Fréttir
29.1.2009
Bćtt ţjónusta í dćgradvöl
Nemendur í dægradvöl hafa fram að þessu þurft að koma með síðdegishressingu að heiman. Síðastliðið haust kannaði forstöðumaður dægradvalar vilja foreldra til breytinga á því fyrirkomulagi. Í ljós kom að hann var allur í þá átt að börnin gætu fengið keypt nesti í skólanum í stað þess að láta það velkjast í töskunni allan daginn. Nú er undirbúningi á breyttu fyrirkomulagi lokið. Frá og með mánaðamótunum janúar-febrúar þurfa nemendur ekki að taka síðdegishressingu með sér að heiman því hún verður útbúin í skólanum. Matargjaldið er innheimt með dvalargjöldum en er síðan millifært á sérstakan reikning og allt sem þar fer inn er ætlað nemendunum. Ekki er stefnt að því að upp safnist sjóður og því verður afgangi (ef verður til) ráðstafað í þágu barnanna í lok skólaárs. Á ráðstöfunardögum fá þeir nemendur sem eru í dægradvöl einnig morgun- og hádegishressingu í skólanum.
26.1.2009
Fundur öryggisnefnda
Föstudaginn 23. janúar var haldinn sameiginlegur fundur öryggisnefndar foreldra og öryggisnefndar starfsmanna Kópavogsskóla. Af hálfu foreldra mættu Helgi Hafsteinsson og Pálmi Gunnarsson. Guðmundur Ásmundsson, skólastjóri, fór yfir þá þætti sem endurbættir hafa verið og fulltrúar foreldra fóru yfir það sem þeir telja að þurfi frekari skoðunar við. Þar má nefna athugun á því hvaða leið er best fyrir fótgangendur í tónlistarskóla, söfn og aðra staði í nágrenninu. Einnig þarf að bæta lýsingu austanmegin við skólann, bæði fyrir gangandi vegfarendur og á leiksvæðinu.
23.1.2009
„Best" stćrđfrćđikeppni
Nemendur í 9. U og 9. Þ tóku í dag þátt í lotu tvö í „Best“ stærðfræðikeppninni. Stærðfræðikeppnin á rætur sínar í Noregi og gekk fyrr undir heitinu KappAbel, kennd við norska stærðfræðinginn Niels Henrik Abel (1802-1829) sem Abelsverðlaunin heita eftir en þeim hefur verið jafnað við Nóbelsverðlaunin. Hvert ríki Norðurlandanna hefur sitt eigið nafn á keppninni. Íslenska heitið er BEST og stendur fyrir það að bekkirnir keppi í stærðfræði.
Keppnin, sem íslenskir 9. bekkir hafa tekið þátt í síðan haustið 2001, hefur auk þemaverkefnis snúist um að gefa nemendum kost á að spreyta sig á góðum stærðfræðiþrautum, vinna saman og færa rök fyrir máli sínu.
23.1.2009
Vísindamađur ađ láni
Föstudaginn 16. janúar hélt Dr. Margrét Hallsdóttir, jarðfræðingur á Náttúrufræðistofnun Íslands, fyrirlestur fyrir nemendur á unglingastigi um sumarhnerra og frjókorn (ofnæmi). Margrét hefur haft umsjón með frjómælingum og annast frjórannsóknir á vegum stofnunarinnar. Nokkuð stór hópur nemenda hefur kynnst þessu ofnæmi af eigin raun og óhætt er að segja að þeir hafi hlustað af athygli.
21.1.2009
Nýyrđasamkeppni í 5.-7. bekk
Úrslit hafa nú verið tilkynnt í Nýyrðakeppni í 5.-7. bekk grunnskóla sem hleypt var af stokkunum á degi íslenskrar tungu þann 16. nóvember. Þeir sem stóðu að keppninni voru: Íslensk málnefnd, Námsgagnastofnun, Stofnun Árna Magnússonar og Skýrslutæknifélag Íslands. Alls bárust úrlausnir frá 1763 nemendum um land allt.
Veittar voru 8 viðurkenningar. Einn nemandi í Kópavogsskóla hlaut viðurkenningu en það er Halldór Kári Kristmundsson í 5.X. Hann fékk forláta íslenska orðabók afhenta í gær.
15.1.2009
Ljóđasamvinna kynslóđanna
Átta ára nemendur í Kópavogsskóla og eldri borgarar í félagsmiðstöðinni Gjábakka í Kópavogi sameina krafta sína og gefa út ljóðabók. Undanfarin ár hefur núverandi 3. bekkur í Kópavogsskóla farið reglulega í heimsókn til eldri borgara á Gjábakka, sungið fyrir gesti þar og tekið þátt í leikfimitímum. Eldri borgarar hafa endurgoldið heimsóknir þeirra og tekið þátt í ýmsum viðburðum hjá bekknum og kennslustundum.
Ragna Sigurðardóttir kennari og Sigurbjörg Björgvinsdóttir, yfirmaður félagsstarfsins á Gjábakka, hafa lagt drög að útgáfu framangreindrar ljóðabókar sem unnin verður í samstarfi nemenda og gesta á Gjábakka.
15.1.2009
Danskennsla í 1. - 3. bekk
12.1.2009
Afmćli Kópavogsskóla
Í dag, mánudaginn 12. janúar, er þess minnst að 60 ár eru liðin frá því að Kópavogsskóli tók til starfa í elsta hluta núverandi húsnæðis. Af því tilefni var dagskrá fyrir nemendur, starfsmenn og boðsgesti kl. 9:50 - 11:00. Þar var m.a. litið yfir farinn veg. Dagskráin hófst á setningarávarpi Guðmundar Ó. Ásmundssonar skólastjóra og síðan tók við dagskrá með hljóðfæraleik nemenda í Skólahljómsveit Kópavogs undir stjórn Össurar Geirssonar. Afmælissöngurinn var sunginn einnig fyrsta erindi kvæðisins Kópavogsbær eftir Þorstein Valdimarsson og Kópavogsbragur Ríó tríósins, texti Böðvars Guðlaugssonar. Stjórnandi söngs var Skarphéðinn Hjartarson, tónmenntakennari. Ólafur Guðmundsson, fyrrverandi skólastjóri Kópavogsskóla, var nemandi hér þegar skólinn tók til starfa og sagði frá þeim degi. Af 55 starfsmönnum Kópavogsskóla eru 10 gamlir nemendur skólans og nokkrir þeirra rifjuðu upp atvik og tíðaranda fyrri ára og áratuga í skólanum.
















