Skólasálfræðingur er Þórdís Bragadóttir og hún sér um sálfræðiþjónustu fyrir nemendur Kópavogsskóla. Skólasálfræðingar sinna eingöngu greiningarvinnu og leiðbeina foreldrum um meðferðaraðila sem henta hverju barni. Þórdís er með viðveru á mánudögum, þriðjudögum og fimmtudögum og þurfi foreldrar að ná tali af henni á að hafa samband við skrifstofu skólans í síma 441 3400.
Starfsfyrirkomulag
Sálfræðingur situr fundi nemendaverndarráðs en hlutverk þess er að samræma störf þeirra sem sjá um málefni einstakra nemenda. Sálfræðingur situr í ráðinu sem fulltrúi skólaþjónustu sveitarfélagsins. Sótt er um þjónustu sálfræðings með rafrænni beiðni sem foreldrar skrifa undir með rafrænni undirskrift. Nemendur í 9. og 10. bekk geta einnig óskað sjálfir eftir ráðgjafarviðtali án aðkomu foreldra.
Hægt er að óska eftir aðkomu sálfræðings þegar áhyggjur vakna af námsframvindu, hegðun eða líðan nemenda. Sálfræðingur leggur mat á stöðu nemandans og leggur fram tillögur um næstu skref í samvinnu við nemendur, foreldra og fagfólk. Íhlutun sálfræðings getur falist í greiningu, ráðgjöf, viðtölum og þverfaglegri teymisvinnu. Ef það er mat sálfræðings að nemandi þurfi víðtækara úrræði en skólinn veitir skal hann vísa á slík úrræði.
Sálfræðingur kemur einnig að almennri ráðgjöf og fræðslu fyrir nemendur, foreldra og fagfólk um málefni sem eru á hans sérsviði.
Sálfræðingar við grunnskóla Kópavogs funda reglulega með verkefnastjóra skólaþjónustu grunnskóladeildar.
Uppfært 6. október 2023