Frístund Kópavogsskóla – Stjarnan
Stjarnan er frístundaheimili Kópavogsskóla fyrir börn í 1.–4. bekk.
Við leggjum áherslu á að börnunum liði vel, þau séu örugg og fái tækifæri til að njóta sín í fjölbreyttu og skapandi umhverfi. Börnin fá að velja sér verkefni eftir áhugasviði og við leggjum sérstaka áherslu á leik, útiveru, sköpun, samskipti og sjálfstæði.
Símar, símaúr og/eða önnur spjalltæki eru bönnuð á meðan frístund stendur og biðjum við krakka að hafa það á hljóðlátri stillingu í töskunni sinni. Einnig er ekki leyfilegt að koma með dót í frístund.
Starfsfólk
Forstöðumaður Stjörnunnar skólaárið 2026-27 er Alexandra Gunnarsdóttir, aðstoðarforstöðumaður er Rosalie Rut Sigrúnardóttir. Í Stjörnunni starfa að auki 7 starfsmenn.
Opnunartími
Almennur opnunartími: 13:25–16:30.
Á skipulagsdögum og foreldraviðtölum er opið 08:00–16:30. Þá þarf að skrá börn sérstaklega, fyrirfram í gegnum Völu.
Frístundin er lokuð á Þorláksmessu, aðfangadag, gamlársdag og þegar vetrarfrí er í skólanum.
Skráning og umsóknir
Umsóknir um vist í frístund fer í gegnum þjónustugátt Kópavogsbæjar eða Völu. Þar er einnig hægt að skrá inn tómstundir og möguleiki á að breyta skráningu barna í frístund.
Við fylgjum þeim heimferðartíma sem skráður er í Völunni nema aðrar upplýsingar hafi borist frá foreldri. Upplýsingar verða að berast til forstöðumanna fyrir klukkan 12:30 samkvæmt öryggisferlum Kópavogs. Við leyfum börnum ekki að fara heim með vinum sínum ef við höfum ekki fengið upplýsingar þess efnis frá foreldrum.
Einnig viljum við biðja foreldra að virða skráðan vistunartíma og bendum á að Stjarnan lokar kl. 16:30. Ef fólki seinar þá óskum við eftir því að það hringi í okkur og láti vita. S: 825-5945
Fjölbreytt starf í Stjörnunni
Börnin velja sjálf hvaða val þau vilja taka þátt í daglega og fá þannig tækifæri til að hafa áhrif á hvernig þau verja tíma sínum í frístundinni.
Framboðið er breytilegt eftir dögum og getur meðal annars verið:
Aðstaða og starfsemi
Stjarnan hefur aðstöðu í gamalli húsvarðaríbúð í elsta hluta skólans, fyrir ofan íþróttasalinn. Þar hafa verið gerðar endurbætur og húsnæðið er huggulegt þó það sé lítið. Að auki hefur Stjarnan aðgang að öðrum rýmum skólans fyrir starfsemi sína. Börn í þriðja og fjórða bekk eru í klúbbum og vali sem starfsfólk Stjörnunnar stýrir en börn í frysta og öðrum bekk eru í mismunandi vali eftir dögum. Leynileikhúsið, Bandý og Tennis námskeið eru í boði hjá okkur í ár. Ýmsir aðrir aðilar hafa komið að starfinu en er breytilegt eftir árum. Sérskráning er í þetta og er það auglýst hverju sinni.
Klúbbastarf fyrir 3.–4. bekk
Í 3. og 4. bekk bjóðum við einnig upp á klúbbastarf.
Börnin fá að koma með hugmyndir að klúbbum og segja frá því sem þau hafa áhuga á. Síðan kjósa þau á milli hugmynda og þær hugmyndir sem fá mestan stuðning verða að klúbbum.
Þannig fá börnin tækifæri til að hafa áhrif á starfið, taka þátt í ákvörðunum og sjá að skoðanir þeirra leiða að áhrifum í starfi.
Síðdegishressing
Á hverjum degi fá börnin síðdegishressingu. Hressingin er á milli 13:30-14:30 á daginn.
Við bjóðum upp á fjölbreytt úrval af brauðmeti og mjólkurvörum ásamt ávöxtum og grænmeti.
Útivist og fatnaður
Þriðji og fjórði bekkur byrjar daginn sinn úti fram að kaffitíma. Það fara svo allir bekki í útiveru 15:15/15:30 og erum þar til 16:00. Að sjálfsögðu tökum við alltaf mið á veðri en við reynum að fara amk. einu sinni út á hverjum degi. Eins á sumrin bjóðum við oftar upp á útiveru og borðum jafnvel hressinuna úti.
Nauðsynlegt er að senda börnin klædd eftir veðri, þar sem farið er út á hverjum degi, bæði yfir skóladaginn og líka í Stjörnunni. Einnig mælum við með því að hafa aukapör af sokkum, nærfatnaði og svo annan aukafatnað í töskunni ef föt barnsins blotna.
Okkar markmið
Í Stjörnunni viljum við skapa umhverfi þar sem börn:
Leikföng
Ekki er æskilegt að börnin komi með leikföng að heiman, nema á leikfangadögum skólans sem er sérstaklega kynntir foreldrum. Ekki er tekin ábyrgð á því ef leikfang skemmist eða týnist í Stjörnunni.
Frístund í lok skólaárs og sumarfrístund fyrir verðandi 1. bekk
Ef skólaslit eru í miðri viku er opið í frístundinni frá kl. 8:00-16:30 út þá viku. Tveim vikum fyrir skólasetningu á haustin bjóðum við verðandi fyrstu bekkingum til okkar og er skráning auglýst tímanlega.
Gjaldskrá
Á heimasíðu Kópavogsbæjar eru allar upplýsingar. Gjaldskrár - Kópavogsbær
Hafa samband
Netfang: