Fréttir
20.12.2010
Jólaskemmtanir
17.12.2010
Síđasti kennsludagur fyrir jólafrí
Í dag var síðasti kennsludagur fyrir jólafrí. Mikil jólastemning hefur ríkt í skólanum í dag. Margir bekkir héldu svokölluð stofujól, þar sem smákökur voru maulaðar og jólasaga lesin. Þá skreytti sjötti bekkur piparkökur sem þau komu með að heiman, sumir æfðu leikrit fyrir jólaskemmtanir, einhverjir horfðu á jólamynd og fleira skemmtilegt var gert. Í hádeginu var boðið upp á jólamat í mötuneytinu, hangikjöt með öllu tilheyrandi og ís í eftirrétt.
16.12.2010
Jólastund á skólasafninu
Í desember hefur verið mikið um að vera á safninu. Þá eru ljósin deyfð, safnið skreytt og dúkar eru á borðum. Allir bekkir skólans koma í heimsókn, hlusta á jólasögur og fá kakó og piparkökur. Nemendur úr 7. og 8. bekkjum hafa lesið upp jólasögur og jólavísur fyrir nemendur í 1.-6. bekk. Hafa þau öll staðið sig með prýði.
15.12.2010
LEGO námskeiđ
Jóhann Breiðfjörð hefur undanfarna þriðjudaga verið með tækni-lego námskeið í Kópavogsskóla. Hann starfaði í fimm ár sem hönnuður og hugmyndasmiður hjá LEGO fyrirtækinu í Danmörku og hefur undanfarin ár boðið upp á námskeið í grunnskólum og félagsmiðstöðvum. Myndirnar sem fylgja eru teknar á námskeiðinu hjá Jóhanni. Hann mætti með um 100 kg af tækni-legokubbum og ekki var annað að sjá en þátttakendum líkaði vel og áhuginn mikill.
10.12.2010
Kirkjuheimsókn á ađventu
Eins og venjulega á aðventu var farið í heimsókn í Digraneskirkju. Nemendur og kennarar skólans fóru í tveimur hópum. Fyrri hópurinn fór í gær en það voru nemendur í 1.- 3. bekk og 8.- 10. bekk og fylgdu elstu nemendur skólans þeim yngstu. Gaman var að sjá hversu góð samvinna myndaðist milli unglinganna og yngri barnanna. Seinni hópurinn fór síðan í dag og voru það nemendur úr 4. -7. bekk. Væntanleg fermingarbörn úr 8. bekk sáu um dagskrá í kirkju auk presta kirkjunnar. Þetta var hátíðleg stund sem kom öllum viðstöddum í jólaskap.
7.12.2010
Tónlist fyrir alla
Björn Thoroddsen, Egill Ólafsson og Jón Rafnsson héldu tónleika fyrir nemendur unglingastigs í sal Kópavogsskóla í gær. Þar spiluðu þeir og sungu létt og skemmtileg lög sem krakkarnir þekktu mörg hver. Þar má nefna Stuðmannalögin ,,Svarti Pétur" og ,,Manst´ekki eftir mér". Egill spilaði m.a. á risastórt grasker og þurfti sérstakan hjálparmann úr hópi nemenda til að halda á hljóðnemanum á meðan. Þeim félögum eru færðar bestu þakkir fyrir skemmtunina sem tókst mjög vel.
















