    <language>is</language>
Fréttir | Kópavogsskóli
Útivistartími barna og unglinga
Við viljum minna á útivistarreglur fyrir börn og unglinga nú þegar vorið er að ganga í garð. Reglurnar eru settar með velferð og öryggi barna að leiðarljósi og mikilvægt er að við vinnum saman að því að fylgja þeim.
Fram til 1. maí:
Börn 12 ára og yngri mega vera úti til kl. 20:00.
Unglingar á aldrinum 13–16 ára mega vera úti til kl. 22:00.
Eftir 1. maí:
Börn 12 ára og yngri mega vera úti til kl. 22:00.
Unglingar á aldrinum 13–16 ára mega vera úti til kl. 24:00.
Foreldrar/forráðamenn mega stytta útivistartímann en ekki lengja hann frá þessum viðmiðum. Við hvetjum ykkur til að ræða þessar reglur við börnin ykkar og tryggja að þau viti hvaða tímamörk gilda. Einnig er mikilvægt að foreldrar fylgist með ferðum barna sinna og viti hvar þau eru stödd hverju sinni.]]></description>
Opinn skólaráðsfundur
Á  morgun, miðvikudaginn 8. apríl kl. 8:15-9:15 verður opinn skólaráðsfundur í Kópavogsskóla. Efni fundarins er lestur og lesskilningur og hvernig hægt er að efla hvort tveggja. Um er að ræða fræðslu frá Sigurlaugu Rún Brynleifsdóttur, kennsluráðgjafa og svo verða vinnu- og umræðuhópar um efnið.]]></description>
Páskafrí
Röskun á skólastarfi 26. mars 2026
Áríðandi]]></description>
Árshátíð Kópavogsskóla
Árshátíð Kópavogsskóla
Kópavogsskóli heldur árshátíðir nemenda í þessari síðustu viku fyrir páskafrí.]]></description>
Stóra upplestrarkeppnin
Stóra upplestrarkeppnin í 7. bekk í Kópavogi er árlegur viðburður sem hefst á degi íslenskrar tungu þann 16. nóvember. Í ár var lokakeppnin haldin í Salnum í Kópavogi þann 24. mars og kepptu þar tveir fulltrúar nemenda úr 7. bekk úr skólum Kópavogs. Óskar Sæmundur Sigfússon og Marel Briem kepptu fyrir hönd Kópavogsskóla og var Dagur Ómarsson þeirra varamaður. Hlynur Þorsteinsson, leikari og kennari í stuttmyndagerð við skólann var þeim innan handar við æfingar og aðstoðaði þá fyrir lokakeppnina. Okkar menn stóðu sig með miklum sóma og lenti Marel í 2. sæti keppninnar í ár. Við óskum þessum drengjum til hamingju með góða keppni og frábæran árangur. ]]></description>
Opin skólaráðsfundur 8. apríl 2026.
Skólaslit 2026
Skólaráð og foreldrafélag Kópavogsskóla hafa samþykkt breytingu á skólaslitum hjá nemendum í 1. – 9. bekk í vor þar sem stór hluti starfsmanna í Kópavogsskóla eru að fara í námsferð erlendis. Skólaslitin áttu að vera samkvæmt skóladagatali að morgni 10. júní en færast til 9. júní.
9. júní er merktur á skóladagatali sem skertur/uppbrotsdagur hjá nemendum og mun skólinn hefjast samkvæmt stundtöflu þann dag en ljúka klukkan 11:55. Frá þeim tíma fara þeir sem eru skráðir í frístund þennan dag í frístund en aðrir nemendur fara heim. Skólaslitinn verða síðan kl. 15:00 hjá nemendum í 1. – 9. bekk í kennslustofum hjá umsjónarkennurum og útskrift hjá 10. bekk verður kl. 16:30 í sal skólans. 
Enginn titill
Í febrúar síðast liðnum tóku 154 nemendur úr átta skólum á höfuðborgarsvæðinu þátt í stærðfræðikeppni í Borgarholtsskóla og var það metfjöldi. Skólarnir sem tóku þátt komu flestir úr nágrenni Borgarholtsskóla, Mosfellsbæ, Grafarvogi, Grafarholti og Úlfarsárdal en einnig komu nemendur frá Norðlingaholti, Árbæ, Breiðholti og Kópavogi og skráði Andri stærðfræðikennari nokkra nemendur til keppni úr 9. og 10. bekk Kópavogsskóla. Keppendur úr áttunda bekk voru 50 talsins, 48 úr níunda bekk og 56 úr tíunda bekk.
Páskabingó 10. bekkjar og Kjarnans
Framundan er hið árlega páskabingó 10. bekkjar og Kjarnans sem verður haldið 11. mars n.k.  Nemendur 10. bekkjar hafa verið öflugir í undirbúningi með aðstoð foreldra sinna en þetta er liður í fjáröflun 10. bekkjar.
Innritun í 1. bekk er hafin á Ísland.is
Innritun barna í 1. bekk hjá grunnskólum í Kópavogi fer nú fram í gegnum Ísland.is. Foreldrar og forsjáraðilar skrá sig inn með rafrænum skilríkjum og eru leidd í gegnum umsóknarferlið á skýran og aðgengilegan hátt. Innritun er hafin.
Vetrarfrí
Á morgun, 18. febrúar fögnum við öskudegi með fjölbreyttri dagskrá og lýkur henni kl. 11:00 og fara þá nemendur heim eða í Frístund fyrir þá sem eru þar skráðir. Vetrarfrí verður svo dagana 19. og 20. febrúar og hefst skóli aftur mánudaginn 23. febrúar samkvæmt stundaskrá. ]]></description>
Upplestrarkeppni 7. bekkjar
Í dag, fimmtudaginn 12. febrúar fór fram upplestrarkeppni 7. bekkjar. Þar kepptu tíu nemendur um það að verða fulltrúar skólans í Stóru upplestrarkeppninni sem fram fer í Salnum í mars. Nemendur 7. bekkjar eru margir hverjir virkilega góðir lesarar og var erfitt að velja þá tíu sem kepptu í dag. ]]></description>
Sáttmáli um símafrí í skóla- og frístundastarfi í grunnskólum Kópavogs
Jólakveðja
Kópavogsskóli sendir bestu óskir um gleðileg jól og farsæld á komandi ári. 
Skrifstofa skólans opnar aftur mánudaginn 5. janúar og þá hefst kennsla samkvæmt stundaskrá.
Meðfylgjandi mynd er jólakveðja skólans og má þar finna jólakveðju á þeim tungumálum sem nemendur skólans kunna.]]></description>
Laufabrauðsdagur foreldrafélagsins
Kæru fjölskyldur,
Við minnum á árlega Laufabrauðsdag foreldrafélags Kópavogsskóla sem verður haldinn á morgun, laugardaginn 29. nóvember frá kl. 11 - 14 í sal Kópavogsskóla]]></description>
Fernuflug - til hamingju Kolbrá!
Textasamkeppnin Fernuflug Mjólkursamsölunnar hóf sig til flugs nú í byrjun skólaárs þar sem grunnskólanemendum í 8.-10. bekk um land allt var boðið að taka þátt og senda inn texta undir yfirskriftinni „Hvað er að vera ég?“. Um 1.200 textar bárust í keppnina. Einungis 48 textar voru valdir til þess að birtast á mjólkurfernum. Fyrstu fernurnar má finna í búðum í byrjun janúar 2026.
3. bekkur í heimsókn á Náttúrfræðistofu og Gerðasafni
Nemendur 3. bekkjar fengu boð um að koma í heimsókn á Náttúrufræðistofu og Gerðasafn. Þar fengu þeir fræðslu um landmótun á Íslandi og bjuggu þau til sína eigin eldfjallaeyju. Það var gert með því að þrýsta steinum ofan í leir til að móta landslagið og svo var svo steypt úr gifsi. Að lokum voru eyjarnar málaðar og afraksturinn var glæsilegur. ]]></description>
Foreldraviðtöl 6. nóvember og kaffisala 9. bekkjar
Foreldraviðtalsdagur verður 6. nóvember n.k. Nemendur 9. bekkjar verða með fjáröflunarkaffi og kökusölu þann dag í anddyri skólans en salan er hluti af fjáröflun 9. bekkjar fyrir ferð í skólabúðirnar í Vindáshlíð.]]></description>