Beint á leiđarkerfi vefsins

Fréttir

20.12.2010

Jólaskemmtanir

Jólaskemmtunum á öllum stigum skólans er nú lokið. Nemendur voru með mjög góð skemmtiatriði og síðan var gengið í kringum jólatréð. Allir skemmtu sér mjög vel. Skólinn hefst aftur að jólaleyfi loknu á nýju ári þann 4. janúar með starfsdegi kennara en nemendur mæta eftir stundaskrá miðvikudaginn 5. janúar. Myndir frá jólaskemmtunum eru á myndasíðu hér til vinstri á síðunni. Gleðileg jól.

17.12.2010

Síđasti kennsludagur fyrir jólafrí

JólafríÍ dag var síðasti kennsludagur fyrir jólafrí. Mikil jólastemning hefur ríkt í skólanum í dag. Margir bekkir héldu svokölluð stofujól, þar sem smákökur voru maulaðar og jólasaga lesin. Þá skreytti sjötti bekkur piparkökur sem þau komu með að heiman, sumir æfðu leikrit fyrir jólaskemmtanir, einhverjir horfðu á jólamynd og fleira skemmtilegt var gert. Í hádeginu var boðið upp á jólamat í mötuneytinu, hangikjöt með öllu tilheyrandi og ís í eftirrétt. 

16.12.2010

Jólastund á skólasafninu

jol-a-safninu17Í desember hefur verið mikið um að vera á safninu.  Þá eru ljósin deyfð,  safnið skreytt og dúkar eru á borðum. Allir bekkir skólans koma í heimsókn, hlusta á jólasögur og  fá kakó og piparkökur. Nemendur úr 7. og 8. bekkjum hafa lesið upp  jólasögur og jólavísur fyrir nemendur í 1.-6. bekk. Hafa þau öll staðið sig með prýði.

15.12.2010

LEGO námskeiđ

LegoJóhann Breiðfjörð hefur undanfarna þriðjudaga verið með tækni-lego námskeið í Kópavogsskóla. Hann starfaði í fimm ár sem hönnuður og hugmyndasmiður hjá LEGO fyrirtækinu í Danmörku og hefur undanfarin ár boðið upp á námskeið í grunnskólum og félagsmiðstöðvum. Myndirnar sem fylgja eru teknar á námskeiðinu hjá Jóhanni. Hann mætti með um 100 kg af tækni-legokubbum og ekki var annað að sjá en þátttakendum líkaði vel og áhuginn mikill.

10.12.2010

Kirkjuheimsókn á ađventu

KirkjuferðEins og venjulega á aðventu var farið í heimsókn í Digraneskirkju. Nemendur og kennarar skólans fóru í tveimur hópum. Fyrri hópurinn fór í gær en það voru nemendur í 1.- 3. bekk og 8.- 10. bekk og fylgdu elstu nemendur skólans þeim yngstu. Gaman var að sjá hversu góð samvinna myndaðist milli unglinganna og yngri barnanna. Seinni hópurinn fór síðan í dag og voru það nemendur úr 4. -7. bekk. Væntanleg fermingarbörn úr 8. bekk sáu um dagskrá í kirkju auk presta kirkjunnar. Þetta var hátíðleg stund sem kom öllum viðstöddum í jólaskap. 

7.12.2010

Tónlist fyrir alla

Tónlist unglingarBjörn Thoroddsen, Egill Ólafsson og Jón Rafnsson héldu tónleika fyrir nemendur unglingastigs í sal Kópavogsskóla í gær. Þar spiluðu þeir og sungu létt og skemmtileg lög sem krakkarnir þekktu mörg hver. Þar má nefna Stuðmannalögin  ,,Svarti Pétur" og ,,Manst´ekki eftir mér".  Egill spilaði m.a. á risastórt grasker og þurfti sérstakan hjálparmann úr hópi nemenda til að halda á hljóðnemanum á meðan. Þeim félögum eru færðar bestu þakkir fyrir skemmtunina sem tókst mjög vel.

25.11.2010

Tónlist fyrir alla

Í dag komu hingað góðir gestir og fluttu tónlist fyrir nemendur í 1.- 4. bekk á vegum verkefnisins "Tónlist fyrir alla". Þetta voru þau Bára Grímsdóttir og Chris Foster sem spiluðu gömul íslensk lög á hörpu, langspil og gítar. Einnig sungu þau og nemendur tóku undir.  

24.11.2010

Ţemadagar

ţemadagarSíðustu tvo daga hefur hefðbundin kennsla verið brotin upp með þemavinnu. Yfirskrift daganna var "Hugað að aðventu og jólum". En næsti sunnudagur er einmitt fyrsti sunnudagur í aðventu. Unnin voru margs konar verkefni tengd jólum. Má þar nefna piparkökubakstur og -skreytingar, konfektgerð, tálgun, jólaföndur, jólakort, samdar og lesnar jólasögur og horft á jólabíó. Einnig var nemendum boðið að fara í leiki eða sund. Þessa daga hefur ánægja og vinnugleði skinið úr hvers manns andliti og voru dagarnir einstaklega vel heppnaðir.

22.11.2010

1. bekkur í gönguferđ

1. bekkur KirkjuholtNemendur í 1. bekk gengu upp á Kirkjuholt í síðustu viku í góðu veðri. Þar léku börnin sér innan um álfa og tröll. Allir komu brosandi og kátir til baka.

16.11.2010

Dagur íslenskrar tungu

Dagur íslenskrar tunguÍ tilefni Dags íslenskrar tungu kom Þórarinn Eldjárn rithöfundur í heimsókn í skólann. Hann las úr ljóðabókum sínum fyrir nemendur og sungin voru lögin "Á íslensku má alltaf finna svar" og "Stafrófskver", en þau eru með textum eftir Þórarin. Einnig fluttu nokkrir nemendur frumsamin ljóð ásamt ljóðum eftir aðra höfunda.

10.11.2010

Getkó

GetkóMánudaginn 18. október var keppt til úrslita í Getkó sem er sameiginleg spurningakeppni félagsmiðstöðva í Kópavogi. Þrír drengir úr Kópavogsskóla skipuðu lið Kjarnans sem vann keppnina. Í liðinu voru þeir Hjörtur Ingi Skarphéðinsson 9. bekk, Jóhann Ragnarsson og Magnús Jónsson úr 10. bekk. Við óskum þeim innilega til hamingju og erum stolt af þessum góða árangri þeirra.

9.11.2010

Heimsókn frá rithöfundi

Í morgun kom Margrét Örnólfsdóttir rithöfundur og las fyrir nemendur 5. - 7. bekkjar úr nýjustu bók sinni Aþena, hvað er málið með Haítí? Bókin er sjálfstætt framhald bókarinnar Aþena (ekki höfuðborgin í Grikklandi), sem hlaut Fjöruverðlaunin í flokki unglingabóka í ár. Margrét er rithöfundur, handritshöfundur og tónlistarkona. Meðal verka hennar er dans- og söngvamyndin Regína, sjónvarpsþættirnir Svartir englar, Réttur og Stelpurnar. Margrét var hljómborðsleikari Sykurmolanna á árum áður. Við þökkum Margréti fyrir skemmtilegan upplestur.

29.10.2010

Rafheimar

Rafheimar9. bekkur RT fór í heimsókn í Rafheima en krakkarnir eru þessa dagana að fræðast um rafmagn í náttúrufræði. Stefán Pálsson tók á móti hópnum og byrjaði á skemmtilegri fræðslu um rafmagn þar sem hann fékk nokkra sjálfboðaliða til aðstoðar við sig. Því næst fengu nemendur að spreyta sig á nokkrum tilraunum. Að lokum skoðuðu þau sig um á þessu spennandi og skemmtilega safni. Nemendur voru mjög áhugasamir og skólanum til sóma á allan hátt.

27.10.2010

Endurskinsmerki gefin í 1. bekk

skátarÍ dag kom fulltrúi skáta, Inga Kristjánsdóttir, í 1. bekk og afhenti nemendum og umsjónarkennurum endurskinsmerki. Hún söng með krökkunum um nauðsyn þess að nota endurskinsmerki og spilaði undir á "ukulele".

27.10.2010

Töfraflautan

töfraflautan 2Föstudaginn 22. október var nemendum í 4. - 7. bekk boðið á tónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands, Töfraflautuna. Tónleikarnir eru liður í verkefninu, Tónlist fyrir alla. Töfraflautan er ein vinsælasta ævintýraópera allra tíma og fengu öll vinsælustu lögin að fljóta með ekki síst hin ógleymanlega aría Næturdrottningarinnar, sem og tveir söngvar sem allir þekkja en vita kannski ekki að eru upphaflega úr óperu Mozarts: „Hann Tumi fer á fætur,“ og sálmurinn sem hér á landi er sunginn við textann „Í dag er glatt í döprum hjörtum.“ Ungir og efnilegir söngvarar sem allir eru í framhaldsnámi erlendis brugðu sér í helstu hlutverkin. 

Við skemmtum okkur mjög vel á þessum frábæru tónleikum og hegðun nemenda á tónleikunum  var til sóma. 

18.10.2010

Stjörnusjónauki

StjörnusjónaukiFimmtudaginn 14. október komu Tryggvi Kr. Jónsson og Gísli Már Árnason frá Stjörnuskoðunarfélagi Seltjarnarness í heimsókn og færðu skólanum að gjöf tvo Galíleósjónauka. Einnig færðu þeir skólanum heimildamyndina, Horft til himins og tímarit Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness. Með sjónaukunum er hægt að sjá gígana á tunglinu, Galíleótunglin við Júpíter og hringa við Satúrnus. Þá er einnig hægt með örlítilli færni að koma auga á fæðingarstaði stjarna og vetrarbraut í milljóna ljósára fjarlægð. Nánari upplýsingar má nálgast á vef Stjörnuskoðunarfélagsins http://www.stjornuskodun.is/. Við erum einkar þakklát fyrir þessa höfðinglegu gjöf og erum viss um að sjónaukarnir munu koma sér vel í kennslu nemenda og auka áhuga þeirra á stjörnuskoðun.

15.10.2010

Skólahlaup UMSK

Skólahlaup UMSK fyrir 4. - 7. bekk fór fram á Kópavogsvelli föstudaginn 15. október.  Það voru 75 hressir krakkar úr Kópavogsskóla sem mættu í hlaupið.  Allir þátttakendur fengu verðlaunapening og hressingu eftir hlaupið.  Tveir nemendur skólans náðu þeim góða árangri að sigra í sínum aldursflokki það voru þær Sólveig Jóhannesdóttir Larsen í 5-H og Agla María Albertsdóttir í 6-K. Ólöf Arna Ólafsdóttir í 4-E varð í þriðja sæti.

14.10.2010

Maritafrćđsla

Ţriðjudaginn 19. október koma Maritasamtökin í heimsókn í skólann með forvarnarfræðslu fyrir 8. - 10. bekk. Foreldrafundur verður kl. 17.30 - 19.30 í sal skólans.

Meginhugmynd fræðslunnar er að vekja nemendur til umhugsunar um skaðsemi vímugjafa og hvetja þau til að taka afstöðu gegn þeim.

Samhliða nemendafræðslu verður boðið upp á foreldrafund sem veitir sameiginlegan umræðugrundvöll unglinga og foreldra um þessi mikilvægu málefni.

8.10.2010

Listasafn Reykjavíkur

Listasafn ReykjavíkurMiðvikudaginn 6. október fóru nemendur 7. bekkjar X og Y á sýninguna Erró-klippimyndir í Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhúsi. Á sýningunni eru um það bil 130 klippimyndir sem Erró hóf að gefa Listasafni Reykjavíkur árið 1989. Myndirnar eru m.a. samsettar af myndbrotum eða setningum sem klipptar eru úr blöðum annars vegar og hins vegar af persónum sem eru teiknaðar fríhendis.

30.9.2010

Ferđ 4. bekkjar í Tilraunalandiđ

4. bekkur Tilraunalandið

Miðvikudaginn 15. september fóru 4. bekkingar í Tilraunalandið við Norræna húsið.  Margt var að sjá og prófa. Allir nutu sín vel og höfðu gagn og gaman af hinum ýmsu verkefnum og þrautum sem boðið var upp á. Ferðin heppnaðist vel í alla staði eins og sjá má á myndunum.

27.9.2010

Ferđ 3. bekkjar í Tilraunalandiđ

3. bekkur Tilraunalandið

Ţriðjudaginn 21. september fór 3. bekkur með strætó   til Reykjavíkur. Ferðinni var heitið í Norræna húsið að skoða Tilraunalandið. Ferðin tókst í alla staði vel og allir voru ánægðir eins og sjá má á myndunum.

22.9.2010

Hjólaferđ

hjólaferðNemendur í  valáfanganum íþróttir og útivist fóru í hjólaferð  föstudaginn 17. september.  Hjólað var frá Kópavogsskóla að Geithálsi þaðan að Hafravatni síðan haldið í Mosfellsbæ og þá eftir ströndinni að Bryggjuhverfinu í Grafarvogi. Þaðan var síðan hjólað heim í gegnum Fossvogsdalinn. Vegalengdin var 45 kílómetrar.  Óhætt er að segja að ferðin hafi gengið vel enda hópurinn góður og veðrið var eins og best verður á kosið til útivistar.  Þetta ferðalag var hluti af „IRONMAN" þríþraut þ.e. hjóla 180 km, hlaupa 42 km og synda 4 km.  Hópurinn hefur mætt vel og eru flestir langt komnir með að ljúka þessu verkefni.

21.9.2010

Heimsókn í Tennishöllina

Dagana 14. og 15.  september fóru nemendur í  1.- 4. bekk í heimsókn í Tennishöllina.  Nemendur fengu að spreyta sig með tennisspaðann í ýmsum æfingum og leikjum.  Meðfylgjandi eru nokkrar myndir frá heimsókn 1. og 3. bekkjar.

17.9.2010

Samrćmd könnunarpróf

Mánudagur 20. september, íslenska 10. bekkur kl. 9:00

Ţriðjudagur 21. september, enska 10. bekkur kl. 9:00

Miðvikudagur 22. september, stærðfræði 10. bekkur kl. 9:00

Fimmtudagur 23. september, íslenska 4. og 7. bekkur kl. 9:00

Föstudagur 24. september, stærðfræði 4. og 7. bekkur kl. 9:00

15.9.2010

Ferđ 6. bekkjar í Tilraunalandiđ

 

TilraunalandiðŢriðjudaginn 14. september fóru nemendur 6. bekkjar K og V í Norræna húsið á sýninguna Tilraunalandið. Á sýningunni eru vísindin kynnt á gagnvirkan og  skemmtilegan hátt með virkri aðstoð gesta. Meðal tilrauna og tækja sem nemendur kynntust voru Vatnshrúturinn, Sólarofninn, Kúlubekkurinn, Brunnurinn skjálfandi, Ölduvaggan, loftpúðaborðið, strimla spegillinn, hvirfilflöskur og orkuhjólið. Ferðin heppnaðist vel og nemendur voru til fyrirmyndar.

13.9.2010

Fjöruferđ 3. bekkjar

Fjöruferð 3. bekkjarŢann 8. september 2010 fór 3. bekkur B og M í gönguferð niður í Kópavogsfjöru. Erindið var að  finna og skoða það sem í fjörunni leynist. Það var ótrúlega mikið líf í fjörunni enda háfjara og unnu nemendur ötullega að sýnatökunni. Þegar heim var komið var fengurinn rannsakaður gaumgæfilega.

10.9.2010

Gönguferđ nemenda í 9. og 10. bekk

Gönguferð Hópur nemenda sem er í ,, Íslenskugrunni"  fór í gönguferð í góða veðrinu á dögunum upp að Kópavogskirkju og skráði  niður nöfn á fjöllum, byggingum, vogum og bæjum sem sáust frá kirkjuholtinu. Örnefni voru síðan tekin fyrir þegar í skólann var komið.

9.9.2010

Skólakynning fyrir foreldra í 1. bekk

Ţriðjudaginn 7. september var haldin skólakynning fyrir foreldra yngstu nemendanna. Skólastarfið var kynnt ásamt námsefni bekkjarins og starfsemi foreldrafélagsins. Vanda Sigurgeirsdóttir lektor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands flutti mjög góðan fyrirlestur um líðan barna í skóla. Ánægjulegt var að sjá hve margir foreldrar mættu á kynninguna.

2.9.2010

Skólakynningar

Skólakynningar/námskynningar fyrir foreldra verða sem hér segir:

2.-4. bekkur þriðjudaginn 7. september kl. 8:00 í stofum bekkjanna.

1. bekkur þriðjudaginn 7. september kl. 18:00 í sal skólans.

5.-7. bekkur miðvikudaginn 8. september kl. 8:00 í stofum bekkjanna.

8.-10. bekkur fimmtudaginn 9. september kl. 8:00 í stofum bekkjanna.

1.9.2010

Fyrsti skóladagurinn hjá 2. bekk

 Fyrsta gönguferð vetrarins var farin þriðjudaginn 24. ágúst sem jafnframt var fyrsti skóladagur barnanna. Leiðin lá niður í Hlíðargarð þar sem börnin léku sér í undurfögru umhverfi. Þar var margt spennandi að sjá í náttúrunni og ekki spillti góða veðrið fyrir.

26.8.2010

Ferđ 3. bekkjar í Víkina- sjóminjasafn

SjóminjasafniðÁ nýbyrjuðu skólaári verður haldið áfram í 3. bekk með fjölfærniverkefnið sem hófst í 1. bekk. Þar fléttast saman vinna í bóklegum og verklegum greinum. Fyrsta verkefni þessa skólaárs verður HAFIÐ og í tilefni af því fóru nemendur og kennarar í heimsókn í Víkina - sjóminjasafn sem staðsett er úti á Granda þar sem áður var frystihús BÚR. Varðskipið Óðinn er hluti af safninu en í ár eru 50 ár frá því að það kom til landsins.

18.8.2010

Skólasetning

Skólasetning Kópavogsskóla verður mánudaginn 23. ágúst. Nemendur mæta í sal skólans en fara síðan með umsjónarkennurum í stofur sínar og fá afhentar stundaskrár og önnur gögn frá kennurum. Bekkirnir mæta sem hér segir:

2.-4. bekkur kl. 9:00.

5.-7. bekkur kl. 10:00.

8.-10. bekkur kl. 11:00.

Haft verður samband við foreldra barna í 1. bekk símleiðis og þeir boðaðir í viðtal til umsjónarkennara.

Foreldrar eru að sjálfsögðu velkomnir til skólsetningar með börnum sínum.

4.8.2010

Tímamót

AðstoðarskólastjóraskiptiJóna Möller aðstoðarskólastjóri Kópavogsskóla hefur nú látið af því starfi en hún hóf störf við Kópavogsskóla haustið 1971 þá nýútskrifaður kennari.  Fyrstu árin starfaði hún sem almennur bekkjarkennari en vegna forfalla tók hún að sér stöðu yfirkennara (eins og það hét þá) veturinn 1976-1977. Hún varð síðan yfirkennari haustið 1985 og hefur gegnt því starfi þar til nú þó starfsheitið hafi breyst og sé í dag aðstoðarskólastjóri.

18.6.2010

Skólaslit

Miðvikudaginn 9. júní sl. var skólanum slitið. Skólaslit 1.-6. bekkja voru kl. 10:00 og 7.-9. bekkja kl. 11:00. Nemendur komu saman á sal skólans og léku feðgarnir Hjörtur Ingi í 8. bekk og Skarphéðinn tónlistarkennari saman eitt lag. Skólastjóri og deildastjórar þökkuðu nemendum samstarfið í vetur. Að lokum sungu nemendur eitt lag áður en þeir fóru í stofur og tóku á móti vitnisburði.

Útskrift 10. bekkinga var sama dag og að þessu sinni útskrifuðust 38 nemendur. Jóna Möller aðstoðarskólastjóri stýrði samkomunni. Tónlistaratriði og ljóðalestur  voru flutt í upphafi og voru það útskriftarnemendur sem sáu um flutninginn. Skólastjóri ávarpaði nemendur og gesti og fulltrúar nemenda ávörpuðu einnig samkomuna. Einnig voru afhent verðlaun fyrir góðan námsárangur. Skólaslitunum lauk með því að foreldrar 9. bekkinga buðu upp á veitingar.

9.6.2010

Íţróttir og útivist

Valáfanginn "Íþróttir og útivist" gekk vonum framar í vetur. Áfanganum lauk með hjólreiðaferðalagi 11.-12. maí sl. Hjóluð var Reykjavíkurleið í Bláfjöll og gist í skíðaskála Breiðabliks eina nótt. Farið var í hellaskoðun áður en hjólað var heim Hafnarfjarðarleið. Ferðin var erfið en skemmtileg að flestra mati. Okkur langar til að þakka nemendum fyrir frábæra frammistöðu í vetur. Ásta Sigrún og Ragnar Helgi.

7.6.2010

UNICEF hreyfingin

Föstudaginn 4. júní tóku nemendur í skólanum þátt í söfnun fyrir Unicef. Nemendur í 1.- 4. bekk fóru í alls konar þrautir á skólalóðinni og í íþróttahúsi. Nemendur í 5. -10. bekk hlupu á hlaupabrautinni á Kópavogsvelli, spiluðu hafnabolta, fótbolta eða blak á Kópavogstúni og fóru í þrautir í Hlíðagarði. Nemendur í 8.-10. bekk voru einnig með fótboltamót í Fífunni.

7.6.2010

Foreldraverđlaun Heimilis og skóla

Foreldraverðlaun Heimilis og skóla, landssamtaka foreldra, voru afhent í 15. sinn þann 1. júní, við athöfn í Þjóðmenningarhúsi við Hverfisgötu. Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra afhenti verðlaunin.

38 tilnefningar bárust til verðlaunanna að þessu sinni og voru 33 verkefni tilnefnd.  Kópavogsskóli var tilnefndur fyrir þróunarverkefnið Fjölfærni og skólastjóri tók á móti viðurkenningarskjali fyrir það.

Handhafar Foreldraverðlaunanna 2010 eru Vinafjölskyldur í Vesturbæjarskóla, verkefni Margrétar Gylfadóttur, Sesselju Ólafsdóttur og Maríu Helenu Sarabia, foreldra í Vesturbæjarskóla.

7.6.2010

Fótboltamót á miđstigi

Fótboltamót 5. -7. bekkinga var haldið miðvikudaginn 2. júní í Fífunni. Leikið var á þremur völlum samtímis, 6 strákalið og 3 stúlknalið. Úrslit urðu þau að strákarnir í 7. N og stúlkurnar í 7. N og 7. S unnu mótið.

7.6.2010

Útskriftarferđ 10. bekkjar

Nemendur úr tíunda bekk fóru í ánægjulega útskriftarferð að Drumboddsstöðum við Hvítá. Allir skelltu sér í "riverrafting", snæddu góðan mat, nutu veðurblíðunnar og gistu í Bláfjallaskála um nóttina. Nemendur voru að öllu leyti til fyrirmyndar.

3.6.2010

Vorferđ 1. bekkjar

Fimmtudaginn 27. maí fór 1. bekkur í vorferð. Farið var í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn. Byrjað var í Húsdýragarðinum þar sem dýrin voru skoðuð og svo var farið í tilraunatjaldið þar sem margt skemmtilegt var að sjá. Síðan lá leiðin í Fjölskyldugarðinn en þar fengu börnin hressingu áður en þau fóru að leika sér. Eftir skemmtilegan morgun í sól og blíðu, tókum við strætó upp í skóla. Ferðin var mjög ánægjuleg og tókst í alla staði vel. Smellið á myndina til að sjá fleiri myndir.

31.5.2010

1. bekkur á Ţjóđminjasafni

Ţriðjudaginn 18. maí fór 1. bekkur í ferð í Þjóðminjasafnið. Börnin fræddust um baðstofur í gamla daga og fengu að sjá gamla hluti. Börnunum fannst þetta mjög spennandi og athyglisvert eins og sjá má á myndunum. Smellið á myndina til að sjá fleiri myndir.

27.5.2010

Hvalaverkefni í 4-H

4h-hvalir10Nemendur í 4-H unnu verkefni um hvali. Verkefnið var unnið á skólasafninu í samvinnu við skólasafnskennara. Nemendur fundu heimildir í bókum og á neti og færðu síðan upplýsingar í tölvu. Að því loknu bjuggu þeir til sína hvali og festu textann við.
Smellið á myndina hér til hliðar til að skoða fleiri myndir sem teknar voru af verkefnavinnunni og tilbúnum verkefnum.

26.5.2010

7-N - verkefni um Evrópu

7n-evropa2Í maí unnu nemendur í 7-N verkefni um nokkur valin Evrópulönd. Verkefnið var unnið í samvinnu bekkjarkennara og skólasafnskennara. Að vinnunni lokinni kynntu nemendahóparnir löndin sín.

25.5.2010

Fótboltamót í 3. og 4. bekk

Í dag var haldið fótboltamót í 3. og 4. bekk. Leikið var í þrettán liðum 6 stelpuliðum og 7 strákaliðum. Keppnisandinn var mikill og skemmtu allir sér vel í einstakri sumarblíðu.

19.5.2010

Upplestur í 1. og 2. bekkjum

Nokkrir nemendur úr 5. KV lásu barnasögur fyrir 1. og 2. bekk. Sögurnar höfðu þau samið í vetur í ritunartímum. Þau sömdu sögurnar, hönnuðu bækurnar og skreyttu eftir sínum smekk. Hugmyndin kviknaði er kennari sagði þeim frá og sýndi bækur sem 10. bekkingar höfðu gert. Þetta vakti lukku bæði hjá "rithöfundunum" og hlustendum.

14.5.2010

7. S á Ţjóđminjasafni Íslands

Mánudaginn 10. maí sl. heimsótti 7. S Þjóðminjasafn Íslands. Sýningin sem nemendur sáu ber titilinn "Þjóð verður til - Menning og samfélag í 1200 ár" en þar er saga þjóðarinnar rakin í tímaröð frá landnámi til dagsins í dag. Sögunni er skipt niður á sjö tímabil og fyrir hvert tímabil eru valdir atburðir eða merkar nýjungar sem mótað hafa þjóðarsöguna en einnig er bent á þætti í sögunni sem lítið hafa breyst um aldir s.s. friðartáknið.

14.5.2010

Sveitaferđ 2. B og M

SveitaferðMánudaginn 10. maí fóru nemendur 2. bekkjar B og M í sveitaferð ásamt kennurum sínum. Farið var að Miðdal í Kjós. Þar skoðuðu nemendur húsdýrin. Krakkarnir fengu að halda á lömbum, kettlingum og kiðlingum, ásamt því að kemba hestum, skoða í fjós og leika sér í hlöðunni. Ferðin heppnaðist vel að öllu leyti og allir komu ánægðir heim.

10.5.2010

Myndlistarsýning í Kópavogskirkju

kirkjuferð-myndlist12Á þemadögum í mars fóru nemendur 2. B og M í heimsókn í Kópavogskirkju, þar sem vel var tekið á móti þeim. Að heimsókn lokinni teiknuðu nemendur myndir af Kópavogskirkju sem nú hanga uppi til sýnis í anddyri kirkjunnar. Föstudaginn 7. maí fóru börnin aftur upp í kirkju til að opna og skoða sýningu sína.

5.5.2010

Pabbadagur

PabbadagurVikuna 26. - 30. apríl lærðu börnin í 1. bekk um stafinn P. Af því tilefni fengu pabbar barnanna að koma í heimsókn í skólann og sjá hvað börnin eru að gera. Það var ánægjulegt hve margir pabbar gátu komið.

5.5.2010

Tilraunalandiđ

Tilraunalandið 1. bekkurSíðastliðinn miðvikudag, 28. apríl, fór 1. bekkur í ævintýraferð í Tilraunalandið sem staðsett er í Norræna húsinu. Þegar nemendur komu á staðinn biðu þeirra fréttamenn og tóku upp frétt um Tilraunalandið sem nálgast má á þessum link:

http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2010/04/29/tilraunalandid/

Börnin fengu að prófa margar skemmtilegar tilraunir og nutu ferðarinnar vel eins og sjá má á myndunum.

5.5.2010

Skólaţing

Nemendum í 10. Þ var boðið á Skólaþing 3. maí sl. Þar fóru þau í hlutverkaleik, léku þingmenn í hinum ýmsu flokkum og fluttu frumvörp til skólaþings. Nemendur stóðu sig með prýði og hver veit nema þarna leynist upprennandi þingmenn framtíðarinnar.

5.5.2010

Jafningjafrćđslan

Jafningjafræðslan kom og heimsótti 10. bekkinga og fræddi þau um líf án áfengis og tóbaks. Þetta er hópur ungmenna í framhaldsskólum sem hefur valið þennan lífsstíl. Þau fara á milli skóla og halda fyrirlestra um forvarnir.

3.5.2010

Tónlist fyrir alla 1.- 4. bekkur

Tónlist fyrir allaFöstudaginn 30. apríl var hér flutt tónlist fyrir 1.-4. bekk í tónlistarröðinni Tónlist fyrir alla. Í ár eru liðin 90 ár frá fæðingu Sigfúsar Halldórssonar tónskálds og heiðurslistamanns Kópavogs. Til að minnast hans voru sungin nokkur laga hans eða svokölluð "Fúsalög". Hljóðfæraleikarar voru þeir Pálmi Sigurhjartarson á hljómborð, Jón Rafnsson á bassa og Jóhann Hjörleifsson á trommur. Nemendur sungu af hjartans lyst og vinsælasta lagið var að sjálfsögðu "Litla flugan".  

30.4.2010

Skólabúđaferđ 7. bekkinga ađ Reykjum í Hrútafirđi

reykir103Vikuna 19. - 23. apríl voru 7. bekkir N og S í Kópavogsskóla í skólabúðum að Reykjum í Hrútafirði. Þarna vorum við ásamt nemendum úr Grundaskóla á Akranesi og Hamraskóla í Grafarvogi, alls 107 nemendur auk kennara og nokkurra foreldra.

29.4.2010

Matreiđsla og hagsýni

VerðlaunahafarHin árlega keppni valhópa 9. bekkjar í heimilisfræði var haldin fyrir skömmu og verðlaun afhent mánudaginn 26. apríl. Keppnin ber heitið Matreiðsla og hagsýni og felst í því að hver hópur fær 3500 kr. til að versla fyrir. Nemendur koma sjálfir með uppskriftir, kaupa inn, skipuleggja vinnuna og vinna uppskriftirnar í tölvutækt form. Ekkert má koma með að heiman en leyfilegt er að nota krydd, hveiti, sykur og fleira sem  alltaf til er í heimilisfræðistofunni. Verðlaunin að þessu sinni hlutu Bjarni H. Magnússon og Carlos X.D. Costa en þeir matreiddu kjötbollur að ítölskum hætti, bornar fram með heimagerðri tómatsósu og spaghetti. Í eftirrétt var súkkulaðikaka, að frönskum hætti. Þeir fengu í viðurkenningarskyni bókina Af bestu lyst.

27.4.2010

1. bekkur í gönguferđ

kirkjuholt111. bekkur fór í gönguferð um kirkjuholtið (Borgarholtið). Þar var gaman að leika sér. Börnin fundu ýmislegt eins og álfagöt, risafótspor og einnig var hamarinn mjög spennandi.

13.4.2010

Heimsókn í Kópavogskirkju

KirkjaÁ þemadögum heimsóttu nemendur í 2. bekk Kópavogskirkju. Sigurður prestur tók mjög vel á móti börnunum og sýndi þeim ýmsa kirkjumuni og klæði. Smellið á myndina til að sjá fleiri myndir.

26.3.2010

Árshátíđ yngsta- og miđstigs

arsh-y17Í dag 26. mars, voru haldnar árshátiðir yngsta- og miðstigs. Fjölbreytt skemmtiatriði voru frá öllum bekkjum. Flutt voru leikrit byggð á gömlum ævintýrum, sungið, spilað á hljóðfæri og gamanmál flutt. Einnig spilaði hljómsveitin "Lollard" sem skipuð er þremur strákum úr 10. bekk skólans og einum nemanda úr Smáraskóla. Allir skemmtu sér vel enda skemmtiatriðin flytjendum til sóma. Sjá fleiri myndir hér.

26.3.2010

Árshátíđ unglingastigs

arshatid-u36Á fimmtudagskvöld, 25. mars, var árshátíð unglingadeildar haldin. Byrjað var á borðhaldi. Dagskráin var fjölbreytt að venju og hófst með píanóleik Daníels í 8. RT. Nemendur í 10. U sýndu leikritið Mjallhvít, í eigin leikgerð. Þá var keppni á vegum 9. JP í anda spurningakeppninnar Útsvars og leiksins Actionary. Því næst sungu Hugrún og Hrafnhildur í 10. U eitt lag við undirleik Hugrúnar. Emma í 10. U söng einsöng við undirleik Hauks í 10. Þ.  

25.3.2010

Danssýning

Danssýning 1.-4. bekkjarSíðustu vikur hefur Heiðar Ástvaldsson danskennari verið með dansnámskeið fyrir nemendur í 1.-4. bekk. Hver bekkur hefur æft einu sinni í viku og eru framfarir miklar. Námskeiðunum lauk í gær 24. mars með danssýningum fyrir foreldra og ættingja barnanna. Mikill fjöldi gesta var á sýningunum og stóðu nemendur sig mikilli prýði.

22.3.2010

Skólahreysti

skolahreysti10Nemendur í Kópavogsskóla fjölmenntu á hið geysivinsæla Skólahreystimót sem haldið var í Smáranum 18. mars.  Áhorfendur spila stórt hlutverk í keppninni og óhætt er að segja að nemendur skólans hafi tekið virkan þátt í að styðja við sitt lið.  Eiga þeir hrós skilið fyrir líflega framkomu.  Keppendur frá skólanum stóðu sig með mikilli prýði. 

19.3.2010

Ferđ á Listasafn Reykjavíkur - Hafnarhús

7be-ListasafnR15Myndmenntarhópar í 7. bekk N og S heimsóttu Hafnarhús fimmtudaginn 18. mars. Sýningin sem nemendur sáu ber heitið ,,Ljóslitlífun". Verkin á sýningunni eru eftir hóp ungra íslenskra listamanna sem hafa lagt stund á málaralistina á síðustu árum. Verkin eru m.a. unnin út frá myndasögum, teiknimyndum, tölvugrafík og götulist.

10.3.2010

Ţemadagar

hII16Myndir frá þemadögum eru komnar á myndasíðu. Sjá myndasíðu I og myndasíðu II.

10.3.2010

Ţemadagar

Dagana 9. og 10. mars voru þemadagar í Kópavogsskóla. Yfirskrift var "Bærinn minn Kópavogur". Á yngra stigi var fjallað um álfa í Kópavogi, álfabyggðir skoðaðar, búnir til álfar og skrifað um þá. Einnig fóru nemendur í leiki úti og inni og farið var í heimsókn í Kópavogskirkju. 

5.3.2010

Stóra upplestrarkeppnin

Lokakeppni innan skólans fór fram föstudaginn 5. mars. Átta nemendur úr 7. bekk lásu og var lesið  í þremur umferðum. Í fyrstu umferð lásu nemendur ljóð að eigin vali, í annarri umferð lásu þau úr sögunni Sjáumst aftur eftir Gunnhildi Hrólfsdóttur og í þriðju umferð lásu þau ljóð eftir Jónas Hallgrímsson. Þeir nemendur sem voru valdir til að taka þátt í aðalkeppninni fyrir hönd Kópavogsskóla eru:  Aðalmenn: Irpa Fönn Hlynsdóttir og Jón Veigar Kristjánsson. Varamenn: Elmar Tryggvi Hansen og Gabríel Rökkvi Brjánsson.

2.3.2010

Ferđ í Borgarleikhúsiđ

Ţriðjudaginn 23. febrúar var 1. bekk boðið að skoða Borgarleikhúsið. Tekið var vel á móti börnunum og fengu þau ævintýralega og spennandi skoðunarferð um allt leikhúsið. Meðal annars var leikmuna- og búningasafn leikhússins skoðað og einnig var litið inn á æfingu á Gauragangi. Á leiðinni um leikhúsið rákust börnin á fræga menn sem vöktu óskipta athygli þeirra.

1.3.2010

Innritun í grunnskóla Kópavogs fyrir skólaáriđ 2010 - 2011

Inn­ritun 6 ára barna (fædd 2004) fer fram í grunn­skólum Kópa­vogs mánudaginn 8. og þriðjudaginn 9. mars. Sömu daga fer fram inn­ritun nemenda sem flytjast milli skóla­hverfa og þeirra sem flytja í Kópa­vog eða koma úr einka­skólum.

Haustið 2010 munu skólar hefjast með skólasetningardegi mánudaginn 23. ágúst. Foreldrar eru hvattir til að skoða heimasíður skólanna.

Umsóknareyðublað fyrir Kópavogsskóla má nálgast hér kjósi foreldrar að fylla það út heima og senda til skólans.

19.2.2010

Furđufatadagur

Föstudag 19. febrúar var furðufatadagur hjá nemendum og starfsfólki hér í Kópavogsskóla. Sjá mátti hinar furðulegustu verur um allan skóla. Yngstu nemendurnir komu saman á sal og sungu undir stjórn Skarphéðins tónmenntakennara. Þetta var góð skemmtun og ánægjuleg tilbreyting í skólastarfinu.

18.2.2010

Dagur stćrđfrćđinnar

Árlegur Dagur stærðfræðinnar var föstudaginn 5. febrúar sl. Í tilefni af honum var sett upp lítil getraun fyrir nemendur en hún fólst í að giska á fjölda sælgætiskúla í glerkrukku sem staðsett var við matsal skólans. Mjög mikil þátttaka var í getrauninni og þegar upp var staðið kom í ljós að nokkrir nemendur höfðu komist nær réttri tölu en aðrir, en réttur fjöldi var 1037 kúlur.

12.2.2010

Heimsókn í Mjólkursamsöluna

Ţann 28. janúar var 3. bekk boðið í heimsókn í Mjólkursamsöluna. Lagt var af stað kl. 9:00 með strætisvagni og komið til baka um kl. 12:30. Gaman var að skoða Mjólkursamsöluna. Hópnum var boðið upp á veitingar, mjólk, kleinur og ís. Að lokum fengu allir íþróttapoka að gjöf.

5.2.2010

Uppeldi til ábyrgđar

Uppeldi til ábyrgðarÍ Kópavogsskóla er unnið að því að innleiða uppeldisstefnuna Uppeldi til ábyrgðar en stefnan miðar að því að kenna börnum sjálfsstjórn og sjálfsaga. Stýrihópur var myndaður í haust en hann skipa stjórnendur skólans, námsráðgjafi, þrír kennarar og tveir fulltrúar foreldra.

3.2.2010

Nemi á skólasafni

Á þriðjudags-, miðvikudags- og fimmtudagsmorgnum í  febrúar og mars verður nemi í starfsnámi á skólasafninu.  

Neminn heitir Kristín Martha Vilhjálmsdóttir og er hún í Starfstengdu diplómanámi fyrir fólk með þroskahömlun við Menntasvísindasvið HÍ.

Við bjóðum Kristínu Mörthu velkomna í skólann.

18.1.2010

Ferđ á Listasafn Íslands

ListasafnMyndmenntahópar í 7. bekk N og S heimsóttu Listasafn Íslands fimmtudaginn 14. janúar. Sýningin sem þau sáu ber heitið "Carnegie Art Award 2010" og er árleg sýning á verðlaunaverkum norrænna listamanna. Í ár hlaut Kristján Guðmundsson aðalverðlaunin en ásamt verki hans eru til sýnis verk tuttugu og tveggja annarra listamanna á sýningunni.

5.1.2010

Kristinfrćđiverkefni - 3. bekkir

Fyrir jól unnu nemendur 3. bekkja verkefni í kristinfræði hjá Ermengu. Þau hlustuðu á sögurnar um Jósef og bræður hans og teiknuðu myndir. Skólasafnskennari tók myndir af verkefnum nemenda og setti upp í PhotoStory og nemendur lásu inn kynningu á verkefninu. Skoða verkefni.

Ef myndin hleðst ekki inn gæti þurft að uppfæra Windows Media Player

Fréttir - á RSS-formi

Viđburđir

 «Maí 2012» 
sunmánţrimiđfimföslau
  12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031  

Skólamatur6HHeimili og skóli

Slóđin ţín:

Forsíđa

Mynd