Anna Karen er að æfa borðtennis með ÍFR (Íþróttafélagi fatlaðra í Reykjavík). Anna keppti á Íslandsmóti laugardaginn 10. maí sem haldið var í ÍFR þar sem hún var yngsti keppandinn og var þetta fjölmennasta borðtennismót ÍF í langan tíma. Anna keppti á mótinu fyrir Ungmennafélagið Vísi í Suðursveit, en það er sveitin sem hún á ættir að rekja til og eyðir þar miklum tíma hjá ömmu sinni og afa.
Anna Karen varð Íslandsmeistari í tvenndarleik á mótinu. Hún spilaði með þjálfaranum sínum, Hákoni Atla og endaði úrslitaleikurinn í oddalotu sem fór 11-8 fyrir þeim. Rétt er að taka það fram að Anna er yngsti Íslandsmeistari í borðtennis í sögunni. Hún stóð sig frábærlega á mótinu og keppti nánast alla leikina sína á móti fullorðnum.