Kópavogsskóli er hverfisskóli miðbæjar Kópavogs og stendur við Digranesveg 35. Skólinn er elsti grunnskóli Kópavogs og var stofnaður þann 12. janúar 1949.
Skólinn er heildstæður skóli frá 1. til 10. bekk. Skólaárið 2026-2027 eru um 410 flottir nemendur í skólanum og þeim hefur fjölgað jafnt og þétt undanfarin ár. Skólinn er orðinn fjölþjóðlegur því tæplega 40% nemenda eru af erlendum uppruna. Við skólann starfar sérdeild fyrir nemendur í 5.–10. bekk sem glíma við þroskafrávik og mikla stuðningsþörf. Skólinn rekur einnig eigið mötuneyti og frístundaheimilið Stjörnuna.
Saga skólans
Saga Kópavogsskóla er náið samofin uppbyggingu og þróun sveitarfélagsins sjálfs. Á fyrstu árunum var skólahúsið miðstöð nánast alls samfélagslífs í Kópavogi, þar sem önnur opinber húsnæði voru ekki til staðar. Í upphafi nýttist skólahúsnæðið ekki einungis til kennslu heldur starfaði þar guðshús, félagsheimili og fyrsta áhaldahús bæjarins. Fyrstu skrifstofur Kópavogsbæjar fengu inni í skólanum og þar voru einnig haldnir borgarafundir, framboðsfundir og leiksýningar. Félög eins og Leikfélag Kópavogs (stofnað 1957) og Bókasafn Kópavogs hófu bæði starfsemi sína innan veggja skólans.