Fréttir
24.2.2012
Innritun 6 ára nemenda
22.2.2012
Bolludagur, sprengidagur og öskudagur
Ţessa þrjá daga höfum við vikið út af stundaskrá og gert ýmislegt skemmtilegt. Á bolludag var haldinn dagur stærðfræðinnar. Öllum nemendum skólans var skipt í hópa sem fóru á margar stærðfræðistöðvar, t.d. voru unnar tölfræðilegar upplýsingar um afmælisdaga, búnar til Tangram myndir, unnið með form, kubbum raðað, stærðfræði myndmenntar, farið í búðarleik o. fl. Á sprengidag var tveimur kennslustundum varið í yndislestur þ.e. bæði nemendur og starfsfólk lásu bækur sér til ánægju. Í dag á sjálfan öskudag var boðið upp á bíó, margs konar valverkefni, marserað um skólann og síðast en ekki síst voru tvö öskudagsböll sem nemendur í 10. bekk stjórnuðu með mikilli prýði. Kunnum við þeim bestu þakkir fyrir. Flestir mættu í búningum og kenndi þar margra grasa. Þetta voru mjög ánægjulegir dagar þar sem allir nutu sín afar vel.
15.2.2012
Afhending skólahreystitćkja
Í morgun kom stjórn foreldrafélags Kópavogsskóla í heimsókn og afhenti nemendum í 8. - 10. bekk og íþróttakennurum tæki til æfinga fyrir skólahreysti. Andrés Guðmundsson og Lára Berglind Helgadóttir aðstandendur Skólahreysti komu einnig og töluðu við krakkana um skólahreysti. Þau sögðu svolítið frá keppninni og hvöttu krakkana til þess að taka þátt og setja sér markmið varðandi hreyfingu. Við þökkum foreldrafélaginu kærlega fyrir og vitum að tækin koma sér vel í þjálfun fyrir þessa skemmtilegu keppni. Hér má sjá skólastjórann taka nokkrar léttar armbeygjur á einu tækjanna.
2.2.2012
3. bekkur í vettvangsferđir
Vikan 23.-27. janúar var fremur viðburðarík hjá nemendum í 3. bekk. Þriðjudaginn 24. janúar fóru þeir á Þjóðminjasafnið að skoða sýninguna Tíminn og skórnir. Sú ferð var mjög fróðleg og áhugaverð í alla staði. Fimmtudaginn 26. janúar var krökkunum boðið í Mjólkursamsöluna. Þar fengu þeir að sjá framleiðsluferli mjólkurvara og fengu síðan að smakka mjólk og íspinna. Ferðin gekk mjög vel og var börnunum hrósað af starfsfólki Mjólkursamsölunnar.
















