Fréttabréf Kópavogsskóla
September 2023
Haust 2023
Framkvæmdir í sumar
Þegar starfsfólk og nemendur skólanna fara í sumarfrí, tekur eignadeild Kópavogsbæjar til við að breyta og bæta hjá okkur. Óskalistinn okkar er ávallt lengri en framkvæmdalistinn en það er hins vegar gott að vita að alltaf er verið að vinna að því að bæta úr húsnæði skólans þó við viljum alltaf meira.
Á meðal framkvæmda í skólanum í sumar má nefna myndina sem margir hafa séð sem hefur verið máluð á suðurvegg íþróttahúss skólans og sést hún vel af Digranesveginum. Einnig hefur verið sett í skólann nýtt loftræstikerfi í miðálmu skólans þar sem nemendur í 1.-7. bekk stunda nám sitt. Óhætt er að segja að kjarnaborunin hafi dreift steypuryki vel og vandlega yfir allt húsnæðið. Ákveðið var að setja upp ný anddyri, bæði aðalanddyrið frá Digranesveginum og einnig anddyri norðan megin í húsinu. Á sama tíma var gólfefni í miðrýmum hjá anddyrunum endurnýjað. Þegar svo iðnaðarmennirnir yfirgefa okkur taka skólaliðar við og takast á við það risaverkefni að þrífa skólann og gera allt klárt fyrir skólabyrjun.
Kynningar á starfsfólki
Kennarar í 7. - 10. bekk
Kennarar á unglingastigi sinna bæði umsjónarkennslu og faggreinakennslu. Anna Kapitola Engilbertsdóttir er umsjónarkennari í 7. bekk og kennir dönsku, ensku og sviðslistir. Andri Þór Kristjánsson er umsjónarkennari í 10. bekk og kennir stærðfræði. Svanborg Ísberg er enskukennari skólans og sinnir heimilisfræði í hjáverkum. Gísli Þór Gíslason er umsjónarkennari í 7. bekk og kennir stærðfræði, upplýsingamennt og stafræna miðlun. Gróa Ingibjörg Grétarsdóttir er umsjónarkennari í 9. bekk og kennir íslensku og íslensku sem annað mál (ÍSAT). Birna Björnsdóttir er umsjónarkennari í 9. bekk og kennir samfélagsfræði, dönsku og sviðslistir. Hlíf Ásgeirsdóttir er umsjónarkennari í 8. bekk og kennir íslensku, Birna Vilhjálmsdóttir er sérkennari unglingastigsins og Árný Jóna Stefánsdóttir er umsjónarkennari í 8. bekk og kennir náttúrufræði, prjónar lopapeysur með nemendum og kennir þeim að endurnýta fatnað.
Þroskaþjálfar
Á síðasta skólaári bættust tveir þroskaþjálfar, þær Guðrún Sigríður Loftsdóttir og Klaudia Alicja Rymon-Lipinska við starfsmannahóp skólans og sinna þeir þeim nemendum sem þurfa þeirra þjónustu.
Umsjónarkennarar í 6. bekk
Umsjónarkennarar 6. bekkjar eru Þórunn Arnardóttir og Iðunn Haraldsdóttir. Þórunn kemur aftur til okkar eftir ársleyfi og Iðunn var með hópnum í fyrra og þekkir hann vel.
Sérkennarar
Sérkennarar skólans sinna þeim nemendum sem víkja frá í námi og þurfa einstaklingsnálgun í námi. Birna Vilhjálmsdóttir sinnir sérkennslu á unglingastiginu, Anna Þórðardóttir sinnir miðstigi og Ólöf Kristjánsdóttir sinnir sérkennslu á yngsta stigi.
Kennarar í sérdeild
Í sérdeild skólans starfar samhentur hópur kennara og sinna nemendum sem eru skráðir þar í nám. Erla Gígja Garðarsdóttir er deildarstjóri stoðþjónustu, Sandra Cristina Oliveira Alves er stuðningsfulltrúi sérdeildar og Halldóra Björk Sölvadóttir, Aðalheiður Halldórsdóttir og Jóhanna Guðrún Ólafsdóttir sinna kennslu.
List- og verkgreinarkennarar
List- og verkgreinakennarar Kópavogsskóla hafa allir starfað lengi við skólann en það eru þau Magnús Alfonsson sem kennir hönnun og smíði, Anna Guðný Ólafsdóttir sem kennir heimilisfræði, Skarphéðinn Hjartarson, tónmenntakennari, Svanborg Ísberg sem kennir heimilisfræði, Margrét Inga Bjarnadóttir, textílmenntakennari og Hauður Kristínsdóttir sjónlistarkennara. Á myndina vantar Huldu Hrönn Ágústsdóttur sjónlistarkennara.