Námsmat
Námsmat í Kópavogsskóla er tvíþætt. Annars vegar er um að ræða símat kennara þar sem vinnubrögð nemenda og virkni eru metin með reglubundnum hætti. Hins vegar er um að ræða formleg próf og kannanir þar sem horft er til þeirrra námsmarkmiða sem Aðalnámskrá grunnskóla setur. Skólaárinu er skipt upp í þrjár annir, haustönn, vetrarönn og vorönn. Á haustönn eru ekki formlegir prófadagar og námsmatið því að mestu símat á vinnu nemenda auk þeirra prófa og kannana sem lögð hafa verið fyrir á önninni. Við annaskil í lok haustannar er niðurstöðum mats skilað til foreldra og nemenda með viðtali. Á vetrarönn og vorönn er einnig um símat að ræða en að auki bætast við formlegir prófdagar í 5.-10. bekk. Niðurstöðum námsmats er skilað til nemenda og forráðamanna í viðtali í lok vetrarannar en í lok vorannar er niðurstöðum skilað án viðtals.