Fréttir
20.12.2011
Jólaskemmtanir
Jólaskemmtunum á öllum stigum skólans er nú lokið. Flestir nemendur voru með mjög góð skemmtiatriði og má þar sérstaklega nefna helgileik sem nemendur í 4. bekk fluttu. Gengið var í kringum jólatréð og sungið. Allir skemmtu sér mjög vel. Skólinn hefst aftur að jólaleyfi loknu á nýju ári miðvikudaginn 4. janúar. Smellið á myndina hér til hliðar til að sjá fleiri. Gleðileg jól.
19.12.2011
Rithöfundur á bókasafni skólans
Í seinustu viku kom rithöfundurinn Harpa Dís Hákonardóttir í heimsókn á skólasafnið og kynnti nýútkomna bók sína, "Fangarnir í trénu".
Harpa Dís sem er 18 ára, las úr bókinni fyrir nemendur í 4.-7. bekk.
Ţetta er önnur bók höfundar, en áður hefur komið út bókin Galdrasteinninn sem margir nemendur þekkja.
19.12.2011
Jólastund á skólasafninu
Í desember hefur verið mikið um að vera á safninu. Þá eru ljósin deyfð, safnið skreytt og dúkar eru á borðum. Bekkir koma í heimsókn, hlusta á jólasögur og fá kakó og piparkökur. Nemendur úr 7. og 8. bekkjum hafa lesið upp jólasögur og jólavísur fyrir nemendur í 1.-6. bekk. Hafa þau öll staðið sig með prýði.
14.12.2011
Jólalestin
Dagana 8. og 9. desember voru svokallaðir þemadagar í skólanum. Að þessu sinni var ákveðið að vinna að verkefnum tengdum jólum. Yfirskriftin var "Jólalestin" og var nemendum skipt í hópa. Nemendur í 1. - 4. bekk gerðu dagatal fyrir alla mánuði ársins 2012. Myndirnar á dagatalinu voru margs konar s.s. klippimyndir, pappírsbrot, málaðar myndir o.fl. Í 5. -7. bekk var föndrað ýmislegt jólalegt. Búin voru til jólakort, origamijólaskraut, pappírshús klippt og skorin og gerðar kókoskúlur sem settar voru í skreyttar krukkur. Unglingastigið vann einnig ýmis jólaverkefni. Nemendur fóru í ratleik, föndruðu jólaskraut og kort og spiluðu ýmis skemmtileg spil. Þessir dagar voru mjög ánægjulegir og allir í góðu jólaskapi.
2.12.2011
Innlögn í brotareikningi
28.11.2011
Rýmingarćfing og heimsókn frá slökkviliđinu
Fimmtudaginn 24. nóvember var haldin rýmingaræfing í skólanum. Nemendur og starfsfólk var ekki undirbúið fyrir æfinguna. Æfingin heppnaðist mjög vel og tók um þrjár mínútur að tæma húsið og eftir sjö mínútur var búið að yfirfara alla hópa hjá kennurum. Æfing sem þessi er nauðsynleg til þess að minna á öryggisatriði og fara yfir hlutverk allra við rýmingu.
Daginn eftir komu slökkviliðs- og sjúkraflutningsmenn í heimsókn í 3. bekk. Heimsóknin er árleg en börnin fræddust um eldvarnir og neyðarnúmerið 112. Börnin fengu síðan að skoða sjúkrabíl og slökkviliðsbíl.
28.11.2011
Verkefni um sólkerfiđ í 3. bekk
24.11.2011
Stjörnukort
Í dag fékk 5. bekkur góða gjöf frá Stjörnuskoðunarfélagi Seltjarnarness. Skólinn fékk tvö eintök af nýjasta blaði félagsins og allir nemendur stjörnukort. Náttúrufræðikennarar barnanna afhentu kortin. Skólinn fékk einnig nokkur eintök að gjöf. Í fyrra fékk skólinn tvo stjörnukíkja frá félaginu. Þetta er einkar rausnarlegt og flott framtak hjá Stjörnuskoðunarfélaginu og þökkum við kærlega fyrir okkur. Ástæða er til þess að benda foreldrum á fróðlegan vef félagsins: www.stjornufraedi.is. Þar má meðal annars finna stjörnukort fjölskyldunnar. Á þessum árstíma er skemmtilegt að skoða himininn og börn hafa yfirleitt mjög gaman að því.
22.11.2011
Laufabrauđsdagur
Hinn árlegi laufabrauðsdagur Foreldrafélags Kópavogsskóla verður laugardaginn 26. nóvember í matsal skólans og hefst kl. 10 og lýkur kl. 14. 10 stk. útflattar kökur til sölu á einungis 800 kr. Allir komi með skurðbretti,ílát undir steiktar kökur og laufabrauðsjárn eða eitthvað annað til að skera út með t.d. hníf og gaffal. Kaffisala og kökubasar á staðnum (fjáröflun fyrir 7. bekk).
Skólahljómsveit Kópavogs kemur kl. 11 og sér til þess að allir komist í jólaskapið.
Allir velkomnir með; ömmur, afar, frænkur og frændur.
Hlökkum til að sjá ykkur
Laufabrauðsnefndin
16.11.2011
Dagur íslenskrar tungu
Í dag 16. nóvember á afmælisdegi Jónasar Hallgrímssonar, þjóðskálds okkar Íslendinga, var Dagur íslenskrar tungu haldinn hátíðlegur með dagskrá á sal skólans. Skólakór Kópavogsskóla söng, nemendur og kennarar kynntu íslenska rithöfunda og lesið var upp úr bókum þeirra. Einnig lásu nemendur frumsamin ljóð og sögur og sungu. Sigurlaug Ólöf Guðmundsdóttir kom frá Gjábakka, félagsmiðstöð aldraðra í Kópavogi og las nokkur ljóð eftir sig sjálfa. Þetta var vel heppnuð skemmtun og voru nemendur einstaklega prúðir að hlusta og taka þátt í því sem fram fór.
15.11.2011
Samvinna 3. og 8. bekkjar
Kennarar í stærðfræði í 3. og 8. bekk hafa undanfarið verið að prófa sig áfram með samvinnu bekkjanna. Á dögunum komu nemendur í 3. bekk í heimsókn í 8. bekk. Nemendur reiknuðu saman og eldri nemendur aðstoðuðu þau yngri. Börnin höfðu gaman að því að sjá ólík viðfangsefni eftir aldri og samvinnan tókst mjög vel.
9.11.2011
Dagur gegn einelti
Ţriðjudagurinn 8. nóvember er helgaður baráttunni gegn einelti. Af því tilefni var sérstaklega hugað að eineltismálum í skólanum í gær. Nemendur á mið- og elstastigi voru kallaðir á sal þar sem horft var á myndina" Einelti helvíti á jörð". Myndin byggir á viðtölum við þolendur eineltis og er áhrifamikil. Skólastjóri kom inn í myndina með umræður og staldraði við ákveðin atvik í myndinni til þess að ræða ýmsar hliðar á eineltinu. Yngri nemendur horfðu á myndina "Katla gamla" með sínum kennurum. Sú mynd fjallar einnig um einelti. Umsjónarkennarar unnu áfram með sína bekki og stjórnuðu umræðum í bekkjum um hvað einelti væri og hvernig við gætum komið í veg fyrir einelti í skólanum okkar.
Dagur sem þessi er nauðsynlegur til þess að vekja athylgi á því böli sem einelti er. Einelti má aldrei líðast. Við verðum að standa saman í því styrkja jákvæð samskipti og skapa samfélag þar sem einelti þrífst ekki. Hér að neðan má finna ýmsar gagnlegar netslóðir um fræðslu gegn einelti.
http://www.barnaheill.is/verndumborn/
18.10.2011
Heimsókn á DV
Á dögunum fóru nemendur úr 9. og 10. bekk sem eru í valhópnum ,,Skólablað," í heimsókn niður á ritstjórnarskrifstofu DV og kynntu sér starf blaðamanna, prófarkalesara, setjara og fleiri. Heimsóknin var skemmtileg og fræðandi. Krakkarnir komu með hugmyndir um hvað þau vildu sjá í dagblöðum og voru þær margar og fjölbreyttar.
http://www.dv.is/frettir/2011/10/5/vilja-meira-sludur-um-geir-h-haarde/
27.9.2011
Heimsókn iđjuţjálfa
19.9.2011
Skólakynning fyrir foreldra barna í 1. bekk
Sú hefð hefur skapast í Kópavogsskóla að bjóða foreldrum barna í fyrsta bekk til sérstakrar kynningar á skólanum og skólastarfinu. Kynningin í ár fór fram 6. september sl. og fyrri hluti hennar var í samkomusal skólans. Þar ræddi Dýrleif Egilsdóttir námsráðgjafi um líðan barna í skóla og Guðmundur skólastjóri kynnti foreldrum uppeldisaðferðina Uppeldi til ábyrgðar en skólinn starfar samkvæmt þeirri hugmyndafræði. Síðan var foreldrum boðið í súpu og salat í starfsmannastofu skólans og þar gafst þeim tækifæri til að kynnast foreldrum annarra barna í árganginum. Eftir mat var haldið í bekkjarstofur þar sem Ermenga Björnsdóttir og Hulda Hrönn Ágústsdóttir umsjónarkennarar kynntu námskrána og vetrarstarfið.
14.9.2011
Grćnmetiskarlar í 2. bekk
12.9.2011
Heimsókn danskra nemenda
Vikuna 28. ágúst til 3. september fengu nemendur í 9. bekk nemendur frá Parkvejskolen í Birkerød í Danmörku í heimsókn. Heimsóknin var skipulögð af foreldrum í samvinnu við skólann en ein stúlkan í íslenska hópnum var í þessum skóla fyrir nokkrum árum. Dönsku nemendurnir komu hingað til lands á sunnudegi og tóku íslensku nemendurnir á móti þeim ásamt foreldrum sínum. Danirnir gistu hjá íslenskum jafnöldrum sínum og komu síðan með þeim í skólann á mánudeginum. Á þriðjudagsmorgni var síðan lagt af stað í ferðalag þar sem farið var hinn svokallaða „gullna hring" ásamt því að farið var í river rafting í Hvítá. Í lok dagsins var síðan haldið í Vindáshlíð þar sem krakkarnir nutu samveru og gistu um nóttina.
9.9.2011
Ađalfundur foreldrafélagsins
Fimmtudaginn 15. september nk. kl. 18.15 er boðað til aðalfundar foreldrafélags Kópavogsskóla.
Fyrir fundinum liggja hefðbundin aðalfundastörf sem eru skv. 4. gr. laga foreldrafélagsins eftirfarandi:
1) Stjórnin gefur skýrslu um starfsemi félagsins á liðnu starfsári.
2) Gjaldkeri leggur fram endurskoðaða reikninga til umræðu og samþykktar.
3) Lagabreytingar ef fyrir liggja tillögur um þær.
4) Ákvörðun tekin um félagsgjöld næsta árs.
7.9.2011
Brosandi andlit í 3. bekk
Ţað voru sannkölluð brosandi andlit í heimilisfræði í 3. bekk síðustu tvær vikur. Börnin æfðu sig í að smyrja brauð og fengu síðan allskyns grænmeti og ávexti til þess að skreyta brauðið sitt með og búa til andlit. Sum börnin þorðu varla að gæða sér á brauðinu því þau vildu ekki skemma það sem þau höfðu gert. Með brauðinu gæddu börnin sér á heitu kakói sem þau höfðu búið til í sameiningu með aðstoð kennara.
7.9.2011
Útivist hjá 2. bekk
5.9.2011
Göngum í skólann
Kópavogsskóli hefur ákveðið að taka þátt í Göngum í skólann, verkefni á vegum Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, Landlæknisembættisins, mennta- og menningarmálaráðuneytisins, Ríkislögreglustjóra, Umferðarstofu, Slysavarnarfélagsins Landsbjargar og Heimilis og skóla. Göngum í skólann verður sett miðvikudaginn 7. september og lýkur formlega með alþjóðlega Göngum í skólann deginum miðvikudaginn 5. október.
Ţetta er í fimmta sinn sem verkefnið er haldið hér á landi og hefur þátttaka aukist jafnt og þétt. Megin markmið verkefnisins er að hvetja nemendur til þess að ganga eða hjóla til og frá skóla með því að auka færni nemenda til að ganga á öruggan hátt í skólann og fræða þau um ávinning reglulegrar hreyfingar. Að draga úr umferðarþunga, mengun og hraðakstri nálægt skólum. Auk þess er reynt að stuðla að vitundarvakningu fyrir vistvænan ferðamáta og
1.9.2011
Skólakynningar
Skólakynningar/námskynningar fyrir foreldra verða sem hér segir:
2.-4. bekkur þriðjudaginn 6. september kl. 8:00 í stofum bekkjanna.
1. bekkur þriðjudaginn 6. september kl. 18:00 í sal skólans.
5.-7. bekkur miðvikudaginn 7. september kl. 8:00 í stofum bekkjanna.
8.-10. bekkur fimmtudaginn 8. september kl. 8:00 í stofum bekkjanna.
5.8.2011
Upphaf skólastarfs
Skrifstofa Kópavogsskóla opnar að loknum sumarleyfum mánudaginn 8. ágúst. Þá koma starfsmenn, aðrir en kennarar, til starfa en kennarar hefja störf mánudaginn 15. ágúst. Nýjum nemendum sem fara í 2.-10. bekk er boðið til skólakynningar miðvikudaginn 17. ágúst kl. 15:00. Skólasetning verður mánudaginn 22. ágúst sem hér segir:
2.-4. bekkur kl. 9:00
5.-7. bekkur kl. 10:00
8.-10. bekkur kl. 11:00
Nemendur í 1. bekk, ásamt foreldrum sínum koma í einstaklingsviðtöl við umsjónarkennara á skólasetningardaginn. Til viðtalsins verður boðað símleiðis.
8.6.2011
Skólaslit
Ţriðjudaginn 7. júní var skólanum slitið. Skólaslit 1.- 6. bekkja voru kl. 10:00 og 7.- 9. bekkja kl. 11:00. Nemendur komu saman á sal skólans og sungu vorlag við undirleik Skarphéðins tónmenntakennara. Skólastjóri og deildastjórar þökkuðu nemendum samstarfið í vetur. Að lokum fóru þeir í stofur og tóku á móti vitnisburði hjá umsjónarkennurum.
Útskrift 10. bekkinga var sama dag og að þessu sinni útskrifuðust 22 nemendur. Ólína Þorleifsdóttir aðstoðarskólastjóri stýrði samkomunni. Tónlistaratriði og ljóðalestur voru flutt í upphafi og voru það útskriftarnemendur og tveir nemendur úr 9. bekk sem sáu um flutninginn. Skólastjóri ávarpaði nemendur og gesti og fulltrúi nemenda ávarpaði einnig samkomuna. Því næst voru afhent verðlaun fyrir góðan námsárangur. Skólaslitunum lauk með því að foreldrar 9. bekkinga buðu upp á frábærar veitingar. Dagurinn var skemmtilegur og við óskum nemendum velfarnaðar.
6.6.2011
Gönguferđ og Ţjóđmenningarhús
6.6.2011
Fótboltamót hjá 3. og 4. bekk
Haldið var fótboltamót fyrir börnin í 3. og 4. bekk miðvikudaginn 1. júní. Mikill áhugi var í bekkjunum og var skipt í stráka- og stelpudeild. Börnunum var síðan blandað í liðin á milli bekkja og árganga. Það fór aðeins að rigna á okkur en börnin létu ekki smá rigningu aftra sér og héldu ótrauð áfram. Allir stóðu sig með prýði jafnt innan sem utan vallar og heppnaðist dagurinn mjög vel.
6.6.2011
Vorferđ 3. bekkjar
1.6.2011
UNICEF hreyfingin
Ţriðjudaginn 31. maí tóku nemendur í skólanum þátt í söfnun fyrir Unicef. Nemendur í 1.- 4. bekk fóru í alls konar þrautir á skólalóðinni og í íþróttahúsi. Nemendur í 5.- 9. bekk hlupu á hlaupabrautinni á Kópavogsvelli, spiluðu hafnabolta, fótbolta eða blak á Kópavogstúni og fóru í þrautir í Hlíðagarði. Nemendur í 10. bekk voru í skólaferðalagi.
1.6.2011
Forvarnir- fundur
31.5.2011
Heimsókn foreldris úr 3. bekk
Fimmtudaginn 26. maí fengum við skemmtilega heimsókn og fræðandi. Bjarni pabbi Páls í 3. M kom í heimsókn og kenndi okkur hvernig á að kasta upp 3 boltum og keilum. Nú þarf bara að æfa sig. Síðan var farið í þrautaleiki og látbragðsleik. Allir höfðu gagn og gaman af. Á haustdögum er von á fleiri foreldrum.
31.5.2011
Fótboltamót í 1. og 2. bekk
Haldið var fótboltamót fyrir nemendur í 1. og 2. bekk mánudaginn 30. maí. Skipt var í 6 fótboltalið og var börnunum sem vildu taka þátt blandað í liðin. Krakkarnir stóðu sig með prýði jafnt innan sem utan vallar og heppnaðist dagurinn mjög vel. Veðrið lék við okkur og mátti sjá gleðina skína úr hverju andliti.
27.5.2011
Bćjarferđ 1. bekkjar
Fimmtudaginn 26. maí fórum við í 1-Þ og 1-U með strætó niður í miðbæ Reykjavíkur. Við tókum með okkur brauð og byrjuðum á að gefa fuglunum á tjörninni. Síðan var farið inn í Ráðhúsið og kortið af Íslandi skoðað. Eftir að hafa borðað nestið í Ráðhúsinu var farið á Austurvöll og að Alþingishúsinu. Á heimleiðinni gengum við framhjá Þjóðminjasafninu, Háskóla Íslands og tókum strætó aftur heim. Allir komu glaðir en mjög þreyttir í skólann.
18.5.2011
Íslensku húsdýrin
18.5.2011
Íţróttir og útivist
Nemendur í valgreininni íþróttir og útivist fóru í hjólaferðalag dagana 10. og 11. maí. Hjólað var frá Kópavogsskóla að Elliðavatni þaðan inn í Heiðmörkina og þá að Lækjarbotnum og inn á Bláfjallaveg. Þaðan lá leiðin að skíðaskála Breiðabliks þar sem dvalist var um nóttina. Nemendur og kennarar áttu góða stund í að útbúa mat og hvílast fyrir átök næsta dags. Að morgni 11. maí var farið í hellaskoðun og að loknum hádegisverði var haldið heim. Veðrið var eins og best verður fyrir hjólreiðar, logn og blíða. Allir nemendur stóðu sig vel. Þetta var skemmtileg ferð sem lifir í minningu þeirra sem fóru. Myndir frá ferðinni má sjá með því að smella á myndina hér til hliðar.
12.5.2011
Bangsadagur
11.5.2011
1. bekkur í Náttúrufrćđistofu Kópavogs
11.5.2011
Sveitaferđ 2. bekkjar
Mánudaginn 9. maí fór 2. bekkur í sveitaferð. Sveitabærinn Miðdalur í Kjós var heimsóttur og undu börnin sér vel með dýrunum. Börnin fengu mjólk að drekka og snæddu nesti. Þau stoppuðu ekki lengi við að borða nestið því dýrin biðu. Allir skemmtu sér mjög vel og börnin voru alls ekki tilbúin að fara heim því það var svo gaman.
9.5.2011
Kiwanis gefur nemendum í 1. bekk reiđhjólahjálma
Á fimmtudaginn 5. maí fengu krakkarnir í 1. bekk góðar gjafir frá Kiwanis hreyfingunni í Kópavogi. Þetta eru forláta reiðhjólahjálmar sem Jón Olgeirsson húsvörður í skólanum afhenti, en hann er félagi í Kiwanis. Árlega gefa Kiwanisfélagar um allt land öllum nemendum í 1. bekkjum á landinu reiðhjólahjálma. Þeim eru hér með færðar bestu þakkir fyrir. Smellið á myndina hér til hliðar til að sjá fleiri.
15.4.2011
Árshátíđ yngsta- og miđstigs
15.4.2011
Árshátíđ unglingastigs
Á fimmtudagskvöld, 14. apríl, var árshátíð unglingadeildar haldin. Búið var að skreyta samkomusalinn og frístundarýmið fyrr um daginn og því töluvert ,,sparilegra" um að lítast en um morguninn. Öll skemmtiatriði voru nemendum til sóma en þau voru fjölbreytt að vanda. Það voru tónlistaratriði, stuttmyndir, leikþættir og að sjálfsögðu starfsmannaatriði.
14.4.2011
Heimsókn í danska sendiráđiđ
12.4.2011
8. bekkur í Norrćna húsiđ
Allir 8. bekkingar fóru í menningarferð í Norræna húsið. Þar tóku á móti þeim forstöðukonan sem er Finni og Dani sem er búsettur á Íslandi. Krakkarnir skoðuðu bókasafnið og fræddust um verk Alvars Aaltos. Tilgangur þessarar ferðar var að kynnast ýmiss konar siðum, hönnun, listum og bókmenntum frá Norðurlöndunum. Nemendurnir og bekkjastjórnir eru í samvinnu við kennara að undirbúa ferð til Danmerkur vorið 2012 og er þetta einn liður í þeim undirbúningi.
11.4.2011
Foreldraverđlaun Heimilis og skóla
Foreldraverðlaun Heimilis og skóla 2011 verða afhent í Þjóðmenningarhúsinu þriðjudaginn 24. maí næstkomandi. Óskað er eftir tilnefningum til Foreldraverðlauna 2011 frá einstaklingum, félögum eða hópum sem vilja vekja athygli á vel unnum verkefnum, sem stuðla að eflingu skólastarfs og jákvæðu samstarfi heimila, skóla og samfélagsins.
Tilnefningar berist á rafrænan hátt með því að fylla út eyðublað hér á heimasíðu samtakanna www.heimiliogskoli.is. Síðasti skiladagur tilnefninga er 28. apríl 2011.
7.4.2011
Heimsókn frá leikskólum
Í dag fengum við ánægjulega heimsókn frá leikskólum, en þetta voru nemendur sem hefja skólagöngu í 1. bekk í haust. Einnig komu nokkrir krakkar sem fara í aðra skóla. Leikskólakennarar fylgdu hópunum ásamt nokkrum foreldrum. Deildarstjóri tók á móti gestunum og sýndi þeim skólann. Síðan var skólasafnskennarinn með sögustund á bókasafninu og að lokum fengu allir safa og kleinur. Mjög skemmtilegt var að taka á móti eftirvæntingarfullum hópnum.
24.3.2011
Danssýning
Síðustu vikur hefur Heiðar Ástvaldsson danskennari verið með dansnámskeið fyrir nemendur í 1.-3. bekk. Hver bekkur hefur æft einu sinni í viku og eru framfarir miklar. Námskeiðunum lauk á þriðjudaginn 22. mars með danssýningum fyrir foreldra og ættingja barnanna. Mikill fjöldi gesta var á sýningunum og stóðu nemendur sig með mikilli prýði.
9.3.2011
Gaman saman
Nú er ánægjulegum uppbrotsdögum lokið, bolludegi, sprengidegi og öskudegi. Á bolludaginn unnu nemendur stærðfræðiverkefni. Öllum nemendum var skipt í hópa þvert á aldur og unnu þeir ýmis verkefni sem tengdust ýmsum námsgreinum. Eldri nemendur aðstoðuðu yngri og ánægjulegt var að sjá hve vel sú samvinna gekk. Á sprengidaginn var Heiðar Ástvaldsson danskennari með danskennslu fyrir alla nemendur í þremur hópum. Ýmislegt fleira var gert s.s. bingó, grímugerð og spurningakeppni. Í dag öskudag var ball fyrir nemendur þar sem fulltrúar úr öskudagsnefnd foreldra aðstoðuðu. Kunnum við þeim bestu þakkir fyrir. Skarphéðinn tónmenntakennari stjórnaði marseringu um skólann með trommuslætti. Eftir ballið var boðið upp á popp og bíó eða föndur. Dagurinn var sérstaklega skemmtilegur og gaman að sjá hve margir mættu í búningum. Myndir frá þessum dögum má sjá á myndasíðu hér til hliðar.
9.3.2011
Skólahreysti
Fimmtudaginn 3. mars var hið vinsæla skólahreystimót haldið í Smáranum. Guðmundur Högni Hilmarsson bjargaði málum á síðustu stundu þegar upp komu meiðsli í hópnum sem búinn var að æfa. Hann keppti svo til óundirbúinn í upphífingum og dýfum og stóð sig vel. Petrea Björt Sævarsdóttir keppti í armbeygjum og hreystigreip og Emilía Björg Atladóttir og Orri Sigurður Ómarsson kepptu í þrautabraut. Hópurinn lauk keppni í 10.sæti af 12. liðum.
4.3.2011
Innritun í grunnskóla Kópavogs 2011-2012
Innritun 6 ára barna (fædd 2005) fer fram í grunnskólum Kópavogs mánudaginn 7. og þriðjudaginn 8. mars. Sömu daga fer fram innritun nemenda sem flytjast milli skólahverfa og þeirra sem flytja í Kópavog eða koma úr einkaskólum.Haustið 2011 munu skólar hefjast með skólasetningardegi mánudaginn 22. ágúst.
Sérstök athygli er vakin á því að umsóknarfrestur um heimild til að stunda nám í einkaskólum eða grunnskólum annarra sveitarfélaga er til 1. apríl og skulu umsóknir berast fræðsluskrifstofu rafrænt á eyðublaði sem er á heimasíðunni www.kopavogur.is. Sækja þarf um að nýju fyrir nemendur, sem nú eru í slíkum skólum, ef gert er ráð fyrir að þeir verði þar næsta vetur.
4.3.2011
Stóra upplestrarkeppnin
Sigurvegarar í stóru upplestrarkeppninni í Kópavogsskóla voru að þessu sinni þeir Runólfur Bjarki Arnarson 7.Y og Hlynur Bjarnason 7.X. Varmenn eru Elín Sóley Hrafnkelsdóttir 7.Y og Alma Maureen Vinson 7. Y. Fengu þau öll bókagjöf að viðurkenningu. Allir keppendur fengu einnig viðurkenningaskjal fyrir þátttöku sína.
Allir keppendur stóðu sig með prýði. 6. bekk var að venju boðið að hlýða á keppnina og einnig voru nokkrir foreldrar í salnum. Þeir sem kepptu til úrslita þetta árið voru: Alma Maureen Vinson, Ágúst Pálmason Mortens, Elín Sóley Hrafnkelsdóttir, Flóki Larsen, Hafsteinn Níelsson, Runólfur Bjarki Arnarson, Ásta Sóley Júlíusdóttir, Guðrún Embla Eiríksdóttir, Hlynur Bjarnason, Iðunn Rún Kristjánsdóttir, Védís Mist Agnadóttir og þórhildur Björgvinsdóttir. Lokakeppnin í Kópavogi fer fram í Salnum 8. mars kl. 16:30 og eru allir velkomnir. Við óskum okkar nemendum góðs gengis.
3.3.2011
Gaman saman
Framundan eru skemmtilegir dagar í skólanum sem bera yfirskriftina , Gaman saman. Við ætlum að brjóta upp kennslu í þrjá kennsludaga og breyta út af venjulegri stundaskrá.
Mánudaginn 7. mars, bolludag, helgum við stærðfræði en á dögunum var DAGUR STÆRÐFRÆÐINNAR. Þá ætlum við að skipta nemendum í hópa og vinna ýmis stærðfræðiverkefni í fjórar kennslustundir. Eftir það verður kennsla samkvæmt stundaskrá. Nemendur mega koma með bollur í nesti.
Ţriðjudaginn 8. mars verður ýmislegt skemmtilegt gert t.d. farið í spurningakeppni, danskennslu, bingó, útbúnar grímur og fleira. Skóla lýkur kl. 13:15.
Miðvikudaginn 9. mars, öskudag, verður grímuball og fleira skemmtilegt gert. Hvetjum nemendur til að mæta í öskudagsbúningum. Boðið verður upp á popp og má koma með safa að heiman. Skóla lýkur kl. 12:00.
1.3.2011
Kjarvalsstađir
Nemendur 6.V heimsóttu Listasafn Reykjavíkur - Kjarvalsstaði mánudaginn 28. febrúar. Skoðuð voru nokkur þekktustu málverk meistara Kjarvals (1885-1972), en hann hét fullu nafni Jóhannes Sveinsson Kjarval. Einnig skoðuðu nemendur nokkur verk íslenskra listamanna sem sýnd hafa verið á Feneyjatvíæring, sem haldin er annað hvert ár í Feneyjum á Ítalíu
23.2.2011
Vetrarleyfi
16.2.2011
Opinn fundur skólaráđs
Skólaráð Kópavogsskóla boðar til opins fundar þriðjudaginn 22. febrúar kl. 18:00 - 19:30 í sal skólans.
Dagskrá:
- Skólaráð og hlutverk þess
- Nám og þróunarstarf í Kópavogsskóla
- Hvaða áhrif hafði umræðan að leggja Kópavogsskóla niður á aðila skólasamfélagsins?
- Breytingar í Kópavogsskóla vegna fjárhagsáætlunar 2011
Allir foreldrar eru hvattir til þess að mæta á fundinn og láta sig þessi mál varða.
16.2.2011
Starfsdagur og foreldraviđtöl
11.2.2011
Snjóţotudagur
9.2.2011
Ferđ 3. bekkjar í Mjólkursamsöluna
Fimmtudaginn 3. febrúar fóru nemendur 3. bekkjar B og M í heimsókn í Mjólkursamsöluna. Lagt var af stað með strætó kl. 9.00. Ferðin reyndist heilmikið ferðalag og ævintýri. Margt fróðlegt og skemmtilegt var að sjá í Mjólkursamsölunni og boðið var upp á ís, mjólk, kleinur og smákökur. Nemendur voru komnir aftur í skólann kl. 12:00.
1.2.2011
Danskennsla
Nú stendur yfir námskeið í dansi hjá 1.- 3. bekk, en það hófst 11. janúar. Danskennari er Heiðar Ástvaldsson. Hver bekkur fær eina kennslustund á viku í 10 skipti alls. Krakkarnir eru fljótir að læra helstu sporin og gaman er að sjá hvað þeim fer mikið fram með æfingunni. Hér til hliðar eru myndir af kátum krökkum í danstímum.
27.1.2011
Ferđ á listasafn
Mánudaginn 24. janúar fóru nemendur 6. V í Hafnarborg í Hafnarfirði. Skoðaðar voru tvær sýningar, annars vegar ,,Kjarvalar" Stefáns Jónssonar (f. 1964) á þrívíðum endurgerðum af málverkum Jóhannesar Sveinssonar Kjarvals (1885-1972). Verkin eru unnin í ýmis efni s.s. steinsteypu, mósaíkflísar, prjónagarn og glerflöskur en eiga það öll sameiginlegt að endurgera náttúruna í olíumálverkum Kjarvals.
Hins vegar sáu nemendur sýningu Eiríks Smith (f. 1925) ,,Brot úr náttúrunni -abstraktverk 1957 - 1963" þar sem listamaðurinn glímir við form og liti náttúrunnar í málverkum sínum á áhrifamikinn hátt.
14.1.2011
Rithöfundur í heimsókn
Í dag kom til okkar Þorgrímur Þráinsson rithöfundur og las upp úr nýútkomnum bókum sínum og spjallaði við nemendur. Fyrir nemendur í 4. - 6. bekk las hann úr bókinni "Ertu Guð afi"? Og fyrir nemendur í 7. - 10. bekk úr bókinn "Þokan". Allir hlustuðu af athygli enda er Þorgrímur frábær lesari og bækurnar mjög spennandi og skemmtilegar. Eru honum færðar kærar þakkir fyrir þessa ánægjulegu stund.
7.1.2011
Upplýsingar vegna óveđurs
Ef óveður geisar er meginreglan sú að skóli er opinn. Foreldrar þurfa að meta sjálfir hvort þeir senda börn sín í skólann eða ekki. Viðbrögð við óveðri má finna undir Tilkynningar til hægri á síðunni og foreldrar eru beðnir að kynna sér þau.


_1742465663.jpg)
_673314720.jpg)









_2065525850.jpg)
















