Skólasafn Kópavogsskóla
- er upplýsingaver - þar sem nemendur afla sér upplýsinga og vinna úr þeim.
- er menningarmiðstöð - þar sem nemendur hafa aðgang að góðu úrvali lesefnis, skáldsögum, fræðibókum og tímaritum.
Skólasafnið er opið frá kl. 8 - 15.
Hádegisopnun fyrir nemendur unglingastigs er á þriðjudögum og fimmtudögum.
V e f b ó k a s a f n - krækjusafn Kópavogsskóla
Kröfur til menntunar hafa gjörbreyst frá því sem áður var og nýtt námsumhverfi kallar á breytingar á hlutverki skólasafnsins. Nú á tímum upplýsinga og nýrrar tækni, er skólasafnið í hlutverki kennslumiðstöðvar eða þekkingarvers þar sem aðgangur er að upplýsingum bæði á prentuðu og stafrænu formi.














