Öllum grunnskólum er skylt að starfrækja nemendaverndarráð samkvæmt Reglugerð nr. 584/2010 um sérfræðiþjónustu sveitarfélaga við leik- og grunnskóla og nemendaverndarráð í grunnskólum.
Í nemendaverndarráði Kópavogsskóla eiga sæti
- Guðmundur Ó. Ásmundsson, skólastjóri
- Guðný Sigurjónsdóttir aðstoðarskólastjóri og deildarstjóri 6. - 10. bekkjar
- Bergdís Finnbogadóttir deildarstjóri 1. - 5. bekkjar
- Erla Gígja Garðarsdóttir deildarstjóri sérúrræða
- Elísabet Pétursdóttir, námsráðgjafi
- Eyrún Björk Svansdóttir, skólahjúkrunarfræðingur
- Björg Norðfjörð, sálfræðingur
Til nemendaverndarráðs er beint beiðnum um stuðning/úrræði fyrir einstaka nemendur og hópa. Þar er metið hvernig best sé að taka á málum og til hvaða þjónustuaðila á að vísa þeim ef þörf krefur. Endanlegar ákvarðanir eru alltaf teknar í samráði og samvinnu við foreldra.