmyndir nemenda. Einnig voru kennarar með dansatriði við Abbalagið Waterloo við mikinn fögnuð nemenda. Að lokum lék hljómsveitin Svitabandið fyrir dansi.

Sjá myndir frá: unglingadeild - yngsta stigi - miðstigi

1.4.2009

Úrslit í stćrđfrćđikeppni

Úrslit í stærðfræðikeppni grunnskólanna í Kópavogi voru kunngerð í hófi í Menntaskólanum í Kópavogi þriðjudaginn 31. mars.  Keppnin fór fram 24. mars og tóku um 100 nemendur 8. - 10 bekkja í Kópavogi þátt. Menntaskólinn í Kópavogi undirbjó keppnina í samvinnu við Fjölbrautaskólann í Garðabæ og sá um framkvæmd hennar. Nemendur Kópavogsskóla stóðu sig með miklum ágætum og var árangur þeirra sem hér segir:

8. bekkur:      4. - 5. sæti   Jóhann Ragnarsson.

9. bekkur:      1. sæti         Guðni Fannar Kristjánsson

                      5. sæti         Hugrún Óskarsdóttir

10. bekkur:    2. sæti         Birnir Jón Sigurðsson

1.4.2009

Styrkur úr Skákstyrktarsjóđi Kópavogs

Kópavogsskóli hlaut á dögunum styrk úr nýstofnuðum Skákstyrktarsjóði Kópsvogs.  Styrkurinn er í formi tíu taflsetta auk tíu skákklukkna. Skákstarf í Kópavogsskóla hefur verið að styrkjast verulega undanfarin ár og kærkomið að fá styrkinn.

25.3.2009

Stóra upplestrarkeppnin

SólrúnLokahátíðin í Kópavogi fór fram í Salnum þriðjudaginn 24. mars. Fyrir hönd Kópavogsskóla voru upplesarar þær Sólrún Ylfa Ingimarsdóttir og Sif Svavarsdóttir. Úrslit urðu þau að Sólrún Ylfa var í 3. sæti, í öðru sæti var Magdalena Anna Torfadóttir, Lindaskóla og í 1. sæti var Sindri Pétursson, Snælandsskóla.

18.3.2009

Tónlist fyrir alla

tonlist-mid3Miðvikudaginn 18. mars komu þau Marta Halldórsdóttir söngkona og Örn Magnússon tónlistarmaður í skólann með gömlu íslensku hljóðfærin og þjóðlögin og kynntu þjóðararfinn fyrir 5.-7. bekk. Hljóðfærin sem þau kynntu voru: langspil, harpa, gígja, symfon og gemshorn. Þetta var fræðandi og skemmtileg dagskrá  sem bæði nemendur og kennarar kunnu vel að meta. 

16.3.2009

Ţemadagar

ţema11Fimmtudaginn 12. mars og föstudaginn 13. mars voru þemadagar í Kópavogsskóla. Hver árgangur valdi sér verkefni tengt 60 ára afmæli skólans. Fjölbreytni var ríkjandi og ótrúleg afköst víða -ekki síst hjá þeim yngstu. Afraksturinn verður til sýnis í vor, 22. maí, þegar fyrirhugað er að hafa opið hús fyrir foreldra og aðra. Nokkrir nemendur tóku að sér að safna saman fréttum og taka myndir. Hér má sjá afrakstur þeirrar vinnu. Skoða fréttabréf (pdf-skjal)

11.3.2009

Stóra upplestrarkeppnin

lestrarkeppni6Stóra upplestrarkeppnin í 7. bekk er árlegur viðburður í skólastarfinu.

Keppnin innan skólans fór fram í morgun og voru það 10 nemendur sem lásu bæði bundið og óbundið mál. Þeir sem komust áfram í lokakeppnina eru:

Aðalmenn: Sólrún Ylfa Ingimarsdóttir og Sif Svavarsdóttir.

Varamaður: Heiða Katrín Jensdóttir.

11.3.2009

Bjart yfir unglingunum

unglingastig-allir

Í tilefni af góðu veðri, góðu skapi og gleði unglinganna í Kópavogsskóla var þessi mynd tekin þriðjudaginn 10. mars.  Myndin tengist einnig undirbúningi árshátíðar unglingadeilda sem verður haldin fimmtudaginn 2. apríl. Húsið opnar klukkan kl. 18:30 og borðhald hefst stundvíslega kl. 19:00. Árshátíðinni lýkur á miðnætti. 

10.3.2009

Tónlist fyrir alla

tonlist13Ţriðjudag 10. mars komu þær Guðrún Ásmundsdóttir leikkona og Pamela De Sensi  flautuleikari hingað í skólann og sögðu söguna um Paradísarfuglinn og kynntu hljóðfærið flautu fyrir 1.- 4. bekk. Allir skemmtu sér vel og var hegðun til fyrirmyndar.

2.3.2009

Uppeldi til ábyrgđar

fyrirlestur1Samkvæmt lögum er grunnskólum ætlað að setja sér markmið á ákveðnum sviðum og leita leiða til að skólastarf gangi eðlilega fyrir sig. Þar skipta samskipti höfuðmáli og því nauðsynlegt að leita leiða til að bæta þau og þróa. Í nokkurn tíma hafa stjórnendur skólans verið að kynna sér uppeldisstefnu sem nefnd hefur verið ,,Uppeldi til ábyrgðar" en hún gengur í stuttu máli út á að leysa mál í samstarfi og samvinnu hvort sem er á milli barna innbyrðis eða á milli barna og fullorðinna.

27.2.2009

Ferđ í Nóa Siríus

6N-noi1317. febrúar fór 6-N í heimsókn í Nóa Siríus og fékk að fylgjast með páskaeggjagerð. Fjórar mæður ásamt kennara óku nemendum á staðinn.

Sigfríð móttökustjóri þeirra Nóa manna tók á móti hópnum og leiddi hann um verksmiðjuna, sýndi og sagði frá framleiðsluferli hinna ýmsu sælgætistegunda ásamt aðal markmiði ferðarinnar að fylgjast með framleiðslu páskaeggjanna.

Einnig heilsaði Tryggvi verksmiðjustjóri upp á krakkana. Voru þeir svo leystir út með sælgætispokum og þökkuðu fyrir sig með því að syngja Þorraþrælinn 1866 fyrir starfsfólkið. Var þetta hin ánægjulegasta ferð.

27.2.2009

Bekkjarkvöld

6N-bekkjarkvold1320. febrúar var haldið bekkjarkvöld hjá 6. bekk N í Kjarnanum. Var vel mætt og margt sér til gamans gert. Nemendur komu fram með margs konar atriði svo sem látbragðskeppni, hljóðfæraleik, leikrit, brandara, ljóðalestur, húlakeppni og fjöldasöng svo fátt eitt sé nefnt. Var fólk duglegt að taka þátt ef eftir því var leitað, bæði börn og fullorðnir. Að atriðum loknum voru veitingar í boði foreldra og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir. Fóru allir glaðir heim eftir ánægjulega og vel heppnaða samveru.

17.2.2009

Frćđsla frá Heimili og skóla um Netnotkun barna og unglinga

saft4Á mánudag og þriðjudag 16. og 17. febrúar voru haldnir fyrirlestrar fyrir foreldra og nemendur í 5.-10. bekk um jákvæða og örugga notkun barna og unglinga á Netinu. Á fyrirlestrunum var fjallað um bloggsíður, tölfræðilegar upplýsingar, msn einelti, Netið og friðhelgi einkalífsins, nettælingu og netvini. Fræðsla af þessu tagi er mjög þörf í nútima samfélagi. Sjá einnig frétt um rafrænt einelti  neðar á síðunni.  

Skoða myndir

16.2.2009

6-S í heimsókn á Gerđarsafni

GerðarsafnMánudaginn 16. febrúar sáu nemendur 6-S sýningu textílfélagsins í Listasafni Kópavogs- Gerðarsafni. Sýningin nefnist Ţverskurður og er íslenska ullin og hrosshár aðal efniviður verkanna. Meðal listamanna sem eiga verk á sýningunni eru Júlíana Sveinsdóttir, Barbara Árnason, Kristín Jónsdóttir frá Munkaþverá, Ásgerður Búadóttir og Valgerður Briem. Svava starfsmaður  safnsins sá um fræðslu og leiðsögn á sýningunni. Síðan lá leiðin í Kópavogskirkju þar sem Ægir Fr. Sigurgeirsson sóknarprestur sýndi  nemendum  fjóra útsaumaða hökla og sagði frá steindu gluggum listakonunnar Gerðar Helgadóttur sem prýða kirkjuna.

16.2.2009

Sleđaferđ

sleðaferðFimmtudaginn 12. febrúar fór 3. bekkur í Bræðratungubrekku að renna sér. Sumir renndu sér á snjósleðum á meðan aðrir létu sér plastpoka duga. Það var mikið fjör og erfitt að slíta sig frá brekkunni þegar tími var kominn til að halda heim í nesti.

12.2.2009

Listaverk í Dćgradvöl

dægradvol Í Dægradvöl skólans er starfsemin blómleg og gaman að fylgjast með þeim verkefnum sem þar eru unnin. Verk krakkanna eru  lífleg og skemmtileg og það sama má segja um verk starfsmannanna. Hjá Vericu er heklunálin alltaf á iði ef tækifæri gefst til og börnin fylgjast spennt með því sem þar verður til. Nú er heilt listaverk komið á einn vegginn og það stækkar stöðugt eins og sjá má á myndunum.

11.2.2009

Rafrćnt einelti

SAFTŢriðjudaginn 10. febrúar var haldið málþing um rafrænt einelti í húsnæði Háskóla Íslands við Stakkahlíð. Margir aðilar komu að málþinginu sem var skipulagt af samtökum sem kallast SAFT - samfélag, fjölskylda og tækni

9.2.2009

Afmćlisgestir

amæli-kopsk9Föstudaginn 6. febrúar komu Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri og Anna Birna Snæbjörnsdóttir, framkvæmdastjóri fræðslusviðs, í heimsókn í Kópavogsskóla í tilefni af afmæli skólans. Nemendur og starfsmenn mættu í Kjarnann þar sem stutt dagskrá var. Sunginn var Kópavogsbragur Ríó tríósins, texti Böðvars Guðlaugssonar, og einnig fyrsta erindi kvæðisins Kópavogsbær eftir Þorstein Valdimarsson, Vagga börnum og blómum. Stiklað var á stóru í sögu skólans og Gunnar bæjarstjóri flutti ávarp og færði skólanum bókargjöf. Guðmundur skólastjóri afhenti gestum afmælismerki skólans. Við þökkum þeim Gunnari og Önnu Birnu fyrir ánægjulega heimsókn.

Sjá myndir.

9.2.2009

Skólaráđ Kópavogsskóla

Skólaráð KópavogsskólaFyrsti formlegi fundur skólaráðs Kópavogsskóla var haldinn föstudaginn 6. febrúar. Skólaráð er ,,samráðsvettvangur skólastjóra og skólasamfélags um skóla" og hlutverk þess er að fjalla um skólanámskrá og ýmsar áætlanir um skólahaldið svo eitthvað sé nefnt.

4.2.2009

Fallegur vetrardagur

Meðfylgjandi myndir eru teknar fimmtudaginn 29. janúar af Ásgeiri Loga Axelssyni í 9. Þ og Hauði Kristinsdóttur myndmenntarkennara. Þær sýna umhverfi Kópavogsskóla á fallegum vetrardegi sem hafa verið nokkuð margir undanfarið.

 Vetur  Vetur Vetur   sjá fleiri myndir

29.1.2009

Bćtt ţjónusta í dćgradvöl

Nemendur í dægradvöl hafa fram að þessu þurft að koma með síðdegishressingu að heiman. Síðastliðið haust kannaði forstöðumaður dægradvalar vilja foreldra til breytinga á því fyrirkomulagi. Í ljós kom að hann var allur í þá átt að börnin gætu fengið keypt nesti í skólanum í stað þess að láta það velkjast í töskunni allan daginn. Nú er undirbúningi á breyttu fyrirkomulagi lokið. Frá og með mánaðamótunum janúar-febrúar þurfa nemendur ekki að taka síðdegishressingu með sér að heiman því hún verður útbúin í skólanum.  Matargjaldið er innheimt með dvalargjöldum en er síðan millifært á sérstakan reikning og allt sem þar fer inn er ætlað nemendunum. Ekki er stefnt að því að upp safnist sjóður og því verður afgangi (ef verður til) ráðstafað í þágu barnanna í lok skólaárs. Á ráðstöfunardögum fá þeir nemendur sem eru í dægradvöl einnig morgun- og hádegishressingu í skólanum.

26.1.2009

Fundur öryggisnefnda

Föstudaginn 23. janúar var haldinn sameiginlegur fundur öryggisnefndar foreldra og öryggisnefndar starfsmanna Kópavogsskóla. Af hálfu foreldra mættu Helgi Hafsteinsson og Pálmi Gunnarsson. Guðmundur Ásmundsson, skólastjóri, fór yfir þá þætti sem endurbættir hafa verið og fulltrúar foreldra fóru yfir það sem þeir telja að  þurfi frekari skoðunar við. Þar má nefna athugun á því hvaða leið er best fyrir fótgangendur í tónlistarskóla, söfn og aðra staði í nágrenninu. Einnig þarf að bæta lýsingu austanmegin við skólann, bæði fyrir gangandi vegfarendur og á leiksvæðinu.

23.1.2009

„Best" stćrđfrćđikeppni

Nemendur í 9. U og 9. Þ tóku í dag þátt í lotu tvö í „Best“ stærðfræðikeppninni. Stærðfræðikeppnin á rætur sínar í Noregi og gekk fyrr undir heitinu KappAbel, kennd við norska stærðfræðinginn Niels Henrik Abel (1802-1829) sem Abelsverðlaunin heita eftir en þeim hefur verið jafnað við Nóbelsverðlaunin.  Hvert ríki Norðurlandanna hefur sitt eigið nafn á keppninni. Íslenska heitið er BEST og stendur fyrir það að bekkirnir keppi í stærðfræði.
Keppnin, sem íslenskir 9. bekkir hafa tekið þátt í síðan haustið 2001, hefur auk þemaverkefnis snúist um að gefa nemendum kost á að spreyta sig á góðum stærðfræðiþrautum, vinna saman og færa rök fyrir máli sínu.

23.1.2009

Vísindamađur ađ láni

Föstudaginn 16. janúar hélt Dr. Margrét Hallsdóttir, jarðfræðingur á Náttúrufræðistofnun Íslands, fyrirlestur fyrir nemendur á unglingastigi um sumarhnerra og frjókorn (ofnæmi). Margrét hefur haft  umsjón með frjómælingum og annast frjórannsóknir á vegum stofnunarinnar. Nokkuð stór hópur nemenda hefur kynnst þessu ofnæmi af eigin raun og  óhætt er að segja að þeir hafi hlustað af athygli.

21.1.2009

Nýyrđasamkeppni í 5.-7. bekk

VerðlaunaafhendingÚrslit hafa nú verið tilkynnt í Nýyrðakeppni í 5.-7. bekk grunnskóla sem hleypt var af stokkunum á degi íslenskrar tungu þann 16. nóvember. Þeir sem stóðu að keppninni voru: Íslensk málnefnd, Námsgagnastofnun, Stofnun Árna Magnússonar og Skýrslutæknifélag Íslands.  Alls bárust úrlausnir frá 1763 nemendum um land allt.

Veittar voru 8 viðurkenningar. Einn nemandi í Kópavogsskóla hlaut viðurkenningu en það er Halldór Kári Kristmundsson í 5.X. Hann fékk forláta íslenska orðabók afhenta í gær.

15.1.2009

Ljóđasamvinna kynslóđanna

3be-gjabakki10Átta ára nemendur í Kópavogsskóla og eldri borgarar í félagsmiðstöðinni Gjábakka í Kópavogi sameina krafta sína og gefa út ljóðabók. Undanfarin ár hefur núverandi 3. bekkur í Kópavogsskóla farið reglulega í heimsókn til eldri borgara á Gjábakka, sungið fyrir gesti þar og tekið þátt í leikfimitímum. Eldri borgarar hafa endurgoldið heimsóknir þeirra og tekið þátt í ýmsum viðburðum hjá bekknum og kennslustundum.

Ragna Sigurðardóttir kennari og Sigurbjörg Björgvinsdóttir, yfirmaður félagsstarfsins á Gjábakka, hafa lagt drög að útgáfu framangreindrar ljóðabókar sem unnin verður í samstarfi nemenda og gesta á Gjábakka.

15.1.2009

Danskennsla í 1. - 3. bekk

dans9Að loknu jólafríi hófst danskennsla hjá nemendum 1. - 3. bekkjar. Kennt er á þriðjudögum á skólatíma og fer kennslan fram í stofu 102. Áætlað er að þessir bekkir fái kennslu fram að páskafríi. Kennari er Heiðar Ástvaldsson, danskennari.

12.1.2009

Afmćli Kópavogsskóla

Í dag, mánudaginn 12. janúar, er þess minnst að 60 ár eru liðin frá því að Kópavogsskóli tók til starfa í elsta hluta núverandi húsnæðis. Af því tilefni var dagskrá fyrir nemendur, starfsmenn og boðsgesti kl. 9:50 - 11:00.  Þar var m.a. litið  yfir farinn veg. Dagskráin hófst á setningarávarpi Guðmundar Ó. Ásmundssonar skólastjóra og síðan tók við dagskrá með hljóðfæraleik nemenda í Skólahljómsveit Kópavogs undir stjórn Össurar Geirssonar. Afmælissöngurinn var sunginn einnig fyrsta erindi kvæðisins Kópavogsbær eftir Þorstein Valdimarsson og Kópavogsbragur Ríó tríósins, texti Böðvars Guðlaugssonar. Stjórnandi söngs var Skarphéðinn Hjartarson, tónmenntakennari.  Ólafur Guðmundsson, fyrrverandi skólastjóri Kópavogsskóla, var nemandi hér þegar skólinn tók til starfa og sagði frá þeim degi. Af 55 starfsmönnum Kópavogsskóla eru 10 gamlir nemendur skólans og nokkrir þeirra rifjuðu upp atvik og tíðaranda fyrri ára og áratuga í skólanum.

Fréttir - á RSS-formi

Viđburđir

 «Maí 2012» 
sunmánţrimiđfimföslau
  12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031  

6HSkólamaturHeimili og skóli

Slóđin ţín:

Forsíđa

Mynd