Bræðingur - uppskeruhátíð 30. maí

Nemendur í 7.-10. bekk hafa verið að vinna í Bræðingsverkefnum frá 19. maí síðast liðnum. Á föstudaginn næsta, 30. maí, verður sýning á þessum verkefnum frá kl. 10:00-12:00 og gefst foreldrum og forsjáraðilum ásamt öðrum gestum kostur á að koma, sjá og fræðast. Við hlökkum til að taka á móti ykkur.