9. nóvember fögnuðum við baráttudegi gegn einelti og nýttum við tækifærið til að leggja áherslu á mikilvægi vináttu, virðingar og góðra samskipta.
Vinabekkir hittust og áttu saman notalega stund þar sem nemendur unnu að ýmsum verkefnum, meðal annars púsli og spilum. Með þessu fengu þau tækifæri til að eiga samskipti, vinna saman og kynnast enn betur.
Nemendur í 3. og 7. bekk gengu einnig saman að leikskólanum Kópahvoli þar sem þau mynduðu fallegan vinahring með nemendum leikskólans.
Við viljum minna á að lítil góðverk, hlý orð og vinsemd skipta miklu máli í daglegu lífi og að við getum öll lagt okkar af mörkum til að skapa skólasamfélag þar sem öllum líður vel og allir fá að tilheyra.