Bókasafnsfræðingur skólans er með lestrarátak þessa dagana fyrir 2. og 3. bekk. Krakkarnir ráða sjálf hvort þau vilji vera með í bókaklúbbnum en langflest vildu vera með. Bókaklúbburinn gengur út á að lesa bækurnar um Binnu B. Bjarna og Jónsa. Þau safna límmiðum í bókaklúbbsbæklinginn sinn, einum límmiða fyrir hverja bók. Þetta gera þau bara á sínum eigin hraða og það er engin krafa um að fylla bókina.
Hvor bekkur er líka í sameiningu að innrétta húsið þeirra Binnu og Jónsa. Fyrir hverjar fimm bækur sem bekkurinn hefur lesið, fá þau eitt húsgagn, eða hluta af innréttingu og líma það inn í húsið. Í húsinu er sitt hvort herbergið fyrir Binnu og Jónsa, stofa, eldhús og baðherbergi. Þegar krakkarnir skila bókunum til mín þá fá þau límmiða og hver lesin bók er skrá hjá hvorum bekk. Þegar bekkurinn er komin með 5, 10, 15, o.s.frv. bækur fá nemendur húsgagn eða innréttingar til að fylla húsið.
Krakkarnir hafa heldur betur tekið vel í þessa vinnu.