Nemendur
Nemendur Kópavogsskóla eru um 320 skólaárið 2011-2012 og skiptast í 19 bekkjardeildir.
Við skólann er starfrækt námsver og sérdeild sem ætluð er seinfærum nemendum á miðstigi. Nemendaverndarráð sér um inntöku nemenda í sérdeildina, en hún tekur einnig við nemendum úr öðrum skólahverfum.
Nánari upplýsingar um einstaka bekki og hópa er að finna undir tenglinum bekkjarnámskrár.
Einnig má finna ýmsar upplýsingar um einstaka nemendur á mentor.is sem vistar nemendaskrá skólans. Til að geta skráð sig þar inn þarf notandanafn og lykilorð sem hægt er að nálgast hjá ritara skólans.














