Beint á leiđarkerfi vefsins

Skólaráđ Kópavogsskóla

Í lögum um grunnskóla nr. 91/2008 segir:

Við grunnskóla skal starfa skólaráð sem er samráðsvettvangur skólastjóra og skólasamfélags um skólahald. Skólaráð tekur þátt í stefnumörkun fyrir skólann og mótun sérkenna hans. Skólaráð fjallar um skólanámskrá skólans, árlega starfsáætlun, rekstraráætlun og aðrar áætlanir um skólastarfið. Skólaráð skal fá til umsagnar áætlanir um fyrirhugaðar meiri háttar breytingar á skólahaldi og starfsemi skóla áður en endanleg ákvörðun um þær er tekin. Skólaráð fylgist almennt með öryggi, aðbúnaði og almennri velferð nemenda. Skólanefnd, sbr. 6. gr., getur með samþykki sveitarstjórnar falið skólaráðum einstakra skóla ákveðin verkefni þessu til viðbótar.

Skólaráð skal skipað níu einstaklingum til tveggja ára í senn, tveimur fulltrúum kennara ásamt einum fulltrúa annars starfsfólks í viðkomandi skóla, tveimur fulltrúum nemenda og tveimur fulltrúum foreldra, auk skólastjóra sem stýrir starfi skólaráðs og ber ábyrgð á stofnun þess. Skólaráð velur að auki einn fulltrúa grenndarsamfélags til að sitja í ráðinu eða viðbótarfulltrúa úr hópi foreldra. Auk þess skal skólastjóri boða til sameiginlegs fundar skólaráðs og stjórnar nemendafélags að lágmarki einu sinni á ári.

Ráðherra setur reglugerð um starfsemi skólaráða í samráði við samtök sveitarfélaga, kennara og foreldra.

Nánar er kveðið á um starfsemi og hlutverk skólaráða í Reglugerð um skólaráð við grunnskóla.

Fyrsti formlegi fundur skólaráðs Kópavogsskóla var haldinn 6. febrúar og fundargerðir má nálgast á tenglinum hér til vinstri.

Í skólaráði sitja af skólans hálfu Guðmundur Ásmundsson skólastjóri, kennararnir Birna Vilhjálmsdóttir og Gróa I. Grétarsdóttir og Arnheiður Magnúsdóttir skólaliði. Fulltrúar foreldra eru Jón Ólafur Halldórsson og Kristján Ólafsson og fulltrúar nemenda eru Magnús Jónsson og Bjarni Haukur Magnússon. Grenndarfulltrúi er Ólafur Guðmundsson og að auki starfar Ólína Þorleifsdóttir aðstoðarskólastjóri með ráðinu og ritar fundargerðir þess.


Viđburđir

 «Febrúar 2012» 
sunmánţrimiđfimföslau
   1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829   

Skólamatur6HHeimili og skóli

Slóđin ţín:

Skólaráđ

Mynd