Starfsreglur skólaráđs Kópavogsskóla
í samræmi við Reglugerð um skólaráð við grunnskóla nr. 1157/2008
1. Fundir skólaráðs skulu haldnir að jafnaði á sex vikna fresti á starfstíma skóla. Skólastjóri getur þó ákveðið að boða einstaka fulltrúa ráðsins á fundi þar sem sérstaklega á að ræða sérstök verkefni þeirra aðila.
2. Starfsáætlun næsta skólaárs skal staðfest af ráðinu á síðasta fundi hvers skólaárs.
3. Skólastjóri boðar fundi rafrænt með minnst 7 daga fyrirvara og dagskrá og fylgigögn (vísun í fylgigögn) skulu fylgja fundarboði.
4. Þeim þáttum sem skólaráði er ætlað að sinna og taldir eru upp í Reglugerð um skólaráð við grunnskóla (2. gr.) skal raðað niður á fundi vetrarins til umræðu. Sú staða getur komið upp að færa þurfi umræðu um ákveðin mál og skólastjóri skal þá tilkynna það eins fljótt og aðstæður leyfa. Þá getur hver ráðsmaður óskað eftir því við skólastjóra að tiltekin mál verði tekin til umfjöllunar í skólaráðinu enda samræmist málatilbúnaður verksviði ráðsins.
5. Einn fundur á ári skal sérstaklega helgaður umræðum um þróunarmál í skólastarfi.
6. Skólaráð skal skipta mér sér verkum við undirbúning opins fundar um málefni skólans fyrir alla aðila skólasamfélagsins.
7. Skólaráð getur falið foreldrafulltrúum og grenndarfulltrúa að leita eftir samstarfi og stuðningi utanaðkomandi aðila til styrktar skólastarfinu.
Samþykkt á fundi skólaráðs Kópavogsskóla 9. júní 2011















