Á morgun, þriðjudag 20. október og á miðvikudag 21. október, verða fjölgreindaleikar haldnir í Kópavogsskóla. Þá mæta allir nemendur skólans kl. 8:15 í sínar heimastofur. Nemendur elstu bekkjanna sækja þau yngstu og og vinna á stöðvum hefst kl. 8:30, þegar blandaðir aldurshópar hefja sína vinnu. Nemendur borða saman nesti og hádegismat í þessum hópum og því mikilvægt að allir komi með nesti í hentugum töskum, t.d. litlum bakpokum til þess að taka með á milli stofa. Um er að ræða skerta skóladaga nemenda þannig að skóladegi allra lýkur kl. 12:15 og þeir nemendur sem eru skráðir í Frístund fara þá þangað.