Beint á leiđarkerfi vefsins

Tilkynningar

20.5.2010

Skemmtileg gjöf - Heimaslóđaljóđ

Við viljum benda á að ennþá er til sölu hér í skólanum bókin Heimaslóðaljóð sem unnin var sl. skólaár í samvinnu nemenda núverandi 4. bekkjar og hóps eldri borgara á Gjábakka. Bókin inniheldur, auk ljóða, myndskreytingar eftir báða hópa. Sjón er sögu ríkari. Þetta er skemmtileg tækifærisgjöf sem kostar aðeins 1500 kr.

Auk þess eigum við nokkur eintök af blaðinu Kópavogsskóli 1949-2009, Húsið á hálsinum, sem kom út í tilefni af 60 ára afmæli skólans. Í blaðinu eru aðallega greinar frá upphafsárum skólans. Blaðið er ókeypis og ef einhverja nemendur frá þessum upphafsárum skólans langar í blað þá er bara að láta vita, hringja eða senda póst á t.d. moller@kopavogur.is. Minnum samt á að allir nemendur skólans s.l. vetur fengu eintak í vor.

Tilkynningar - á RSS-formi

Viđburđir

 «Febrúar 2012» 
sunmánţrimiđfimföslau
   1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829   

6HSkólamaturHeimili og skóli

Slóđin ţín:

Forsíđa » Tilkynningar

Mynd