Beint á leiđarkerfi vefsins

Fréttir

25.9.2009

Heimsókn grćnlenskra barna

Nokkur undanfarin haust hafa grænlenskir nemendur heimsótt Kópavog í þeim tilgangi að læra að synda. Nú í haust hafa þeir verið hér í 10 daga (14.-24. sept.) en samhliða sundnáminu hafa þeir verið í kennslu í 6. bekkjum Kópavogs- og Kársnesskóla. Tólf nemendur voru hér í Kópavogsskóla ásamt 2 kennurum.

9.9.2009

Viđurkenning

Kópavogsskóla hefur borist viðurkenningarskjal þar sem nemendum, foreldrum og starfsmönnum eru færðar þakkir fyrir framlag sitt til UNICEF. Undanfarin þrjú ár hafa nemendur skólans tekið þátt í UNICEF-hreyfingunni og safnað áheitum til styrktar þurfandi börnum um allan heim. Alls hafa nemendur skólans safnað kr. 806.641- frá því verkefnið hófst. Það er frábær frammistaða og nemendur fá sérstakt hrós fyrir. Viðurkenningarskjalið má sjá hér

3.9.2009

Útikennsla og ferđir

Í upphafi skólaárs er reynt að nýta góða veðrið til útivistar. Í haust fór útivist nemenda fram í nágrenni skólans og í óbyggðum. Nemendur 2. bekkjar fóru í gönguferð í nágrenni skólans og söfnuðu hráefni í verkefnavinnuna sem er framundan. Nemendur 10. bekkjar gengu á Esju í frábæru veðri og nemendur 8. bekkjar fóru í hjólreiðaferð á hálendinu með jafnöldrum sínum úr Norðlingaskóla. Myndavélar voru að sjálfsögðu teknar með og í myndasafninu hér má sjá myndir úr þessum ferðum. Varla þarf að taka það fram að nemendur stóðu sig frábærlega og voru sér og sínum til sóma.

Fréttir - á RSS-formi

Viđburđir

 «Maí 2012» 
sunmánţrimiđfimföslau
  12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031  

6HSkólamaturHeimili og skóli

Slóđin ţín:

Forsíđa

Mynd