Beint á leiđarkerfi vefsins

Fréttir

20.12.2011

Jólaskemmtanir

jólaskemmtanirJólaskemmtunum á öllum stigum skólans er nú lokið. Flestir nemendur voru með mjög góð skemmtiatriði og má þar sérstaklega nefna helgileik sem nemendur í 4. bekk fluttu. Gengið var í kringum jólatréð og sungið. Allir skemmtu sér mjög vel. Skólinn hefst aftur að jólaleyfi loknu á nýju ári miðvikudaginn 4. janúar. Smellið á myndina hér til hliðar til að sjá fleiri. Gleðileg jól.

19.12.2011

Rithöfundur á bókasafni skólans

Harpa DísÍ seinustu viku kom rithöfundurinn Harpa Dís Hákonardóttir í heimsókn á skólasafnið og kynnti nýútkomna bók sína, "Fangarnir í trénu".

Harpa Dís sem er 18 ára, las úr bókinni fyrir nemendur í 4.-7. bekk.

Ţetta er önnur bók höfundar, en áður hefur komið út bókin Galdrasteinninn sem margir nemendur þekkja.

19.12.2011

Jólastund á skólasafninu

Jól á safniÍ desember hefur verið mikið um að vera á safninu.  Þá eru ljósin deyfð,  safnið skreytt og dúkar eru á borðum. Bekkir koma í heimsókn, hlusta á jólasögur og  fá kakó og piparkökur. Nemendur úr 7. og 8. bekkjum hafa lesið upp  jólasögur og jólavísur fyrir nemendur í 1.-6. bekk. Hafa þau öll staðið sig með prýði.

14.12.2011

Jólalestin

JólalestinDagana 8. og 9. desember voru svokallaðir þemadagar í skólanum. Að þessu sinni var ákveðið að vinna að verkefnum tengdum jólum. Yfirskriftin var "Jólalestin" og var nemendum skipt í hópa. Nemendur í 1. - 4. bekk gerðu dagatal fyrir alla mánuði ársins 2012. Myndirnar á dagatalinu voru margs konar s.s. klippimyndir, pappírsbrot, málaðar myndir o.fl. Í 5. -7. bekk var föndrað ýmislegt jólalegt. Búin voru til jólakort, origamijólaskraut, pappírshús klippt og skorin og gerðar kókoskúlur sem settar voru í skreyttar krukkur. Unglingastigið vann einnig ýmis jólaverkefni. Nemendur fóru í ratleik, föndruðu jólaskraut og kort og spiluðu ýmis skemmtileg spil. Þessir dagar voru mjög ánægjulegir og allir í góðu jólaskapi.

2.12.2011

Innlögn í brotareikningi

BrotainnlögnŢessa dagana er 7-V að læra allt um almenn brot. Í tilefni þessa voru bakaðar vöfflur í stærðfræðitíma og brotin skoðuð út frá þeim. Að lokum var vöfflunum skipt jafnt á milli allra og borðaðar með sultu og rjóma.

Fréttir - á RSS-formi

Viđburđir

 «Maí 2012» 
sunmánţrimiđfimföslau
  12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031  

6HHeimili og skóliSkólamatur

Slóđin ţín:

Forsíđa

Mynd