Árshátíð nemenda í 7.-10. bekk verður haldin á sal Kópavogsskóla fimmtudaginn 26. mars. Um er að ræða árshátíð skólans og Kjarnans, félagsmiðstöðvar. Mæting er kl. 18:30 og húsið lokar kl. 19:00 og hefst þá sitjandi borðhald og skemmtiatriði. Skemmtun lýkur kl. 22:45 og eru foreldrar hvattir til þess að sækja sín börn.
Árshátíð nemenda í 1.-6. bekkur verður haldin föstudaginn 27. mars. Nemendur 1.-3. bekkjar mæta í skólann kl. 8:15 og hefjast skemmtiatriði í sal skólans kl. 8:30. Nemendur verða svo í umsjón kennara til kl. 10:15. Nemendur í 4.-6. bekk mæta í skólann kl. 9:30 og hefjast skemmtiatriði í sal skólans kl. 10:15. Nemendur verða svo í umsjón kennara til kl. 11:30.
Kennsla hefst aftur samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 7. apríl.