Fréttir
7.6.2010
UNICEF hreyfingin
Krakkarnir söfnuðu áheitum hjá ættingjum og vinum og fengu límmiða fyrir hvern hring sem þau fóru. Almenn ánægja og gleði ríkti þennan dag og tóku allir virkan þátt í öllum þrautum dagsins. Markmiðið með þessu var að hvetja til aukinnar hreyfingar barna og unglinga og safna fé fyrir Unicef. Söfnunarféð rennur í alþjóðlegan sjóð Unicef, sem nýtir fjármunina þar sem þörfin er mest hverju sinni.















