Aðalnámskrá grunnskóla

Menntamálaráðuneytið gefur út aðalnámskrár leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla á grundvelli laga um viðkomandi skólastig. Aðalnámskrár hafa ígildi reglugerðar og í þeim er kveðið nánar á um útfærslu laga og reglugerða. Þær kveða m.a. á um markmið og fyrirkomulag skólastarfs, kennsluskipan og viðmið um námskröfur og námsframvindu.

Við bendum fólki á að kynna sér Aðalnámskrá grunnskóla á heimasíðu Menntamálaráðuneytisins.