Beint á leiđarkerfi vefsins

Skólareglur Kópavogsskóla

SKÓLAREGLUR   

  • Nemendum ber að koma stundvíslega í allar kennslustundir. Forráðamenn nemenda skulu tilkynna forföll þeirra á skrifstofu skólans áður en kennsla hefst eða svo fljótt sem auðið er.

  • Ţurfi nemandi leyfi frá skóla í einn dag sækir foreldri/forráðamaður um það til umsjónarkennara nemandans. Þurfi nemandinn hins vegar lengra leyfi sækir forráðamaður um það til skólastjóra á þar til gerðu eyðublaði.

  • Nemendum ber að koma fram af prúðmennsku og háttvísi á vettvangi skólans, ganga vel og hreinlega um skólann og sýna skólafélögum og öllu starfsfólki skólans fyllstu tillitssemi og kurteisi. Nemendum ber að hlýða starfsfólki skólans sbr. ákvæði 14. gr. laga nr. 91/2008 um grunnskóla.

  • Hjólreiðar og allur óþarfa akstur á leikvelli skólans er bannaður á starfstíma hans. Einnig meðferð línuskauta, hlaupahjóla og hjólabretta nema á tilteknum svæðum.

  • Notkun hvers konar tækja sem valda truflun á skólastarfi er bönnuð á vettvangi skólans og skólastarfsins.

  • Nemendur mega ekki yfirgefa skólalóðina á skólatíma nema með sérstöku leyfi umsjónarkennara og forráðamanna.

  • Reykingar eru bannaðar í skóla og á skólalóð lögum samkvæmt svo og neysla hvers konar vímugjafa. Sama gildir varðandi allt tómstundastarf og ferðir á vegum skólans.

  • Nemendur eða forráðamenn þeirra eru ábyrgir fyrir skemmdum, tjóni eða slysum sem nemendur kunna að valda - enda er hlutdeild hlutaðeigandi nemanda fullsönnuð eða játning hans er fyrirliggjandi.

Viðurlög við agabrotum:

Viðurlög sem beitt er við agabrotum nemenda geta verið eftirfarandi:

Tiltal, aðvörun og ávítur munnlegar og/eða skriflegar - en alltaf gefnar í votta viðurvist. Brottvísun úr skóla hluta úr degi eða daglangt með þeim hætti að foreldri hlutaðeigandi nemanda sækir hann í skólann. Ákvörðun um brottvísun úr skóla í lengri tíma eða alfarið er tekin með hliðsjón af ákvæðum laga um stjórnsýslu og rg. nr. 270/2000. Viðurlög taki ávallt mið af jafnræðisreglu og meðalhófsreglu.

Viðbrögð við agabrotum:

Sá starfsmaður skólans sem verður vitni að agabroti nemanda veitir nemandanum tiltal og lætur foreldra hans og umsjónarkennara vita og/eða ráðfærir sig við umsjónarkennarann varðandi agabrot nemandans.

Við annað brot fær nemandinn tiltal frá umsjónarkennara sem lætur foreldra hans og deildarstjóra vita af agabrotinu.

Við þriðja brot funda umsjónarkennari og deildarstjóri með nemandanum og foreldrum hans til að leita úrbóta.

Við fjórða brot er málefnum nemandans vísað til nemendaverndarráðs.

Við fimmta brot er málefnum nemandans vísað til skólastjóra.

Agabrot geta þó verið það alvarleg að þeim sé strax vísað til úrlausnar skólastjóra.

Umsjónarkennari heldur skrá yfir agabrot nemenda sinna.


Viđburđir

 «Maí 2012» 
sunmánţrimiđfimföslau
  12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031  

Heimili og skóli6HSkólamatur

Slóđin ţín:

Nemendur » Skólareglur

Mynd