Nemendaráð Kópavogsskóla er um leið nemendaráð félagsmiðstöðvarinnar Kjarnans. Skóli og félagsmiðstöð vinna saman að hagsmunamálum nemenda og fer því vel á því að vera með sameiginlegt ráð. Nemendurnir í nemendaráðinu fá ráðasetu sína metna sem ígildi valgreinar á vegum Kópavogsskóla. Með þátttöku sinni læra þau sem bjóða sig fram og sitja í nemendaráðinu hverju sinni að starfa að félags- og lýðræðismálum og vaxa þannig í borgaravitund sinni.
Á hverju hausti kjósa nemendur unglingastigs Kópavogsskóla fulltrúa sína í nemendaráð með lýðræðislegum hætti. Hver árgangur kýs fjóra árgangafulltrúa auk tveggja formanna úr 10. bekk. Formennirnir sinna leiðtogahlutverki sínu með aðstoð frá starfsmanni skóla og félagsmiðstöðvar. Formennirnir verða fulltrúar nemenda í ýmsum ráðum og upplýsa nemendaráðið um það sem efst er á baugi hverju sinni. Með þeim hætti verður umræða og ákvarðanir ráðsins upplýstari, auk þess að allir nemendaráðsfulltrúar fá ákveðna reynslu og sýn af heildrænu lýðræðisstarfi (á hverfa-, bæjarfélaga- og landsvísu). Formenn nemendaráðsins sitja í Skólaráði, Ungmennaráði Kópavogsbæjar, Félkóráði (félagsmiðstöðvaráð Kópavogs) og bjóða sig fram í stjórn Ungmennaráðs Samfés.
Forstöðumaður félagsmiðstöðvarinnar og skólastjórnendur funda reglulega með stjórn nemendafélagsins, ræða ýmis málefni og skipuleggja viðburði vetrarins. Fastir liðir sem tilheyra skólanum er jólaskemmtun og árshátíð. Fjöldinn allur af föstum liðum tilheyra félagsmiðstöðvarstarfinu, hvort sem er á hverfavísu (skólahverfi Kópavogsskóla), á bæjarvísu (Kópavogsbær) eða á landsvísu (landssamtökin Samfés). Félagsmiðstöðvarsamstarf í Kópavogi gengst undir heitinu FÉLKÓ og landssamstarf félagsmiðstöðva er nær eingöngu undir hatti landsamtaka félagsmiðstöðva og ungmennahúsa á Íslandi, Samfés.
Með því að pressa á hnappinn hér að neðan má finna lög nemendafélags Kópavogsskóla og Kjarnans:
Lög Nemendafélags Kópavogsskóla
Formenn nemendaráðs (tveir nemendur í 10. bekk) :
Freyja Lóa H. Sigríðardóttir
Sigvaldi Hrafn Ásbjörnsson.
Árgangafulltrúar 10. bekkja- fjórir aðalmenn:
Elmar Andrés Elíasson
Helena Ósk Gunnarsdóttir
Karitas Ólöf Sigurðardóttir
Stefán Dagur Pálmason.
Árgangafulltrúar 9. bekkja- fjórir aðalmenn:
Amelía Emma Arnþórsdóttir
Gestur Ragnar Oddgeirsson
Helena Kristín Hermannsdóttir
Sigurður Torfi Óskarsson
Árgangafulltrúar 8. bekkja- fjórir aðalmenn:
Arianna Lucia Sineavschi
Arnór Breki Andrason
Klara Sóllilja Sævarsdóttir
Marel Briem