Fréttir
27.1.2011
Ferđ á listasafn
Mánudaginn 24. janúar fóru nemendur 6. V í Hafnarborg í Hafnarfirði. Skoðaðar voru tvær sýningar, annars vegar ,,Kjarvalar" Stefáns Jónssonar (f. 1964) á þrívíðum endurgerðum af málverkum Jóhannesar Sveinssonar Kjarvals (1885-1972). Verkin eru unnin í ýmis efni s.s. steinsteypu, mósaíkflísar, prjónagarn og glerflöskur en eiga það öll sameiginlegt að endurgera náttúruna í olíumálverkum Kjarvals.
Hins vegar sáu nemendur sýningu Eiríks Smith (f. 1925) ,,Brot úr náttúrunni -abstraktverk 1957 - 1963" þar sem listamaðurinn glímir við form og liti náttúrunnar í málverkum sínum á áhrifamikinn hátt.
14.1.2011
Rithöfundur í heimsókn
Í dag kom til okkar Þorgrímur Þráinsson rithöfundur og las upp úr nýútkomnum bókum sínum og spjallaði við nemendur. Fyrir nemendur í 4. - 6. bekk las hann úr bókinni "Ertu Guð afi"? Og fyrir nemendur í 7. - 10. bekk úr bókinn "Þokan". Allir hlustuðu af athygli enda er Þorgrímur frábær lesari og bækurnar mjög spennandi og skemmtilegar. Eru honum færðar kærar þakkir fyrir þessa ánægjulegu stund.
7.1.2011
Upplýsingar vegna óveđurs
Ef óveður geisar er meginreglan sú að skóli er opinn. Foreldrar þurfa að meta sjálfir hvort þeir senda börn sín í skólann eða ekki. Viðbrögð við óveðri má finna undir Tilkynningar til hægri á síðunni og foreldrar eru beðnir að kynna sér þau.
















