Beint á leiđarkerfi vefsins

Fréttir

27.9.2011

Heimsókn iđjuţjálfa

iðjuþjálfar í 6. bekk6. bekkur fékk góða heimsókn í gær. Í bekkinn komu tveir íðjuþjálfar til þess að skoða skólatöskur barnanna. Þeir skoðuðu hvort töskurnar væru rétt stilltar en einnig var rætt um þyngd skólatöskunnar. Þetta var góð og gagnleg heimsókn.

19.9.2011

Skólakynning fyrir foreldra barna í 1. bekk

SkólakynningSú hefð hefur skapast í Kópavogsskóla að bjóða foreldrum barna í fyrsta bekk til sérstakrar kynningar á skólanum og skólastarfinu. Kynningin í ár fór fram 6. september sl. og fyrri hluti hennar var í samkomusal skólans. Þar ræddi Dýrleif Egilsdóttir námsráðgjafi um líðan barna í skóla og Guðmundur skólastjóri kynnti foreldrum uppeldisaðferðina Uppeldi til ábyrgðar en skólinn starfar samkvæmt þeirri hugmyndafræði. Síðan var foreldrum boðið í súpu og salat í starfsmannastofu skólans og þar gafst þeim tækifæri til að kynnast foreldrum annarra barna í árganginum. Eftir mat var haldið í bekkjarstofur þar sem Ermenga Björnsdóttir og Hulda Hrönn Ágústsdóttir umsjónarkennarar kynntu námskrána og vetrarstarfið. 

14.9.2011

Grćnmetiskarlar í 2. bekk

GrænmetiskarlarÍ heimilisfræði í vikunni bjuggu börnin í 2. bekk til gómsæta grænmetiskarla. Drukkið var að sjálfsögðu vatn með. Segja má að morgunhressingin gerist nú varla hollari.

12.9.2011

Heimsókn danskra nemenda

 

Danskir nemendurVikuna 28. ágúst til 3. september fengu nemendur í 9. bekk nemendur frá Parkvejskolen í Birkerød í Danmörku í heimsókn. Heimsóknin var skipulögð af foreldrum í samvinnu við skólann en ein stúlkan í íslenska hópnum var í þessum skóla fyrir nokkrum árum.  Dönsku nemendurnir komu hingað til lands á sunnudegi og tóku íslensku nemendurnir á móti þeim ásamt foreldrum sínum.  Danirnir gistu hjá íslenskum jafnöldrum sínum og komu síðan með þeim í skólann á mánudeginum. Á þriðjudagsmorgni var síðan lagt af stað í ferðalag þar sem farið var hinn svokallaða „gullna hring" ásamt því að farið var í river rafting í Hvítá. Í lok dagsins  var  síðan haldið í Vindáshlíð þar sem krakkarnir nutu samveru og  gistu um nóttina.

9.9.2011

Ađalfundur foreldrafélagsins

Aðalfundur Foreldrafélags Kópavogsskóla

Fimmtudaginn 15. september nk. kl. 18.15 er boðað til aðalfundar foreldrafélags Kópavogsskóla.

Fyrir fundinum liggja hefðbundin aðalfundastörf sem eru skv. 4. gr. laga foreldrafélagsins eftirfarandi:

1) Stjórnin gefur skýrslu um starfsemi félagsins á liðnu starfsári.

2) Gjaldkeri leggur fram endurskoðaða reikninga til umræðu og samþykktar.

3) Lagabreytingar ef fyrir liggja tillögur um þær.

4) Ákvörðun tekin um félagsgjöld næsta árs.

7.9.2011

Brosandi andlit í 3. bekk

Brosandi brauðŢað voru sannkölluð brosandi andlit í heimilisfræði í 3. bekk síðustu tvær vikur. Börnin æfðu sig í að smyrja brauð og fengu síðan allskyns grænmeti og ávexti til þess að skreyta brauðið sitt með og búa til andlit. Sum börnin þorðu varla að gæða sér á brauðinu því þau vildu ekki skemma það sem þau höfðu gert. Með brauðinu gæddu börnin sér á heitu kakói sem þau höfðu búið til í sameiningu með aðstoð kennara.

7.9.2011

Útivist hjá 2. bekk

Úti að leikaÚtivist verður hjá 2. bekk alla fimmtudaga í vetur. Nú þegar höfum við tvisvar farið út að leika okkur annað skiptið á leikvöllinn við Bjarnhólastíg og hitt skiptið gengum við niður í Hlíðargarð. Allir léku sér fallega saman í góðu veðri og skemmtu sér vel.

5.9.2011

Göngum í skólann

Göngum í skólannKópavogsskóli  hefur ákveðið að taka þátt í Göngum í skólann, verkefni á vegum Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, Landlæknisembættisins, mennta- og menningarmálaráðuneytisins, Ríkislögreglustjóra, Umferðarstofu, Slysavarnarfélagsins Landsbjargar og Heimilis og skóla. Göngum í skólann verður sett miðvikudaginn 7. september og lýkur formlega með alþjóðlega Göngum í skólann deginum miðvikudaginn 5. október.

Ţetta er í fimmta sinn sem verkefnið er haldið hér á landi og hefur þátttaka aukist jafnt og þétt. Megin markmið verkefnisins er að hvetja nemendur til þess að ganga eða hjóla til og frá skóla með því að auka færni nemenda til að ganga á öruggan hátt í skólann og fræða þau um ávinning reglulegrar hreyfingar. Að draga úr umferðarþunga, mengun og hraðakstri nálægt skólum. Auk þess er reynt að stuðla að vitundarvakningu fyrir vistvænan ferðamáta og

1.9.2011

Skólakynningar

Skólakynningar/námskynningar fyrir foreldra verða sem hér segir:

2.-4. bekkur þriðjudaginn 6. september kl. 8:00 í stofum bekkjanna.

1. bekkur þriðjudaginn 6. september kl. 18:00 í sal skólans.

5.-7. bekkur miðvikudaginn 7. september kl. 8:00 í stofum bekkjanna.

8.-10. bekkur fimmtudaginn 8. september kl. 8:00 í stofum bekkjanna.

Fréttir - á RSS-formi

Viđburđir

 «Maí 2012» 
sunmánţrimiđfimföslau
  12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031  

SkólamaturHeimili og skóli6H

Slóđin ţín:

Forsíđa

Mynd