Sumardvöl Stjörnunnar

Sumardvöl í frístundum við grunnskóla Kópavogs 2025

Sumardvöl Stjörnunnar frístundar Kópavogsskóla verður opin dagana 11. – 22. ágúst fyrir verðandi nemendur í 1. bekk. Sumardvölin er skipulögð í anda þeirrar stefnu að skapa bætta samfellu milli skólastiga.

Markmið með sumardvölinni er að stuðla að vellíðan, öryggi og jákvæðri aðlögun nemenda, jafnt félagslega sem námslega að umhverfi grunnskólanna áður en formlegt skólastarf hefst.

Gert er ráð fyrir að börnin útskrifist úr sínum leikskóla fyrir sumarfrí og hefji aðlögun að næsta skólastigi í sumardvöl í frístund við sinn hverfisskóla í ágúst.

Sumardvölin verður opin frá klukkan 8:00 að morgni til klukkan 16:00 síðdegis. Tekið er á móti börnunum milli klukkan 8:00 og 9:00.

Boðið er upp á heitan mat í hádeginu og hressingu fyrir og eftir hádegi.

Tvö tímabil eru í boði og hægt að velja aðra hvora eða báðar vikur:

  • 11. – 15. ágúst
  • 18.- 22. ágúst

Gjald fyrir staka viku er 12.7000 kr. eða 24.800 fyrir báðar vikurnar.

Þar sem sumardvölin í frístund er með aðeins öðru fyrirkomulagi heldur en vetrarfrístund, þá er umsóknarformið með öðru sniði, líkt og um námskeið væri að ræða. Sækja þarf um Sumardvölina rafrænt: Umsókn um Sumardvöl

Opnað hefur verið fyrir umsóknir og hægt verður að sækja um til 7. ágúst.

Athugið að lokað verður í frístund á skólasetningardegi 25. ágúst til að undirbúa vetrarfrístund sem hefst þriðjudaginn 26. ágúst.

Hlökkum til að sjá ykkur!

Ásthildur Guðmundsdóttir

Forstöðumaður Stjörnunnar frístundar Kópavogsskóla

____________________________________________________

Summer Program in Leisure Centre at Kópavogur Elementary Schools 2025

The summer program of Stjarnan Leisure Centre at Kópavogsskóli will be open from August 11–22 for incoming 1st grade students. The program is organized in line with the policy of creating better continuity between educational stages.

The goal of the summer program is to support students' well-being, safety, and positive adaptation—both socially and academically—to the elementary school environment before formal schooling begins.

It is expected that children will graduate from their preschools before the summer holiday and begin adjusting to the next educational level through the summer program at their neighbourhood elementary school's after-school care in August.

The program will be open from 8:00 AM to 4:00 PM. Children should be dropped off between 8:00 and 9:00 AM.

A hot lunch will be served, as well as snacks in the morning and afternoon.

Two time periods are available, and families may choose either week or both:

  • August 11–15
  • August 18–22

The fee is ISK 12,700 for one week or ISK 24,800 for both weeks.

As the summer program differs slightly in format from the regular schoolyear after-school care, the application form is set up similarly to a course registration. Applications must be submitted electronically: https://www.abler.io/shop/kopavogur Registration is now open and will remain available until August 7.

Please note that the after-school program will be closed on the first day of school, August 25, to prepare for the regular school-year program, which starts on Tuesday, August 26.

We look forward to seeing you!

Best regards, Ásthildur Guðmundsdóttir
Director of Stjarnan Leisure Centre at Kópavogsskóli