Skólasókn og ástundun 8. - 10. bekk
Skólasóknar- og ástundunarkerfi unglingastigs Kópavogsskóla.
Markmið með skólasóknar- og ástundunarkerfi Kópavogsskóla er að vera nemendum hvatning til að leggja rækt við ástundun, reglusemi og stundvísi.
Í upphafi skólaársins byrja nemendur í 8.-10. bekk með 10 í skólasóknareinkunn og
0 punkta.
Fjarvistir nemenda eru metnar á eftirfarandi hátt:
Komi nemandi of seint í kennslustund: 1 punktur
Fyrir óheimila fjarvist úr kennslustund: 4 punktar
Nemanda er vísað úr kennslustund: 4 punktar
Leyfi og veikindi gefa ekki punkta hafi forráðamenn tilkynnt þau til skólans.
Fjarvistarpunktar hafa áhrif á skólasóknareinkunn nemenda sem hér segir:
Skólasóknareinkunn miðast við skólaárið í heild.
|
Punktar |
Einkunn |
|
0-1 |
10,0 |
|
2-6 |
9,5 |
|
7-12 |
9,0 |
|
13-18 |
8,5 |
|
19-24 |
8,0 |
|
25-30 |
7,5 |
|
31-36 |
7,0 |
|
37-42 |
6,5 |
|
43-48 |
6,0 |
|
49-54 |
5,5 |
|
55-60 |
5,0 |
|
61-66 |
4,5 |
|
67-72 |
4,0 |
|
73-78 |
3,5 |
|
79-84 |
3,0 |
|
85-90 |
2,5 |
|
91-96 |
2,0 |
|
97-102 |
1,5 |
|
103 og fleiri |
1,0 |
Foreldrar þurfa að fylgst með skráningum í Mentor.
Umsjónarkennarar upplýsa nemendur sína reglulega (1x í mán) um stöðu þeirra þannig að hver og einn geti fylgst nákvæmlega með skólasóknareinkunn sinni.
Nemendur sem komnir er með lægri skólasóknareinkunn en 8 geta tvisvar sinnum á skólaárinu sótt um til umsjónarkennara að hækka einkunnina. Gerður er skriflegur samningur milli nemanda og umsjónarkennara. Þá gefa þrjár punktalausar vikur 15 virkir dagar 1 í hækkun. Nemandi getur þó aldrei náð hærri einkunn en 8. Við fyrsta brot fellur samningurinn úr gildi. Falli samningur úr gildi heldur nemandi fyrri einkunn.















