Fréttir
18.12.2009
Litlu jól
Jólaskemmtanir voru haldnar 17. og 18. desember. Fimmtudaginn 17. desember voru unglingadeildir með sína skemmtun frá kl. 20:00-23:00. Þar voru sýnd frumsamin leikrit og stuttmynd, spurningaþáttur var að Útsvarsfyrirmynd og hljómsveitir skipaðar nemendum tróðu upp. Gengið var í kringum jólatréð og sungið af hjartans lyst. Að lokum var diskótek.
Skemmtun yngstu nemenda, 1. - 4. bekkjar, var haldin föstudaginn 18. desember kl. 09:00 - 10:00. Hún hófst með leik Skólahljómsveitar Kópavogs undir stjórn Snorra Sigurðarsonar og í þetta sinn voru það eingöngu nemendur úr Kópavogsskóla sem spiluðu.
17.12.2009
Flokkun og endurvinnsla
Síðastliðið vor voru lögð drög að því að flokka allt sorp sem fellur til í Kópavogsskóla. Ákveðið var að taka upp þriggja tunnu kerfi og farið í samstarf við Íslenska gámafélagið um allt skipulag. Ráðgjafar þeirra unnu Flokkunarhandbók sérstaklega fyrir skólann og starfshópur innan skólans hefur unnið að skipulagi hér innanhúss í samræmi við tillögur þeirra. Í síðustu viku var lokið við að setja upp lítið gámasvæði við skólann og með tilkomu þess er allt skipulag frágengið og farið að vinna eftir kerfinu.
17.12.2009
Heimilisfrćđi í desember
Í siðustu heimilisfræðitímum fyrir jól hafa nemendur búið til ýmsa rétti. Stelpurnar í 8. bekk útbjuggu tortillur með hakki og grænmeti og í eftirrétt voru ávextir með vanillusósu. Krakkarnir í 2. B bjuggu til kókoskúlur og voru mjög duglegir að ganga vel frá öllu á eftir og gera fínt. Hjá valhópnum í 9. bekk samanstóð matseðillinn af Doritos kjúklingi með hrísgrjónum og salati í aðalrétt og ís með heitri súkkulaðisósu í eftirrétt. Góðum gestum var boðið í mat og allir nutu vel.
17.12.2009
Jólaundirbúningur hjá 4. bekk
Jólaundirbúningurinn hjá 4. H og L hófst strax í október. Var þá farið niður að Hvammshúsi og náð í trjágreinar og köngla til að föndra úr. Síðustu vikur hefur farið mikill tími í að æfa jólahelgileik sem sýndur verður á jólaskemmtun. Samstarfið við Gjábakka gengur vel og fólkið frá íþróttafélaginu Glóðinni er duglegt að koma og kenna krökkunum alls konar skemmtilega dansa.
16.12.2009
Jólastund á skólasafninu
Síðustu tvær vikur fyrir jól er mikið um að vera á safninu. Þá eru ljósin deyfð, safnið skreytt og dúkar eru á borðum. Bekkir koma í heimsókn, hlusta á jólasögur og boðið er upp á kakó og piparkökur.
Í ár hafa nemendur úr 7. bekkjum séð um upplestur á jólasögum og jólavísum fyrir nemendur í 1.-6. bekk. Hafa þau öll staðið sig með prýði. Nemendur í 8. og 9. bekk koma einnig í jólaheimsókn, hlusta á sögu og fá kakó.
Á myndasíðu má sjá myndir sem teknar voru á safninu.
11.12.2009
Kirkjuferđ á ađventu
Hin árlega kirkjuferð nemenda Kópavogsskóla í Digraneskirkju var farin fimmtudaginn 10. desember. Gengið var til og frá kirkju í tveimur hópum. 1.- 6. bekkur kl. 10:00 og 7.-10. bekkur kl. 11:00. Í kirkjunni léku Hrafnhildur og Hugrún í 10. bekk jólalög og nemendur úr 8. bekk lásu jólaguðspjallið, jólasögur og jólaljóð. Jólasálmar voru sungnir og farið með bænir og allir komust í jólaskap.
8.12.2009
Ungur rithöfundur á skólasafni
8.12.2009
Niđurstöđur samrćmdra prófa
Niðurstöður samræmdra prófa liggja nú fyrir þó enn vanti ýmsar tölfræðiupplýsingar frá Námsmatsstofnun. Foreldrar hafa fengið í hendur niðurstöðurnar þar sem fram koma meðaleinkunnir barna í hverri grein auk meðaleinkunna fyrir landið og svæðið í heild og raðeinkunn en hún staðsetur einkunn nemenda út frá jafnöldrum á öllu landinu. Nemendur Kópavogsskóla stóðu sig í heildina vel og í sumum tilvikum frábærlega. Fyrir þá sem vilja kynna sér niðurstöðurnar er hér tengill á skjal með helstu niðurstöðum en á vef Námsmatsstofnunar eru síðan nánari upplýsingar um prófin og niðurstöðurnar í heild.

















