Fréttir
26.8.2010
Ferđ 3. bekkjar í Víkina- sjóminjasafn
Á nýbyrjuðu skólaári verður haldið áfram í 3. bekk með fjölfærniverkefnið sem hófst í 1. bekk. Þar fléttast saman vinna í bóklegum og verklegum greinum. Fyrsta verkefni þessa skólaárs verður HAFIÐ og í tilefni af því fóru nemendur og kennarar í heimsókn í Víkina - sjóminjasafn sem staðsett er úti á Granda þar sem áður var frystihús BÚR. Varðskipið Óðinn er hluti af safninu en í ár eru 50 ár frá því að það kom til landsins.
Byrjað var á að rölta um bryggjur og síðan var nestistími á palli við safnið. Farið var um borð í Óðin og skipið skoðað að utan og innan. Margt merkilegt bar þar fyrir augu og leiðbeinandi frá safninu sagði frá hlutverki skipsins m.a. við landhelgisgæslu og björgunarstörf. Að síðustu var farið inn í safnið og hluti þess skoðaður. Almenn ánægja var með þessa fróðlegu ferð enda veðrið eins og best verður á kosið. Sólin skein, mannvirki spegluðust í sjónum og við höfnina var líf og fjör.















