Beint á leiđarkerfi vefsins

Fréttir

18.5.2012

UNICEF hreyfingin

Unicef 2012Í dag föstudaginn 18. maí  tóku nemendur í skólanum þátt í söfnun fyrir Unicef. Nemendur í 1.- 4. bekk fóru í alls konar þrautir á skólalóðinni og í íþróttahúsi. Nemendur í 5.-7. bekk hlupu á hlaupabrautinni á Kópavogsvelli, spiluðu hafnabolta, fótbolta eða blak í Fífunni og fóru í þrautir í Hlíðagarði. Nemendur í 8.-10. bekk fóru í fjallgöngu, gengið var á Úlfarsfell. Allir voru glaðir og ánægðir og heppnaðist dagurinn í alla staði vel.

15.5.2012

Fótboltamót

6. L fótboltamótSíðastliðinn föstudag kepptu nemendur í 5. og 6. bekk sín á milli í fótbolta. Allar bekkjadeildir voru með lið og flestir nemendur tóku þátt. Skemmtileg stemmning var á sparkvellinum en hann er vel nýttur á frímínútum og fótboltaáhuginn mikill. Að þessu sinni var það 6. L sem vann mótið. Áfram Kópavogsskóli!

15.5.2012

Vorhátíđ foreldrafélagsins

vorhatid 

11.5.2012

Tölvuverkefni 1. bekkja

Nemendur í 1-J og 1-P hafa unnið verkefni á skólasafni í tölvum. Þau teiknuðu sjálfsmynd, mynd af húsinu sínu og gerðu æfingar með formin. Ef þið smellið á bekkina hér fyrir neðan má sjá afrakstur af vinnu þeirra.

Krakkarnir í 1-J

Við erum í 1-P

11.5.2012

Ferđ 3. bekkja í Víkina - sjóminjasafn

Víkin sjóminjasafnUndanfarið hafa nemendur í 3. bekk fræðst um hafið og unnið ýmis verkefni í tengslum við það. Af þessu tilefni fóru kakkarnir í Víkina - sjóminjasafn sem staðsett er úti  á Granda þar sem áður var frystihús BÚR. Fyrst var farið um safnið inni og fóru nemendur í ratleik og svöruðu spurningum. Margt fróðlegt var að sjá, skip bátar og ýmiss búnaður. Varðskipið Óðinn er hluti að safninu og endað var á að skoða það. Leiðsögumaður fór um borð með krökkunum og fræddi þá um hlutverk skipsins m.a. við landhelgisgæslu og björgunarstörf. Almenn ánægja var með þessa fróðlegu ferð sem heppnaðist í alla staði vel.

11.5.2012

Heimsókn í Salinn

1. og 2. bekkur heimsóttu salinn í síðustu viku og skiluðu  ormamyndum sem þau höfðu unnið í tilefni Ormadaga í Kópavogi. Hér að neðan má sjá myndbönd frá afhendingu myndanna.

   https://vimeo.com/41292420

    https://vimeo.com/41426443

10.5.2012

BEST stćrđfrćđikeppnin 2012 - 9. N í undanúrslitum

Best stærðfræðikeppnin er norræn stærðfræðikeppni sem á rætur sínar að rekja til Noregs og hafa íslenskir bekkir tekið þátt í henni síðan haustið 2001. Í ár tóku 49 bekkir af öllu landinu þátt og komust 15 þeirra í undanúrslit. Keppnin snýst um að gefa nemendum kost á að spreyta sig á góðum stærðfræðiþrautum, vinna saman og færa rök fyrir máli sínu auk þemaverkefnis sem að þessu sinni bar heitið Stærðfræði í hvers kyns mynstrum.

7.5.2012

Heimsókn á 365

365Valhópurinn í skólablaðinu fór í heimsókn á 365 miðla á dögunum. Þau fengu góðar móttökur og  skoðuðu fm, x-ið, Stöð2 og Fréttablaðið. Mynd var tekin af hópnum og sett á ,,forsíðu." Markaðsstjórinn sagði þeim sögu útvarps frá upphafi.  Þetta var mjög ánægjuleg ferð og nemendur kurteisir að vanda.

7.5.2012

Tónleikar í Hörpu

Tónleikar í Eldborgarsal HörpuMiðvikudaginn 25. apríl var nemendum í 3., 4. og 5. bekk boðið í heimsókn í nýja tónlistarhúsið okkar Íslendinga  Hörpuna, til að hlusta á Sinfóníuhljómsveit Íslands flytja nokkur þekkt verk. Ferðin og tónleikarnir voru ákaflega ánægjuleg upplifun. Framkoma nemenda var til fyrirmyndar í einu og öllu eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.

7.5.2012

2. bekkur í bćjarferđ

Bæjarferð 2. bekkur 2012Fimmtudaginn 26. apríl fórum við í 2-U og 2-Þ með strætó niður í miðbæ Reykjavíkur að skoða nokkur merk hús sem við höfum verið að læra um í samfélagsfræði. Veðrið var nú ekkert sérstaklega gott en við létum það ekki á okkur fá og þrömmuðum um bæinn, fengum okkur svo að drekka í Ráðhúsinu og skoðuðum þar sýningu í leiðinni.  Allir komu kátir og glaðir heim.

24.4.2012

Tiltekt á skólalóđinni

Tiltekt á skólalóðKrakkarnir í skólanum skipta á milli sín að tína upp rusl af skólalóðinni. Þetta er gert þegar veður leyfir og undir stjórn umsjónarkennara. Nemendur læra að bera virðingu fyrir umhverfinu og skólalóðin verður snyrtileg. Á myndunum má sjá hressa krakka úr 4. bekk í ruslatínslu.

30.3.2012

Árshátíđir

árshátíðar 2012Nú er árshátíðum lokið á öllum stigum. Árshátíðin á unglingastigi hófst með borðhaldi og á meðan á því stóð voru skemmtiatriði sýnd. Það voru dansatriði, söngur, stuttmyndagerð o.fl. Á árshátíð yngsta stigs komu mjög margir foreldrar og fylgdust með ýmsum atriðum s.s. ævintýrum, frumsömdum leikritum, söngkeppni og mörgu fleiru. Á árshátíð miðstigs voru sýnd leikrit, Idol söngkeppni og endað með lögum úr söngleiknum Grease. Allar árshátíðirnar heppnuðust einstaklega vel þar sem allir vönduðu til verka og skemmtu sjálfum sér og öðrum prýðilega. Við óskum ykkur gleðilegra páska og hlökkum til að sjá ykkur aftur í skólanum miðvikudaginn 11. apríl.

29.3.2012

Gulur dagur

Gulur dagur 2012Í dag síðasta kennsludaginn fyrir páskaleyfi gerðum við okkur glaðan dag  og mættu mjög margir nemendur og starfsfólk í gulum fötum. Myndirnar tala sínu máli.

29.3.2012

Heilsueflandi grunnskóli

Heilsueflandi grunnskóliHeilsa og vellíðan eru mikilvægir undirstöðuþættir í velferð hvers einstaklings. Hver kannast ekki við málsháttinn ,,góð heilsa er gulli betri"? Í haust var stofnaður stýrihópur um ,,Heilsueflingu í Kópavogsskóla". Hópurinn ákvað að taka nokkra þætti heilueflingar fyrir og hélt Ingibjörg Guðmundsdóttir ráðgjafi fyrirlestur um heilsueflingu fyrir starfsfólk skólans 2. mars. Þar sem hún kynnti verkefni og sagði meðal annars frá því sem gert hefur verið og hvernig til hefur tekist í skólum hérlendis.Dr. Anna Sigríður Ólafsdóttir  dósent í næringarfræði við Menntavísindasvið Háskóla Íslands hélt fyrirlestur fyrir foreldra þriðjudaginn 20. mars, í Kjarnanum sal skólans. Þar fjallaði hún meðal annars um mikilvægi þess að neyta hollrar, næringarríkrar og fjölbreyttrar fæðu. Hún lagði áherslu á að fólk láti ekki líða of langur tími milli máltíða. Báðir þessir fyrirlestrar voru mjög áhugaverðir og þarft innlegg í umræðu um bætt mataræði og breyttan lífsstíl einstaklinga.

Upplýsingar um Heilsueflandi grunnskóla er að finna á slóðinni http://www2.lydheilsustod.is/heilsueflandiskoli

26.3.2012

Fótboltamót 7. bekkja í Kópavogi

Fótboltamót 7. bekkur 2012Fótboltamót 7. bekkja var haldið 23. mars í Fífunni. Allir skólar í Kópavogi tóku þátt. 7. bekkur í Kópavogsskóla mætti með eitt drengjalið og eitt stúlknalið. Stúlkurnar töpuðu í undanúrslitum við Lindaskóla og lentu í þriðja sæti. Drengirnir komust ekki í undanúrslit. Mótið var vel skipulagt og skemmtilegt. Krakkarnir voru til fyrirmyndar bæði utan sem innan vallar.

26.3.2012

Heimsókn leikskólabarna

Leikskólaheimsókn 23. marsFöstudaginn 23. mars fengum við ánægjulega heimsókn frá leikskólum, en þetta voru nemendur sem hefja skólagöngu í 1. bekk í haust. Leikskólakennarar fylgdu hópunum ásamt nokkrum foreldrum. Deildarstjóri tók á móti gestunum og sýndi þeim skólann. Síðan var skólasafnskennarinn með sögustund á bókasafninu og að lokum fengu allir safa og kleinur. Mjög skemmtilegt var að taka á móti eftirvæntingarfullum hópnum.

26.3.2012

Danssýningar

Dans 1-3. b. 2012Á fimmtudaginn 22. mars lauk dansnámskeiði hjá 1.-3. bekk. Af því tilefni var foreldrum boðið að koma og horfa á börnin dansa. Fjölmargir foreldrar komu og fylgdust spenntir með krökkunum dansa af mikilli fimi.

23.3.2012

Stóra upplestrarkeppnin

Stóra upplestrarkeppnin 2012Í nokkur ár hafa nemendur í  7. bekk tekið þátt í Stóru upplestrarkeppninni. Undirbúningur keppninnar hefst á degi íslenskrar tungu 16. nóvember. Allir nemendur í árganginum taka þátt í keppninni og æfa upplestur á texta í bundnu og óbundnu máli. Lögð er meðal annars áhersla á góðan og skýran framburð og tóku nemendur miklum stakkaskiptum í framsögn á tímabilinu.Í skólanum var haldin keppni í hvorum bekk fyrir sig og komust alls 12 nemendur áfram í lokakeppni skólans sem var haldin 2. mars. Þeir einstaklingar sem báru sigur úr bítum innan skólans voru Rebekka Rut Jónsdóttir, Birna Ósk Helgadóttir, Runólfur Gylfason og Bjarki Dagur Kristjánsson. Þriðjudaginn 21. mars kepptu nemendur sem báru sigur úr bítum innan síns skóla í Salnum í Kópavogi. Þá tóku Rebekka Rut og Birna Ósk þátt í keppninni fyrir hönd Kópavogsskóla en Runólfur og Bjarki Dagur voru varamenn. Keppnin í Salnum var til fyrirmyndar og allir þátttakendur til fyrirmyndar.  Birna Ósk og Rebekka Rut stóðu sig með sóma en hrepptu ekki verðlaunasæti.

15.3.2012

Heilsueflandi grunnskóli

Kynningarfundur fyrir foreldra þriðjudaginn 20. mars kl. 08:05 - 09:00 í sal Kópavogsskóla

Dagskrá:

  • o Heilsueflandi grunnskóli - Guðmundur Ásmundsson skólastjóri
  • o Matur í heilsueflandi umhverfi - Dr. Anna Sigríður Ólafsdóttir dósent í næringarfræði við Menntavísindasvið Háskóla Íslands
  • o Fyrirspurnir

Foreldrar eru hvattir til að fjölmenna og fræðast um efni sem skiptir allar fjölskyldur máli. Mjög viðamiklar upplýsingar um Heilsueflandi grunnskóla er að finna á slóðinni http://www2.lydheilsustod.is/heilsueflandiskoli

7.3.2012

Skólahreysti

Skólahreysti 2012Fimmtudaginn 1. mars var hið vinsæla skólahreystimót haldið í Smáranum.  Kópavogsskóli sendi lið til þátttöku eins og undanfarin ár.  Stundum hefur verið erfitt að fá nemendur til að keppa en oftast náðst í lið á síðustu stundu.  Í þetta skiptið gátum við  skráð nöfn þeirra sem kepptu tveimur dögum fyrir mót. Þeir sem kepptu fyrir hönd Kópavogsskóla í ár voru: Brynjar Arndal Brynjarsson í 9-S hann keppti í upphífingum og dýfum, Álfheiður Kristín Harðardótti í 10-RT hún keppti í armbeygjum og hreystigreip, Fjóla Dís Viðarsdóttir í 9-S og Alexander Helgi Sigurðsson í 10-RT kepptu í hraðabraut. Við þökkum þeim fyrir þátttökuna.   Næsta haust er stefnt að því að halda skólahreystimót á milli bekkja í unglingadeild.  Þá koma að góðum notum tækin sem skólinn fékk gefins fyrir stuttu frá foreldrafélaginu.  Í framhaldi af þeirri keppni veljast vonandi áhugasamir einstaklingar til að keppa fyrir hönd skólans á næsta ári.

24.2.2012

Innritun 6 ára nemenda

Innritun 6 ára nemenda í Kópavogsskóla verður mánudaginn 5. og þriðjudaginn 6. mars nk. Innritunin fer fram á skrifstofu Kópavogsskóla sem er á 2. hæð skólans. Einnig er hægt að hringja í skrifstofu skólans í síma 570 4960 og innrita nemendur símleiðis. Nánari upplysingar um innritun í skóla bæjarins er að finna hér.

22.2.2012

Bolludagur, sprengidagur og öskudagur

oskudagur 2012Ţessa þrjá daga höfum við vikið út af stundaskrá og gert ýmislegt skemmtilegt. Á bolludag var haldinn dagur stærðfræðinnar. Öllum nemendum skólans var skipt í hópa sem fóru á margar stærðfræðistöðvar, t.d. voru unnar tölfræðilegar upplýsingar um afmælisdaga, búnar til Tangram myndir, unnið með form, kubbum raðað, stærðfræði myndmenntar, farið í búðarleik o. fl. Á sprengidag var tveimur kennslustundum varið í yndislestur þ.e. bæði nemendur og starfsfólk lásu bækur sér til ánægju. Í dag á sjálfan öskudag var boðið upp á bíó, margs konar valverkefni, marserað um skólann og síðast en ekki síst voru tvö öskudagsböll sem nemendur í 10. bekk stjórnuðu með mikilli prýði. Kunnum við þeim bestu þakkir fyrir. Flestir mættu í búningum og kenndi þar margra grasa. Þetta voru mjög ánægjulegir dagar þar sem allir nutu sín afar vel.

15.2.2012

Afhending skólahreystitćkja

skólahreystitækiÍ morgun kom stjórn foreldrafélags Kópavogsskóla í heimsókn og afhenti nemendum í 8. - 10. bekk og íþróttakennurum tæki til æfinga fyrir skólahreysti. Andrés Guðmundsson og Lára Berglind Helgadóttir aðstandendur Skólahreysti komu einnig og töluðu við krakkana um skólahreysti. Þau sögðu svolítið frá keppninni og hvöttu krakkana til þess að taka þátt og setja sér markmið varðandi hreyfingu. Við þökkum foreldrafélaginu kærlega fyrir og vitum að tækin koma sér vel í þjálfun fyrir þessa skemmtilegu keppni. Hér má sjá skólastjórann taka nokkrar léttar armbeygjur á einu tækjanna.

2.2.2012

3. bekkur í vettvangsferđir

vettvangsferðVikan 23.-27. janúar var fremur viðburðarík hjá nemendum í 3. bekk. Þriðjudaginn 24. janúar fóru þeir á Þjóðminjasafnið að skoða sýninguna Tíminn og skórnir. Sú ferð var mjög fróðleg og áhugaverð í alla staði. Fimmtudaginn 26. janúar var krökkunum boðið í Mjólkursamsöluna. Þar fengu þeir að sjá framleiðsluferli mjólkurvara og fengu síðan að smakka mjólk og íspinna. Ferðin gekk mjög vel og var börnunum hrósað af starfsfólki Mjólkursamsölunnar.

27.1.2012

4. bekkur og saga mannkyns

Saga mannkynsUndanfarið hafa nemendur í 4. bekk unnið með sögu mannkyns. Unnið hefur verið með verkefnið inni í bekk, í myndmennt, textíl, tónmennt og á skólasafni (Fjölfærni). Nemendur hafa safnað fróðleik og skoðað bækur og myndir. Einnig hefur verið spjallað, skrifað, teiknað, sungið og þæft. Í gærmorgun  héldu nemendur sýningu og komu foreldrar í heimsókn í skólann til að skoða afraksturinn. Boðið var upp á heitt kakó og kex og urðu viðstaddir margs fróðari. 

27.1.2012

Skákdagurinn 2012

Skákdagurinn 2012Fimmtudaginn 26. janúar var Skákdagurinn 2012 haldinn um allt land. Teflt var á ýmsum stöðum á landinu og einnig hér í skólanum. Töfl voru sett upp í sal skólans og komu margir hópar og tefldu. Sumir eru alvanir skákmenn, aðrir voru að tefla í fyrsta sinn. Gaman var að sjá hve áhugasamir nemendur voru og þeir vönu aðstoðuðu byrjendur.

25.1.2012

Óveđursviđbrögđ

Ágætt er að rifja upp reglur um óveðursviðbrögð sem er að finna undir tengli til hægri á síðunni. Til hægðarauka eru helstu atriðin birt hér: 

1. Skóla er aldrei lokað í óveðri nema fyrir tilstilli almannavarnanefndar. Foreldrar verða að geta treyst því að skóli sé opinn hafi almannavarnir eða skólaskrifstofa ekki gefið út sérstaka tilkynningu um annað.

2. Ætlast er til að foreldrar meti sjálfir hvort þeir senda börn sín í skóla þegar óveður geisar. Sé þeim haldið heima þarf að tilkynna það til skóla eins og önnur forföll. Séu börnin hins vegar send í skóla er þess vænst af foreldrum að þeir fylgi börnum sínum í skólann og sæki þau að loknum skóladegi.

25.1.2012

Boot camp

Boot campÍ janúar hefur Alda Sverrisdótti þjálfari hjá Bootcamp verið með fræðslu fyrir nemendur á unglingastigi.  Í fyrsta tíma fjallaði Alda um mikilvægi hreyfingar og að allir gætu fundið eitthvað við sitt hæfi einnig talaði hún um næringu og svefn.  Í tíma tvö fjallaði hún um hugarfar, mikilvægi þess að setja sér markmið og gefast ekki upp.  Í þessum tímum var hún með margar góðar myndir og myndskeið sem gerðu tímana enn skemmtilegri. Í þriðja tíma hitti Alda nemendur í íþróttasal þar sem þeir hlupu og gerðu ýmsar líkamsæfingar af áhuga og gleði undir dyggri stjórn hennar. 

25.1.2012

Stćrđfrćđikeppni

StærðfræðikeppniÍ dag tóku nemendur í 9-S og 9-N þátt í stærðfræðikeppninni Best. Keppnin er hluti af Norrænni bekkjarkeppni í stærðfræði. Keppnin fer fram í nokkrum lotum. Nemendurnir tóku þátt í lotu 1 fyrir jól og stóðu sig með sóma. Í dag voru nemendur að ljúka lotu 2 og verður gaman að sjá hvernig það gekk. Keppnin er tvíþætt, fyrri hlutinn byggist á dæmum og þrautum sem krakkarnir vinna sjálfir og senda inn svör við. Þeir bekkir sem skora flestu stigin í þessum lotum senda síðan fulltrúa úr bekknum, tvær stelpur og tvo stráka til að halda áfram. Seinni hlutinn er bekkjarverkefni sem bekkurinn vinnur í sameiningu og sendir inn. Í ár er þema bekkjarverkefnisins Stærðfræði í hvers kyns mynstrum.

25.1.2012

Vettvangsferđ í Svansprent

SvansprentNemendur í 9. og 10. bekk sem eru í valhópnum Skólablað fóru í vettvangsferð í Svansprent á dögunum. Nemendur kynntu sér ferlið við gerð blaðs. Krakkarnir stefna að því að gefa út veglegt skólablað fyrir páska.

20.1.2012

Stafainnlögn í 1. bekk

1. bekkur nornagríma1. bekkur var að vinna með stafinn N, n í vikunni. Af því tilefni ákváðu kennarar og nemendur að búa til nornagrímur. Grímurnar heppnuðust vel og verkefnið var skemmtilegt og heppnaðist afar vel. Hér má sjá nemendur með grímurnar sínar.

19.1.2012

Söngvakeppni félagsmiđstöđvanna

söngvakeppni 3. sætiŢórunn Soffía 8. X stóð sig frábærlega og hreppti 3. sæti í söngvakeppni félagsmiðstöðvanna í Kópavogi. Hún verður fulltrúi félagsmiðstöðva Kópavogs, ásamt vinninghöfum í 1. og 2. sæti, í söngkeppni Samfés sem verður í Laugardalshöllinni í byrjun mars. Lagið sem Þórunn Soffía flutti heitir " Make you feel my love" - og er lag söngkonunnar Adele. Dómarar í keppninni voru: Margrét Eir, Sigfríður Eyrún, Davíð Smári, Stefanía Svavarsd. og  Ólöf Jara Skagfjörð.  Til hamingju Þórunn! Sjá má upptöku af keppninni hér:http://www.youtube.com/watch?v=roHqfXVQvng&list=UUEXn4h2_w49LWbsF5RZRL0A&index=1&feature=plcp

 

19.1.2012

Danskennsla

Dans 1-3. b. 2012Ţann 12. janúar hófst námskeið í dansi hjá 1.-3. bekk. Danskennari er Heiðar Ástvaldsson. Hver bekkur fær eina kennslustund á viku í 10 skipti alls. Krakkarnir eru fljótir að læra helstu sporin og gaman verður að sjá árangurinn í lok námskeiðs. Hér til hliðar eru myndir af kátum krökkum í danstímum.

18.1.2012

Skólastarf í upphafi nýs árs

Stærðfræðiverkefni 8. bekkSkólastarfið hefur farið vel af stað í byrjun árs. Fjölbreytt verkefni eru í gangi og allir niðursokknir við námið. Nú styttist óðum í próf en afhending vitnisburða og foreldraviðtöl verða 28. febrúar. Undanfarna daga hefur 8. bekkur unnið að skemmtilegu verkefni. Verkefnið er samvinnuverkefni í stærðfræði, upplýsingamennt og myndmennt. Nemendur hafa safnað tölulegum upplýsingum um hæð, höfuðmál, skóstærð o.fl., allra nemenda skólans. Ætlunin er að búa til gagnasafn, vinna myndrit úr upplýsingunum, ásamt fleiri verkefnum.

Fréttir - á RSS-formi

Viđburđir

 «Maí 2012» 
sunmánţrimiđfimföslau
  12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031  

SkólamaturHeimili og skóli6H

Slóđin ţín:

Forsíđa

Mynd