Fréttir
4.8.2010
Tímamót
Á þeim tíma sem Jóna hefur starfað við skólann hefur orðið gríðarleg þróun í öllu starfi grunnskólanna og allt vinnuumhverfi annað en var. Hún hefur ætíð verið opin fyrir nýjungum í skólastarfinu ásamt því að láta sér annt um nemendur sína og viljað hag þeirra sem bestan. Um leið hefur hún gert kröfu til þeirra að sinna námi sínu af kostgæfni.
Við skólaslit Kópavogsskóla í júní sl. voru Jónu færðar gjafir frá Kópavogsskóla og Kópavogsbæ með þakklæti fyrir hennar framlag til skólamála í Kópavogi. Þó Jóna sé nú hætt sem aðstoðarskólastjóri starfar hún hér áfram í hlutastarfi sem kennari.
Nýr aðstoðarskólastjóri Kópavogsskóla heitir Ólína Þorleifsdóttir en hún lauk meistaranámi í stjórnun menntastofnana frá Háskóla Íslands árið 2009. Hún hefur starfað við Grunnskólann í Þorlákshöfn undanfarin ár og við bjóðum hana velkomna til starfa við Kópavogsskóla.














